Verzlunartíðindi - 01.06.1987, Page 22
að snara skammstöfuninni
yfir á móðurmálið,
-Fjölskyldumarkaðurinn
eða bara Félag matvöru-
kaupmnna.
Nú, F.M. keðjan byrjaði
fyrir 12 árum með 5 búðir i
austurhluta Noregs. i dag
eru búðirnar 140 og velta
nær 4 milljörðum ísl. króna.
Keðjan starfar i nánum
tenglsum við Kefas.
F.M. keðjan gerir ýmsar
kröfur til bátttakenda. Vesl-
anir verða að hafa sama út-
lit, í rauðu og gulu, líkum
Shell-litunum. Þeir nota
samskonar skilti, samhæfð-
ar auglýsingar, samskonar
burðarpoka, sameiginleg
staðbundin auglýsingablöð
og sama stíl á innréttingum.
Áhersla er lögð á góða
bjónustu og gott vöruval,
ásamt reglulegum tilboðum,
sem byggjast á hagstæðum
innkaupum frá Köff og
Kefas.
„Með samstarfi styrkjum
við hvern annan og tryggj-
um atvinnu fólks. Með
samskonar útliti búðanna
gefum við viðskiptavinum til
kynna samstarf okkar, hann
veit að i versluninni fást
góðar vörur á góðu verði og
að bjónustan er góð“, segja
beir hjá Kefas.
Meðalverslun i F.M-.keðj-
unni er með veltu upp á ca
60 milljónir isl. króna á ári.
Hún greiðir ca. 60 þúsund
norskar krónur i sameigin-
legan kostnað og auglýs-
ingar, - en fær á móti
sérstakan FM-afslátt, árs-
bónus, auglýsingaafslátt,
og afslátt af rekstrarvörum
og tryggingum, sem vegur
þyngra, því hagnaður með-
albúðarinnar af samstarfinu
verður i kringum 15 þúsund
norskar krónur á ári. Til við-
bótar kemur hagnaður af
sérstökum partíinnkaupum.
Þá er ótalinn ómælanlegur
hagnaður af samstarfinu i
heild, sem er mest virði fyrir
hvern og einn kaupmann.
Íslensku þátttakendurnir
voru sammála um að F.M.
væri hin rétta fyrirmynd fyrir
íslenska matvörukaup-
menn, af henni mætti læra
mikið.
Hans Sauro hjá Daglig-
vareforbundet sagði í við-
tali: „F.M keðjan er ein sú
besta hér og er vaxandi,
meðal annars vegna þess
að kaupmenn stjórna henni
sjálfir og eiga einnig lager-
inn hjá Kefas-Köff“.
NORSKU K-SAMTÖKIN
Að sjálfsögðu voru hin
norsku K-samtök heimsótt.
Þar tók Sverre Jakobsen
framkvæmdastjóri á móti ís-
lendingunum ásamt full-
skipaðri stjórn samtakanna.
K-samtökin taka 0,1 til
0,5% af umsetningu i þjón-
ustugjald og 2,3% af verði
tilboðsvara. Þeir hafa 110
búðir og velta um 4,5 millj-
örðum isl. króna á ári, eða
6% af markaðnum. Sam-
tökin tryggja greiðslur
vegna vörukaupa úr sam-
eiginlegum sjóði sinum.AII-
ar vörur eru sendar beint frá
seljanda til kaupmanns.
Ktilboðin standa í eina viku
með ferskvöru, en 2 og jafn-
vel 3 vikur með þurrvöru.
Algengt er að safnað sé
saman pöntunum til að-
kaupa tiltekin vöru„partí“,
ýmist með beinu tilboði eða
samningi. Rætt er um stofn-
un fjárfestingarsjóðs til að
kaupa og endurleigja versl-
unarhúsnæði með það fyrir
augum að hafa áhrif á
markaðshlutdeild K-sam-
takanna.
Þar sem magnafsláttar-
kerfi er mjög ráðandi, þ.e.
ársbónus, þá leggja þeir hjá
K-samtökunum norsku
saman öll viðskipti allra K-
búðanna og fá þannig
hæsta mögulegan afslátt
fyrir samtökin i heild. Þeirfá
afslátt bæði af innfluttri
vöru og eins innlendri fram-
leiðslu, en flytja ekki inn
sjálfir. Mjólkina fá þeir
lánaða i 15 daga.
Fram kom að flestir K-
kaupmenn hagnast á þessu
samstarfi, afsláttur þeirra
greiðir kostnaðinn við þátt-
tökuna og riflega það. Árs-
afsláttur kemur beint til
K-samtakanna og deilist
þaðan til félagsmanna, en
þegar vörur eru afgreiddar
beint til verslana kemur af-
sláttur á hverja nótu.
Í norsku K-samtökunum
eru engir stórmarkaðir.
ÞRÍR
VASKIR
Aðalfundurinn í Hveragerði og árshátíðin að honum loknum tókust í alla staði hið besta,
fundarstaðurinn að Hótel Örk til fyrirmyndar og árshátíðin sömuleiðis.
Mikil vinna hafði verið unnin fyrirfram af starfsliði Kaupmannasamtakanna, ekki síst
þeim þrem galvösku dánumönnum, sem hér sjást leggja á ráðin, þeim Magnúsi E. Finns-
syni, Guðna Þorgeirssyni og Daníel Björnssyni. Allt þeirra skipulag gekk upp og fundur og
hátíö til mikillar fyrirmyndar.
22
VERSLUNARTIÐINDI