Verzlunartíðindi - 01.12.1984, Page 22
108. gr. Hver, sem hefur í frammi
skammaryrði, aðrar móðganir í orðum eða
athöfnum eða ærumeiðandi aðdróttanir við
opinberan starfsmann, þegar hann er að
gegna skyldustarfi sínu, eða við hann eða
um hann út af því, skal sæta sektum, varð-
haldi eða fangeísi allt að 3 árum. Aðdrótt-
un, þótt sönnuð sé, varðar sektum, ef hún
er borin fram a ótilhlýðilegan hátt. —
Urstjórnar-
skránni
Teikning:
Rósa Ingólfsdóttir
Nýtt verslunarhús við Laugaveg
Sælgætisátið jókst um
80 tonn milli ársfjórðunga
< Fimm verslanir verða til
húsa að Laugavegi 63 þar
sem gullsmiðirnir Jón og
Óskar eru að reisa stórhýsi á
fjórum hæðum. RAGNAR
flytur af Barónsstígnum, en
þar hefur hann gegnum árin
skapað sér ágætt versl-
unarpláss og vinsælt. Þarna
í nýja húsinu verður líka
Bernharð Laxdal, sem kem-
ur úr Kjörgarði, Kendal flyt-
ur úr verslunar- og skrif-
stofuhúsnæðinu að Hverfis-
götu 111 auk þess sem
þarna verður ný snyrtivöru-
verslun og tískubúð sem
flytur úr Keflavík í hjarta
Reykjavíkur.
Athyglisverð könnun fer
fram ársfjórðungslega á veg-
um Félags íslenskra iðnrek-
enda á markaðshlutdeild inn-
lends iðnvarnings hér á landi.
Nýlega birtist niðurstaða
könnunar fyrir fjórar iðn-
greinar á 2. ársfjórðungi
1984.
KAFFIBRENNSLA á við
mikla samkeppni að etja
utanlands frá eins og kunnugt
er. Markaðshlutdeild inn-
lendu framleiðendanna er
engu að síður 80,4% af neysl-
unni, var yfir 90% fyrir 6 árum
síðan. Eilítið syrti í álinn hjá
kaffimönnum vorum miðað
við fyrstu 3 mánuði ársins,
minnkun um 1,5% af heildar-
neyslu. Miðað við framboð
kaffis hlýtur þessi hlutdeild
okkar manna þó að teljast
mjög vel viðunandi.
HREINLÆTISVARA minnk-
aði hinsvegar um 2,9% miðað
við sama ársfjórðung í fyrra,
úr 63,5 í 60,6% alls markað-
arins. Könnunin náði aðeins
til fasts og fljótandi þvotta-
efnis og gefur þar af leiðandi
ekki heildarmynd af íslensk-
um hreinlætisvörumarkaði.
MÁLNING innlendra fram-
leiðenda virðist eiga minna
fylgi að fagna en fyrr. Árið
1980 áttu innlendir framleið-
endur 65,8% markaðarins en
á vormánuðum í ár var mark-
aðshlutdeildin ekki nema
54,4%. Árið 1983 í heild var
hún 57,5%.
SÆLGÆTI virðist stöðugt
þyngra á metunum sem sölu-
vara. Að vísu minnkaði mark-
aðshlutdeildin hjá innlendu
sælgætisframleiðendunum á
2. ársfjórðungi þessa árs og
er nú 45,5% af heildarsölunni,
var 49,3% á sama ársfjórð-
ungi 1983. Allt árið 1983
reyndist markaðshlutdeild-
inni nær jafnt skipt milli er-
lendra og innlendra framleið-
enda, innlenda sælgætið átti
þá 49,5% af markaðnum. Hitt
er svo merkilegt að neyslan á
sælgæti hefurvaxið mjög milli
1. og 2. ársfjórðungs 1984, —
eða um 80 tonn, þar af er
hlutur innlendu framleiðend-
anna 22 tonn í aukningunni.
22
VERZLUNARTÍÐINDI