Verzlunartíðindi - 01.12.1984, Page 15
Magnús og Jóhannes sóttu fund
NORDISK KÖBMANNSKOMITÉE
Jóhannes Jónsson sæmdi þá Hans Sauro formann norsku kaup-
mannasamtakanna NKL og Arne Reisfelt framkvæmdastjóra
dönsku kaupmannasamtalanna gullmerki KÍ.
Nordisk Köbmandskomi-
tée heita óformleg samtök
matvörukaupmanna á Norö-
urlöndunum. Fundaö er ann-
aö hvert ár og sendir hver
þjóö þetta 6—7 fulltrúa,
nema ísland færri.
I lok október s.l. mættu
þeir Jóhannes Jónsson for-
maður félags kjötverslana
og Magnús E. Finnsson
framkvæmdastjóri Kaup-
mannasamtakanna á fund
samtakanna I Osló.
Fundarstaöurinn var Park
Hotel á Holmenkollen I 350
metra hæö yfir sjávarmáli.
Fyrsta kvöldiö var fulltrúum
m.a. sýnd ný sænsk videó-
mynd um feril dósa frá hyrjun
til enda. Greinilegt er að gos-
drykkir og öl i glerjum eru aö
hverfa. Sama þróun á sér
vissulega staö hér á landi
einnig. Sérstakar móttöku-
vélar eru í verslunum, þar
sem fólk selur dósirnar, sem
siðan eru pressaðar og seld-
ari brotamálm.
Á mánudegi var ákveöiö
fyrirfram aö fulltrúar sæktu
ráöstefnu eigenda stór-
markaöa í SAS-hótelinu
sem hundruð manna sátu.
Hlýddu menn þarna m.a. á
Ansgar J. Pedersen flytja
erindi um Samvinnu og stór-
rekstur, þar sem hann spuröi
sem svo, Hverjum er slikt i
hag? Komst Pedersen að
þeirri niöurstööu aö til aö
Norðmenn næðu bestum
árangri, ættu þeir aö stuðla
aö sem allra frjálsustum inn-
kaupum og gerast ekki háðir
einum eöa neinum þannig aö
of stórir aðilar næöu ekki
völdum á markaönum.
Á fundum Nordisk Köb-
mandskomitée haföi einn
fulltrúi hverrar þjóöar fram-
sögu um eitt tiltekiö mál.
Jafnframt gerði hann grein
fyrir efnahagsástandi i sinu
heimalandi og stööu versl-
unarinnar.
Fulltrúi Dana ræddi t.d. um
þá hörðu verðsamkeppni
sem þar i landi er háö. Stór-
fyrirtæki i Danmörku leika
þaö að selja undir innkaups-
veröi, sem gerir hinum minni
erfitt fyrir. Telja Danir aö
oliugróöi sé notaður í þvi
skyni aö gleypa markaðs-
hlutdeild.
Sviar sögðu frá störfum
EAN-nefndarinnar og
reynslu þeirra af stripumerk-
ingunni, sem lofar góöu eftir
því sem næst verður komist,
en reynslan er enn ekki löng
þar í landi. Komið hefur i Ijós
aö þetta kerfi losar kaup-
menn ekki viö venjulegar
verömerkingar, kúnnarnir
vilja þær líka.
Norömenn kvörtuöu und-
an þvi aö heildsalar þar í
landi gæfu leiðandi vöruverö
til hverrar búðar. Vilja kaup-
menn fá aö ráöa verðlagi
sinu sjálfir og berjast nú viö
þennan draug.
Ræðumaður Islands var
Magnús E. Finnsson. Ræddi
hann um kreditkortanotkun-
ina hér á landi. Á Norður-
löndum þekkjast kreditkortin
að sjálfsögðu, en ekki i þeim
mæli sem hér er orðiö. T.d.
þekkist ekki aö matvara' sé
keypt meö kreditkorti á þeim
kjörum sem hér gilda, enda
þótt kortin séu tekin i annarri
tegund verslunar. Þá er
þekkt viða nokkuð sem kall-
aö er debitkort, en þaö virkar
i raun eins og ávísun. Kaup-
maöurinn fær sitt fé þá strax.
í Finnlandi eru kreditkort
tekin en viðskiptavinurinn
greiðir 1,9% á mánuöi í
þóknun.
Milli funda og umræöna
var mikið spjallaö viö fulltrúa
hinna þjóöanna. Þeir Jó-
hannes og Magnús voru
spuröir í þaula um hvernig
hægt væri að innheimta
söluskattinn, þegar aðeins
hluti matvörunnar væri meö
söluskatti. Norömenn hug-
leiöa nú aö afnema Moms-
inn af matvöru og eru því
áhugasamirí þessu efni.
I veislu á mánudagskvöld í
lok ráöstefnunnar buöu
norsku kaupmannasamtök-
in til veislu þar sem formenn
og fulltrúar fluttu ræöur. Jó-
hannes Jónsson sæmdi viö
þetta tækifæri formann NKL,
Hans Sauro og fram-
kvæmdastjóra dönsku
kaupmannasamtakanna
Arne Reisfelt gullmerki
Kaupmannasamtaka Is-
iands.
Við sama tækifæri var
Magnús E. Finnsson heiðr-
aöur meö gullmerki norsku
kaupmannasamtakanna.
Aö loknum fundum héldu
þeir Jóhannes og Magnús á
fund formanns og fram-
kvæmdastjóra norsku K-
samtakanna. Þeir höföu
heyrt af starfseminni á ís-
landi og voru áhugasamir um
meiri fréttir af henni. K-ið i
Noregi er mjög einkennadi í
verslun vitt og breitt um það
stóra land og hefur svo veriö
um árabil. Norðmennirnir
buöu fram alla þá aðstoð
sem þeir geta veitt, buðust
m.a. til aö koma hingað og
gefa K-kaupmönnum góö
ráö.
Aö loknum störfum sínum í
Osló héldu þeir félagar til
Kaupmannahafnar i er-
indagjörðum Kaupmanna-
samtakanna.
Hans Sauro sæmir Magnús E. Finnsson gullmerki norsku kaup-
mannasamtakanna.
VERZLUNARTÍÐINDI
Yfirlitsmynd yfir fund Nordisk Köbmandskomitée í Osló.