Verzlunartíðindi - 01.06.1987, Side 17
nútima verslun. Þar sem sú
stærsta og virtasta var þá,
er nú rekin dún og fiður-
hreinsun".
ÓPERSÓNULEGRI
VIÐSKIPTI
„Viðskiptin eru lika allt
ööru vísi í dag, ekki eins
persónuleg. i gamla daga
keypti fólk af framleiðand-
anum, enda þekkir maður
marga frá þessum tímum.
Ég hætti að framleiöa hús-
gögn 1982 og það er nú svo
að maður kynnist fólki ekki
eins mikið þegar reksturinn
er orðinn þetta stór og ekki
þarf að ræða við hvern við-
skiptavin.“
i dag verslar Hörður á
500 fermetra gólfplássi á
góðum stað i borginni. Lag-
erhúsnæði hefur hann upp
á annað eins. En húsnæðið
er að verða of litið, segir
Hörður okkur. Fólk vill fá að
skoða meira úrval en það
sem rúmast á 500 fermetr-
um.
„Ég var ákveðinn i því al-
veg frá byrjun að vanda vel
til allra hluta. Ég framleiddi
aðeins úr bestu efnum og
bauð fólki 10 ára ábyrgð á
öllu, sem ég gerði. Það
reyndist i besta lagi, því
aldrei féll á mig ábyrgð.
Þegar ég fór að flytja inn
húsgögn frá ýmsum lönd-
um, þá ákvað ég að kaupa
aöeins inn vöru frá miðl-
ungs gæðum og upp í það
allra vandaðasta, það á
einhvern veginn ekki við
mig að selja nema vandaða
vöru, sem ég veit að við-
skiptavinirnir verða ánægðir
með. Þetta hefur gefið góða
raun. Auðvitað er mikið um
það að fólk vill kaupa vand-
aða vöru á lágu verði. Þetta
fer þó sjaldnast saman eins
og gefur að skilja. Það er
beinlínis hættulegt að gefa
fólki i skyn að það sé að
kaupa vörugæði fyrir gjaf-
verð“.
FÓLK VEIT LÍTIÐ
UM GÆÐI
HÚSGAGNA, MEIRA
UM BÍLA
„Annars er það almennt
þannig að fólk veit mun
meira hvað það er að
kaupa, þegar um er að ræða
bíl. Þá veit það nokkuð vel i
hverju verðmunurinn er
fólginn. Hinsvegar veit það
minna, þegar að húsgögn-
um kemur. Tökum til dæmis
leðurhúsgögn. Leöur er að
sjálfsögðu í mörgum gæða-
flokkum og gæðin liggja i
svo mörgu. Ferillinn hefst
strax við slátrun, jafnvel á
skepnunni lifandi. Virkilega
gott leður er auðvitað mun
dýrara en það sem er haldið
einhverjum göllum og hefur
flokkast i lakari gæða-
flokka. Ending og framtiöar
áferð fer siðan eftir því
hversu gott efnið er“.
ÍSLENSK
BÓLSTRUN ÞARF
AÐ SÆKJA SIG
Viðskipti siðari ára hafa
breyst verulega i hinum
vestræna heimi. Þau eru
frjálsari en fyrr. Fyrir kaup-
andann skiptir það ekki
verulegu máli hvort hlutur-
inn er framleiddur i Belgiu
eða i Bolungarvík svo við
tökum dæmi. Bara að hann
henti vel og sé á viðráðan-
legu verði. Það er Ijóst að
húsgagnaiðnaður Islend-
inga hefur átt nokkuð undir
högg að sækja á undan-
förnum árum, þegar hús-
gögn eru flutt inn frá ótal
mörgum löndum, þar sem
mikil tækni er viðhöfð í
framleiðslunni. Við ræddum
þetta atriði við Hörð.
„Ég hef siðustu árin að
mestu leyti flutt inn hús-
gögn, en einnig læt ég fram-
leiða fyrir mig hér innan-
lands. Ég er nú þeirrar
skoðunar að okkar bólstrar-
ar geta gert mun betri hluti
og eignast þannig stærri
hluta af innanlandsmark-
aðnum en nú er. Hugsaðu
þér allan þann fjölda ungs
fólks, sem er að hefja sam-
búð á hverju ári, mér skilst
að giftingar á ári séu um
fjögur þúsund. Og öll heimili
þurfa húsgögn. Fólk er líka
stöðugt að endurnýja hús-
gögn sín. Þetta er hreint
ekki litið.
Það sem minir menn,
bólstrararnir, þurfa að gera,
er að fylgjast miklu betur
með. Það gengur til dæmis
ekki að hafa alla sina
vitneskju um ákæði og
bólstrunarefni frá heildsöl-
unum, sem ekki hafa neina
sérþekkingu i faginu.
Bólstrararnir þurfa að fá
meiri menntun og sýna
meiri áhuga fyrir starfinu.
í vetur var haldið nám-
skeið á vegum Iðntækni-
stofnunar iðnaðarins að
undirlagi Meistarafélags
bólstrara. Þar var tekin fyrir
flokkun og meðferð leðurs
ásamt leiðbeiningum til
bólstrara um saumaskap,
gerð nála og saumavéla
viðvíkjandi framleiöslu á
leðurhúsgögnum.
Þetta var fróðlegt og lær-
dómsrikt námskeið. Þarna
mættu mest innflytjendur
leðurs og húsgagnakaup-
menn, en bólstrarar mættu
illa.
í faginu hefur margt
breyst, nú er það tækni og
nútima saumavélar sem
skipta sköpum fyrir þennan
iðnað. Þegar menn vakna
og fara að keppa í alvöru við
erlenda starfsbræður, þá
óttast ég ekkert um mina
menn, en þeir verða að
mennta sig, sjá meira, víkka
sjóndeildarhringinn til að
verða samkeppnishæfir",
sagði Hörður Pétursson að
lokum.
JónasíDögg látinn
JÓNAS SIGURÐUR
JÓNSSON, kaupmaður í
Dögg, varð bráðkvaddur
laugardaginn 30. mai s.l.
Hann varð tæplega sjötugur
að aldri. Jónas kom mikiö
við sögu í félagsmálastarfi
Kaupmannasamtakanna.
Hann var formaður ASKI frá
upphafi, og sat lengi í stjórn
félags blómaverslana.
Margt annað vann hann
innan samtakanna og var
manna fúsastur til starfa.
Hann var útlærður skrúð-
garðyrkjumaður og starfaði
lengi að iðn sinni auk þess
sem hann rak verslanir.
VERSLUNARTIÐINDI
17