Verzlunartíðindi - 01.12.1984, Síða 18
Starfsfólk Veggfóörarans—Málningar& járnvara í nýja verslunarhúsnæðinu íSíöumúla 4.
Málning &járnvörurog Vegg-
fóörarinn undir sama þaki:
Glæsileg húsakynni
aðSíðumúla4
Fyrir hálfri öld, um það
leyti sem verslanirnar Vegg-
fóðrarinn og Málning &
Járnvörur voru að hefja
starfsemi sína var versl-
unarsvæði Reykvíkinga allt
vestan Snorrabrautar. Eng-
um heilvita manni datt í hug
að stofna verslun í austur-
bænum, nema kannski mat-
vöruverslun.
Reykjavík hefur stækkað,
sem eðlilegt er, og þróunin
orðið sú að sérverslanir í
byggingavörum, innrétting-
um, teppum og þess háttar
þykja best settar í úthverfum
borgarinnar.
Einar Þorvarðarson
veggfóðrarameistari varð
hluthafi í Veggfóðraranum
hf. frá 1967 og keypti síðan
hlutafélagið allt rúmum ára-
tug síðar.
,,Það var ómögulegt að
vera þarna á Hverfisgötunni
í seinni tíð“ sagði Einar,
..umferðin er svo mikil í
miðbænum að það var erfitt
að ferma og afferma bíla,
svo var plássið nú ekki ýkja
mikið. Við vorum sem sagt
farin að hugsa okkur til
hreyfings, þegar okkur
bauðst að kaupa Málningu
& Járnvörur, sem við og
gerðum og hér erum við nú,
tvö gamalgróin fyrirtæki
sameinuð í nýju þægilegu
húsnæði við Síðumúlann."
Flest starfsfólkið í nýju
versluninni kemur úr gömlu
búðunum tveimur. Tveir
menn hafa þó starfað öðrum
lengur, Guðlaugur Stefáns-
son hefur unnið í Veggfóðr-
aranum í tuttugu og fimm ár
og Vigfús Helgason byrjaði í
Málningu og Járnvörum
sem sendill, fjórtán ára
gamall fyrir fimmtíu árum.
Einar segir að það sé ómet-
anlegt að njóta enn starfs-
krafta þessara manna, þeir
kunna svo sannarlega sitt
fag!
Þeir félagar eru allir sam-
mála um það að margt hafi
breyst í gegnum árin, vöru-
úrval er annað og betra en
áður enda engin innflutn-
ingshöft nú eins og til
dæmis á stríðsárunum. í þá
daga kom jafnvel fyrir að
biðraðir mynduðust, ef
fréttist af góðri sendingu.
Þetta er óþekkt í dag.
Einar Þorvarðarson sagði
að lokum að það væri að-
standendum Veggfóðrar-
ans og Málningar & Járn-
vara tilhlökkunarefni að
halda áfram að veita fyrir-
taks þjónustu í nýja hús-
næðinu að Síðumúla 4.
Hvaðtáknar
merki kaup-
mannsins?
Hvað táknar merki Kaup-
mannasamtaka Islands?
Þessi spurning kom upp á
síðasta aðalfundi Kaup-
mannasamtakanna og var
fleytt áleiðis til ritstjórnar
Verslunartíðinda. Að sjálf-
sögðu er okkur Ijúft að
greiða úr þessari spurningu.
Listamaðurinn bak við
merkið okkar er Gísli B.
Björnsson. Merkiö teiknaði
hann árið 1961, þegar hann
var að koma á fót eigin aug-
lýsingastofu í Þingholts-
stræti í Reykjavík. Auglýst
hafði verið samkeppni um
gerð merkisins og tók Gísli
sér penna í hönd og teiknaði
og teiknaði, hugsaði og
hugsaði. Að lokum gat hann
sent frá sér merki, sem hann
var ánægður með. Einmitt
þetta merki hlaut náð fyrir
augum dómnefndar og var
valið einkennismerki sam-
takanna.
„Verslunarguðinn Merkúr
sem getið er í grískum
sögnum og rómverskum er
sagður hafa haldið á fjöðr-
uðum staf, sem ég notaði
sem ,,symból“ fyrir verslun-
ina í landinu“, sagði Gísli
þegar við ræddum við hann.
..Þetta eru þrjár æðar eða
línur sem verða að einni
þegar neðar dregur. Allar
línurnar lenda í hring, sem
aftur er ..symból" fyrir ein-
ingu.
Og vel að merkja, menn
eru mjög ánægðir með
merkið og hafa alla tíð verið.
Það er greinilegt að það á
eftir að þjóna samtökunum
áfram.
Núna hefur verið prentað
á plastmiða merki samtak-
anna sem við vonum að allir
kaupmenn innan samtak-
anna lími upp á áberandi
stað. Á merkið er letrað:
MERKI KAUPMANNSINS,
— ÞVl MÁ TREYSTA.
HagkaupíHúsi
verslunar?
< Það er fátt um verslanir í
Húsi verslunarinnar enn
sem komið er. Á jarðhæð
austanverðri eru nú til húsa
vöruskemma Eimskips.
Rætt hefur verið um útleigu
á þessu húsnæði til versl-
ana. Hagkaup h.f. hefur
óskað eftir að fá þetta hús-
næði leigt og munu þeir
hafa í hyggju að setja þar
upp IKEA-Verslun í marg-
faldri þeirri stærð, sem þeir
bjóða nú upp á í verslun
sinni í Skeifunni.
Ingibjörn
kaupir, —
og byggir
• Ingibjörn Hafsteinsson í
Hamrakjöri stendur í stór-
ræðum þessa dagana.
Hann hefur keypt Kjötbúð
Suðurvers við hlið versl-
unar sinnar í Suðurveri.
Ekki nóg með það, — Ingi-
björn er byrjaður að byggja
verslun í Breiðholtinu ...
o
Matvaran
skiptir um
eigendur
• Matvöruverslanir ganga
kaupum og sölum nú sem
fyrr. Við höfum frétt að SS
sé núna að ganga frá sölu á
versluninni að Bræðra-
borgarstíg.
Þá er Daníel búinn að
selja Arnarhraun í Hafnar-
firði til Jóns M. Guðmunds-
sonar. Loks vitum við til að
Már E.M. Halldórsson er
búinn að selja verslun sína
Teigakjör.
18
VERZLUNARTÍÐINDI