Verzlunartíðindi - 01.06.1987, Page 28
Victor VPC II - nú er harði diskurinn 30 Mb í stað 20 Mb áður, en verðið er óbreytt.
LEYNDARMÁLIÐ
að baki góðri tölvu er hugvit, tœkni og góð þjónusta
VICTOR og Einar J. Skúlason hf. eru fyrirtœki sem þú getur treyst
Til að góð tölva standi undir nafni þarf hún að hafa að
baki samhent þjónustulið sem bregst fljótt og vel við
ófyrirsjáanlegum vandamálum, sem skotið geta upp
kollinum á meðan fólk er að ná tökum á tækninni.
Victor einmenningstölvurnar hafa fyrir löngu sannað
ágæti sitt. Reynslan sýnir að þær eru vandaðar, sterk-
byggðar og hafa lága bilanatíðni. Síðastliðna 9 mánuði
hafa liðlega 1500 nýjar Victor tölvur verið teknar í
notkun hér á landi og segir það meira en nokkur orð
um álit íslenskra athafnamanna á Victor. Ánægðir við-
skiptavinir eru okkar bestu meðmæli.
Þjónustudeild Einars J. Skúlcisonar hf. hefur á að skipa
þaulreyndu og vel menntuðu starfsfólki sem leggur
metnað sinn í að veita nákvæmar upplýsingar og
trausta þjónustu.
Victor tölvan er mjög ríkulega útbúin. Hún hefur
vinnsluminni í fullri stærð, þ.e. 640 kb., raunverulegan
16 bita örgjörfa (8086) og er ákaflega hraðvirk. Victor
fylgist vel með nýjungum og kappkostar að vera leið-
andi í þróun einmenningstölva.
VICT0R KYNNIR NÝJUNGAR:
★ NÝTT LYKLAB0RÐ ★ STILLANLEG KLUKKUTÍÐNI
★ NÝTT STÝRIKERFI: MS D0S 3.2 4.77 mhz / 7.16 mhz (turbo)
★ NÝR 30 Mb. HARÐUR DISKUR ★ NÝR FLATUR EINLITASKJÁR
Kynntu þér Victor nánar - það borgar sig.
Einar J. Skúlason hf.
Grensásvegi 10, sími 68-69-33
augljós