Verzlunartíðindi - 01.12.1984, Síða 27
Látið innbrotsvarnir fá
heimasímann, kaupmenn!
Mikið hefur borið á inn-
brotum i verslanir og fyrir-
tæki undanfarið. Grétar
Norðfjörð, yfirmaður inn-
brotavarna lögreglunnar
bað Verslunartiðindi að
koma þeim skilaboðum til
kaupmanna að þeir gengju
vel frá gluggum og hurðum
áður en vinnustaður er
yfirgefinn að kvöldi.
Þá sagði Grétar að
kaupmenn ættu að gefa
innbrotavörnunum upp
heimasima sinn. Oft er það
mjög bagalegt fyrir lög-
regluna að geta ekki haft
smband við kaupmanninn,
ef eitthvað kemur upp á. Til
dæmis sjá lögreglumenn á
eftirliti oft ástæðu til að
hringja í kaupmann, þegar
þeir sjá að hann hefur
gleymt gluggum galopn-
um.
Sem sagt, kaupmenn,
látið Grétar vita um heima-
simann!
ík 1 IV - t 1 f* i
11 Of HpSj
K-kaup-
menn
áfundi
K-kaupmenn hafa nú
starfað í ár, — undirtektir
almennings ótvíræðar,
mjög góðar. Greinilegt er
að þeir kaupmenn, sem
rækt hafa lagt við K-starfið
hafa náð til viðskiptavin-
anna.
K-kaupmenn hafa iðu-
lega hist og spjallað sam-
an um málefni sín. Hér er
mynd frá einum þeirra
funda.
VERZLUNARTÍÐINDI
27