Verzlunartíðindi - 01.12.1984, Blaðsíða 13

Verzlunartíðindi - 01.12.1984, Blaðsíða 13
Þung áhersla lögð á örbylgjuofnana, — og innbyggðu tækin Á stórri rafmagnsvóri, sýningu eins og Domo- technica í Köln má lesa ýmislegt um þá þróun, sem er að verða í þessum mikla iðnaði. í ár fór þessi alþjóð- lega sýning fram og þar voru sýnd ýmis heimilistæki og áhöld, einkum eldhús- tæki og ýmis ný tækni kom fram. Örbylgjutæknin er það sem hæst bar á sýningunni, segja forráðamenn Domo- technica og spá því að hún muni setja stóran svip á verslanir í þessari grein á komandi árum. Á sýning- unni voru sýningaraðilár með örbylgjuofna sem eru nettari í allri útfærslu og búnir ýmsum viðbótarbún- aði. Af sýningunni virðist einnig mega ráða að þung áhersla verði lögð á inn- byggð tæki hvers konar í framtíðinni, og þá einkum raftæki á milliverðum. Þá var Ijóst að alls konar raf- tæki, stór og smá, bjóða nú upp á mun meiri þægindi fyrir notandann en fyrr, — og ekki hvað síst minni orkueyðslu, sem eru góð tíðindi hér í landi hárra orkureikninga. Rafeindatækni og örtölv- ur eru stöðugt að færast meira inn á svið heimilis- tækjaframleiðslunnar. Þá mátti skoða á sýningunni ýmislegt til varnaðar á heimilum fólks, m.a. nýstár- legavörn gegn vatnsleka. Litir heimilistækja hafa sveiflast eftir tískustraumum eins og kunnugt er. Á sýn- ingunni í Köln var hvítt áberandi í tækjum flestra sýnendanna, en þó mátti sjá tilhneigingu víða í átt til glaðari lita. Þá er Ijóst að „gamaldags“-bylgja geng- ur yfir víða í heimilistækja- iðnaðinum, en tækin að sjálfsögðu búin nútíma tækni hið innra. Sýndu margir slíka hluti í Köln, bæði rafmagnstæki og hit- unar- og eldunartæki. Litlar matarkvarnir (food processors) voru greinilega að koma aftur á sjónarsviðið á sýningunni. Einnig ýmis smátæki til munnhirðu. í deildum ryksuguframleið- enda var ekki annað að sjá en að belgryksugurnar væru aftur að ná yfirhönd- inni. Geta má um fleiri atriði sem náðu góðri sölu og mikilli athygli á sýningunni, m.a. má nefna lofthreinsara og rakatækja. Eins og fyrr greindi voru örbylgjuofnar í stóru hlut- verki á sýningunni. Fyrir- ferðarminni módel og meiri sveigjanleiki í verðum hefur örfað markaðinn. Þá er ekki ótrúlegt að þessi áhugi á míkróofnum stafi af þeirri þróun að heimilin verða einfaldari og minni auk þess sem breytingar eiga sér stað í neysluvenjum víða um lönd, m.a. með aukinni notkun frystitækja. Mikil upplýsingaherferð sem farin var hefur greinilega náð að breyta neikvæðu hugarfari í garð örbylgjutækninnar til hins betra, ekki hvaó síst í Þýskalandi þar sem ör- bylgjuofnar eru enn sem komið er lítt þekktir. Á sýningunni bar mikið á annarskonar þróun, orku- sparandi tækjum, einkum var þetta áberandi í sam- bandi við kæli- og frystibún- að, einnig þvottavélar, upp- þvottavélar og vatnshitara, sem hafa gengist undir breytingar til hins betra á þessu sviði. Skoðendur sýningarinnar fylgdust með af áhuga þeg- ar framleiðendur sýndu mögulega tækni framtíðar- innar í eldun, þ.e. ,,kalda“ eldun, „infrarauða eldun" og jafnvel „talandi" áhöld og tæki. VERZLUNARTIÐINDI 13

x

Verzlunartíðindi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Verzlunartíðindi
https://timarit.is/publication/1845

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.