Læknablaðið : fylgirit - 26.04.2016, Síða 4
Vísindi á vordögum
Á hverju vori eru haldnir vísindadagar á Landspítala, Vísindi á
vordögum, þar sem vísindaniðurstöður eru kynntar fyrir starfsfólki
spítalans, fræðimönnum og almenningi. Einnig eru veitt verðlaun til
vísindamanna og styrkir veittir úr Vísindasjóði Landspítala og kynntir
Heiðursvísindamaður ársins og Ungur vísindamaður ársins. Þá er
opnuð Vimeo-rás á heimasíðu Landspítala með 34 örfyrirlestra um
vísindaleg verkefni starfsmanna spítalans.
Vísindasjóður Landspítala er rannsóknarsjóður, sem árlega veitir
rúmlega 80 milljónum króna í rannsóknarstyrki til starfsmanna spítal-
ans. Vísindasjóður var formlega stofnaður á árinu 2000 við sameiningu
vísindasjóða Landspítala og Sjúkrahúss Reykjavíkur og voru fyrstu
styrkveitingar úr sjóðnum á árinu 2002. Stjórn Vísindasjóðs ákveður
hverjir fá styrki úr sjóðnum, með hliðsjón af umsögnum frá Vísindaráði
Landspítala. Á árinu 2015 voru á árinu veittir 115 styrkir, samtals 77
milljónir króna, við þrjár úthlutanir:
Vorstyrkir Vísindasjóðs: Á vísindadögum voru veittir 106 vísinda-
styrkir, samtals 53 milljónir kr.
Hvatningarstyrkir til sterkra rannsóknahópa sem þegar höfðu öðlast
alþjóðlega viðurkenningu. Þrír styrkir voru veittir 1. desember, samtals
15 milljónir kr.
Styrkir til ungra vísindamanna: 16. desember voru veittir 9 styrkir til
ungra starfsmanna sem stunda klínískar rannsóknir, samtals 9 milljónir
króna.
Stjórn Vísindasjóðs Landspítala
Páll Matthíasson forstjóri og formaður
Gísli H. Sigurðsson yfirlæknir og prófessor
Sigríður Gunnarsdóttir framkvæmdastjóri hjúkrunar
Ólafur Baldursson framkvæmdastjóri lækninga
Rúnar Bjarni Jóhannsson deildarstjóri reikningshalds
Vísindaráð er framkvæmdastjórn til ráðgjafar um vísindastefnu og
vísindastarf á sjúkrahúsinu. Vísindaráð er vísinda- og þróunarsviði
Landspítala til ráðgjafar um þau verkefni þess sem snúa að háskóla-
og vísindastarfi og þróun heilbrigðisvísinda. Vísindaráð á aðild að
úthlutun styrkja úr Vísindasjóði Landspítala samkvæmt reglum sjóðs-
ins, og semur matsreglur í samræmi við alþjóðlegar viðmiðanir. Þá er
Vísindaráð til ráðgjafar við veitingu viðurkenninga fyrir vísindastörf á
spítalanum.
Vísindaráð er skipað 10 manns til fjögurra ára í senn. Verkefnastjóri
Vísindaráðs er Jóhanna Gunnlaugsdóttir, vísinda- og þróunarsviði.
Vísindaráð skipa
Gísli H. Sigurðsson læknir
(formaður), tilnefndur af læknaráði Landspítala
Guðrún Kristjánsdóttir
hjúkrunarfræðingur (varaformaður), tilnefnd
af hjúkrunarfræðideild Háskóla Íslands
Arnar Geirsson
læknir, tilnefndur af læknadeild Háskóla Íslands
Helga Gottfreðsdóttir
hjúkrunarfræðingur, tilnefnd af hjúkrunarráði Landspítala
Jón Friðrik Sigurðsson
sálfræðingur, tilnefndur af forstjóra Landspítala
Jóna Freysdóttir
náttúrufræðingur, tilnefnd af forstjóra Landspítala
Sigurður Yngvi Kristjánsson
læknir, tilnefndur af læknadeild Háskóla Íslands
Þorvarður Jón Löve
læknir, tilnefndur af læknaráði Landspítala
Þórarinn Guðjónsson
náttúrufræðingur, tilnefndur af forstjóra Landspítala
Þórdís Katrín Þorsteinsdóttir
hjúkrunarfræðingur, tilnefnd af hjúkrunarráði Landspítala
Varamenn
Anna Margrét Halldórsdóttir
læknir, tilnefnd af læknadeild Háskóla Íslands
Auðna Ágústsdóttir
hjúkrunarfræðingur, tilnefnd af hjúkrunarráði Landspítala
Bertrand Lauth
læknir, tilnefndur af læknadeild Háskóla Íslands
Herdís Sveinsdóttir
hjúkrunarfræðingur, tilnefnd af hjúkrunarfræðideild
Háskóla Íslands
Inga Reynisdóttir
náttúrufræðingur, tilnefnd af forstjóra Landspítala
Ingibjörg Jóna Guðmundsdóttir
læknir, tilnefnd af læknaráði Landspítala
Ingibjörg Gunnarsdóttir
næringarfræðingur, tilnefnd af forstjóra Landspítala
Jón Jóhannes Jónsson
læknir, tilnefndur af læknaráði Landspítala
Paolo Gargiulo
verkfræðingur, tilnefndur af forstjóra Landspítala
Sigríður Zoëga
hjúkrunarfræðingur, tilnefnd af hjúkrunarráði Landspítala
4 LÆKNAblaðið 2016/102 FYLGIRIT 88