Verzlunartíðindi - 01.12.1984, Blaðsíða 19

Verzlunartíðindi - 01.12.1984, Blaðsíða 19
Z-brautir og gluggatjöld hf.: Tækni sem stenst tímans tönn, — og sama verð í fimm ár!! Theodór og Magdalena í Z-brautum og gluggatjöldum h.f. Þaö eina sem stenst tímans tönn í versluninni Z-brautir og Gluggatjöld í Ármúla 42 eru Z-brautirnar. Þær eru eins ár eftir ár og þarfnast engra breytinga. Ööru máli er aö gegna um gluggatjöldin, sem breytast eftir tískuduttlungum hvers tíma. í því efni verður kaupmaðurinn aö vera vel á varðbergi, enda ófýsilegur kostur að sitja uppi með strangana af illseljanlegri vöru. Verzlunartíðindi ræddu á dögunum við þau hjónin Theódór S. Marinósson og Magdalenu Elíasdóttir, en þau hafa nú fært út kvíarnar, stækkuðu við sig húsplássið núna í vor, og eru farin að versla með almenna vefn- aðarvöru auk gluggatjalda og búnaðar til gluggans. Fyrirtækið er 20 ára gamalt. Byrjaði sem aukavinna í bíl- skúr eins og gjarnt er um ýmis góö fyrirtæki. Upphaflega byrjuðu þeir saman, Theódór og Þorvarður Jónsson, en fyrir 6 árum síðan keyptu þau Theódór og Magdalena hlut Þorvarðar. Auglýsing í þýsku tímariti kom þeim félögum á sporið. Gluggatjaldabrautir frá fyrir- tækinu Muller vöktu athygli þeirra og leiddu síðan til góðra viðskiptasambanda. Flestir vita framhaldið. Braut- irnar náðu góðri fótfestu á markaðnum, svo góðri að nú eru þær almennt kallaðar zetu-þrautir, hvort heldur þær eru frá Theódóri eða ekki. Það er með þær eins og til dæmis dráttarvélar, sem lengi voru kallaðar farmall eftir Farm-AII tækjunum, Bírópennar eftir vörumerkinu Buro og allir töluðu um Hansahillur, sama hvaðan þær komu. í dag er salan söm og jöfn sem fyrr. Ekki spillir það fyrir að tekist hefur að halda sama verðlagi í krónutölu í heil fimm ár, jafnvel hafa verð lækkað frá því 1978. Að sjálfsögðu er slík verðþróun mjög óvanaleg hér á landi. Theódór er lærður bíla- smiður. í þeirri iðn lærðu menn nánast allar iðngreinar í einu. Þetta hefur komið sér vel í starfi hjá Z-brautum & gluggatjöldum, því húsþyggj- endur koma oft og biðja um ráð, leggja málið allt að því í hendur starfsfólksins. Fyrirtækið hefur nú starfað VERZLUNARTÍÐINDI í 10 ár í Ármúlanum og þar er saumastofa og verkstæði auk rúmgóðrar verslunar. Á síð- asta ári keyptu þau hjónin lagerinn af Últíma h.f. og reka þau verslun með glugga- tjaldaefni þess fyrirtækis í Kjörgarði. Magdalena sagði að greini- legt væri að heimasaum væri að aukast. Salan á vefnaðar- vöru mundi því aukast. Versl- unin er búin að koma sér upp góðum lager og ætlunin að fara að auglýsa en til þessa hefur verið hljótt um vefnað- arvörudeildina. Hjá Z-brautum sáum við sóltjöld fyrir verslanir og fyrir- tæki. Sóltjöldin eru fáanleg með handhægum fjarstýr- ingabúnaði. Hefur þetta kom- ið sér vel hjá bönkum og tryggingafélögum í Reykjavík, því ekki þarf að fara fram fyrir afgreiðsluborð til að stilla tjöldin, það er gert með litlu áhaldi, sem stillir þá alla lengjuna í einu eftir því hvernig sólin skín. Þá kom fram í viðtalinu að efnisval í gluggatjöld hefur breyst mjög frá því sem var, meira af léttari efnum en fyrr. Þungu velour-efnin eru að heita má horfin, en léttari efni komin í stað þeirra. Framtíðin ber í skauti sér fjölbreyttari liti en að undanförnu og myndstruð efni, þetta má merkja af sýningum erlendis að undanförnu sögðu þau hjón. Greinilega er hér um að ræða vandpantaða vöru og betra að fara að öllu með gát. Þannig sögðu þau hjónin að þau hefðu verið með glugga- tjaldaefni á lager í 2 ár, gljá- andi viskósa (58%) og bómull (42%). Þetta efni gekk ekki út fyrr en nú nýlega að fólk tók að taka við sér, enda verðið sérlega hagstætt og efnið bæði gott og fallegt. „Húseigendur sem hingað koma vilja að hlutirnir gangi hratt og vel fyrir sig, þeir eru að leggja lokahönd á íbúðina og vilja að allt sé tilbúið þegar flutt er inn“, sagði Theódór. Og Magdalena bætir við undir lokin að þegar þau hjónin fluttu inn í sitt hús ný- byggt í Árbæjarhverfi, hafi þau orðið að láta sér nægja plast í gluggum til að byrja með! 19

x

Verzlunartíðindi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Verzlunartíðindi
https://timarit.is/publication/1845

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.