Verzlunartíðindi - 01.12.1984, Síða 21
Á árinu sem nú er aö
renna sitt skeið á enda varö
úrsmiðavinnustofa Franch
Michelsen sjötiu og fimm
ára.
Fyrirtækið var stofnað á
Sauðárkróki af dönskum
úrsmiði, Jörgen Frank Mich-
elsen. Þótt ótrúlegt megi
virðast voru á þessum tima
tvær aðrar úrsmiðavinnu-
stofur á Sauðárkróki, ibúar
staðarins voru aðeins um
fjögurhundruð.
Af Króknum til Reykjavíkur
meö viökomu í Hverageröi
Jörgen Frank var tæp
fjörutiu ár á Króknum en
flutti starfsemina þá til
Reykjavikur, með viðkomu i
Hveragerði. Hann starfaði
við iðnina til æfiloka en hann
lést árið1953.
Tveir nemar voru i læri hjá
Jörgen Frank, Guðni A.
Jónsson, sem lengst af hafði
vinnustofu i Austurstræti 1,
og elsti sonur Jörgens
Franks, Franch, sem að
loknu námi hjá föður sinum
fór i framhaldsnám til Kaup-
mannahafnar. Nam hann við
danska úrsmiðaskólann og
útskrifaðist með mjög hárri
einkunn. Franch vann svo i
tvö ár hjá Karl Jonsen kon-
unglegum hirðúrsmiði i
Kaupmannahöfn, áður en
hann hélt heim til starfa hjá
föðursínum.
Núna er það Frank Úlfar,
sonur Franchs, sem sér að
mestu um daglegan rekstur
verkstæðisins og verslunar-
innar að Laugavegi 39.
Bestu úr heims geta kostaö
milljónir
Blaðamaður Verslunartið-
inda átti spjall við þá Michel-
senfeðga fyrir skömmu.
Við spurðum Franch fyrst
hvort ekki hefðu orðið miklar
breytingar á faginu siðan
hann hóf nám á fjórða ára-
tugnum.
„Jú breytingarnar hafa
orðið miklar, sérstaklega
með tilkomu Quartz úranna.
Áður fyrr voru öll úr mekan-
isk og þá þurfti oft að smiða
varahluti í þau. Nú er þetta
allt i tilbúnum einingum."
— Eru ekki quartz úrin
Starfsfólk og eigendur: Franch, Guöný Jónsdóttir, kona hans,
Elín Hanna, Guörún, Lilja og Frank Úlfar.
JÖRGEN FRANK MICHELSEN, - stofnaöi fyrirtækiö á Sauðár-
króki í samkeppni við tvo úrsmiöi aöra.
Þrír ættliöir, Frank Úlfar, Frank Magnús yngsti tæpra 7 ára og
tilvonandi úrsmiöur (?) og Franch Michelsen.
miklu betri en þau mekan-
isku?
„Þau eru nákvæmari, en
þó eru bestu úr heims ekki
quartz, til dæmis stoltið okk-
ar, Rolex úrin."
— Hvað getið þið sagt
okkur um Rolex úrin?
„Þau eru hreinlega bestu
úr í heimi. Og sennilega dýr-
ust lika, geta kostað allt upp
i nokkrar milljónir. Þau ódýr-
ustu kosta rúmlega tuttugu
þúsund. Þessi úr voru fyrst
framleidd árið 1905, en rúm-
um tuttugu árum seinna
framleiddu Rolex fyrsta
vatnshelda úrið. Ári seinna
synti enska stúlkan Merced-
es Gleitze með úrið yfir
Ermasundið. Fleiri frægir
kappar báru Rolex úr er þeir
unnu afrek sin og sönnuðu
þar með ágæti úrsins. Árið
1935 vann sir Malcom
Campbell það afrek að keyra
bifreið á 484 km hraða pr.
klukkustund. Eftir á lét Sir
Campbell hafa það eftir sér
að það merkilegasta við
þetta allt saman hafi verið
Rolex úrið hans. Það gekk
eins og ekkert hefði i skorist
eftirhraðaksturinn."
Þess má geta að Rolex
verksmiðjurnar hafa fyrir sið
að færa fólki sem eitthvað
hefur sér til frægðar unnið úr,
til dæmis gáfu þeir Frú Vig-
disi forseta okkar eitt slikt í
fyrra, og er mynd af henni
með úrið i safni Rolex i Sviss.
Úr eru enginn munaður
Þeir Michelsen feðgar
versla að sjálfsögðu einnig
með ódýrari úr til dæmis
flytja þeir inn Microma úrin
sem eru svissnesk.
— Lokaspurningin var
hvort úr væru munaður i dag.
„Nei, armbandsúr er
nauðsyn. Þau eru til í öllum
verðflokkum, ódýr úr sem
henta vel til daglegs brúks,
— og svo dýrari sem menn
nota þá spari sem skrautgrip
og nytjagrip í senn. Fyrir
kemur að við seljum úrvals
Rolex-úr sem kosta 60 til 80
þúsund krónur. Það er sjald-
gæft, en gerist þó. Eigendur
slíkra úra eru líka með mikla
völundarsmið á úlnlið sér.“
VERZLUNARTIÐINDI
21