Ársrit um starfsendurhæfingu - 2022, Qupperneq 31
VIRK
Gott starf sem VIRK er að vinna
Eruð þið til í að taka fleiri í vinnu frá VIRK?
„Ég á von á því að ef við værum spurðir hvort
við hefðum tök á að fá inn fleiri einstaklinga
frá VIRK þá myndum við bara segja já,
ekkert mál. Við værum til í að brúa bil í svona
sex til átta vikur meðan viðkomandi væri að
leita sér að annarri vinnu til langframa. Það
fólk gæti þannig byrjað að mæta til starfa og
gera verkefni samkvæmt þeirri nálgun sem
VIRK hefur verið með í svona tilvikum.
Það er gott starf sem VIRK er að vinna. Það
er mikill hraði í samfélaginu og margir sem
lenda tímabundið í erfiðleikum af þeim
sökum, standast ekki álagið til langframa. Þá
er mikilvægt að hafa kerfi sem grípur fólk. Ég
held að það sé auðveldara nú en áður fyrir
stofnun eins og VIRK að vaxa, það er meiri
skilningur í samfélaginu á svona starfi.“
Eruð þið enn með fólk frá VIRK í vinnu?
„Já einn aðili frá VIRK starfar hjá okkur
enn. Hann fylgist meðal annars með
hitastigi í stórum byggingum, svo sem hvort
bakrásarhiti í stórum byggingum sé yfir 40
gráðum. Sé svo er verið að sóa orku í þeirri
byggingu – of mikið af heitu vatni fer út úr
húsinu.
Heimurinn er að breytast að því leyti að
það er auðveldara að setja upp búnað til að
fylgjast með og mæla. En það þarf að hafa
ákveðinn grundvallarskilning og þekkingu til
að túlka niðurstöður mælinga rétt. Allflestir
af þeim níu sem eru fastráðnir hér hafa lært
rafmagnstæknifræði, hafa lokið iðnskóla
og háskólaprófi. Eðli málsins vegna erum
við ekki með neitt mjög stórt húsnæði því
mælingarnar fara fram utanhúss. Við erum
þó með verkstæði. Þar setjum við saman
búnaðinn áður en hann fer út úr húsi og er
komið fyrir á mælingastað.“
Gæti Vista verkfræðistofa tekið inn marga
nýja starfsmenn?
„Nei, Vista verkfræðistofa getur ekki tekið
inn marga í hlutastarf í einu. Einn yrði að taka
við af öðrum í styttri tíma og þeir þyrftu að
sinna verkefnum sem auðvelt er að útskýra
og koma frá sér. Það krefst orku að hugsa
um fólk og styðja það. Maður gerir engum
Ég held að það
skipti miklu máli
fyrir þann sem
er að fóta sig á
vinnumarkaðinum á
ný að einhver „taki
hann að sér“, verði
eins konar mentor.
greiða með því að taka hann inn til starfa en
hafa svo engan tíma til að sinna honum. Þá
líður fólki einfaldlega illa og finnst það ekki
vera að skila neinu.“
Þú segir að þið getið mælt næstum allt –
gætuð þið kannski mælt einhvers konar
árangur hjá VIRK?
„Við gætum til dæmis mælt hve margir
ganga út og inn úr húsnæði VIRK – þannig
gætum við sagt svolítið til um það hversu
umfangsmikil starfsemin er. Við gætum
auðvitað líka mælt hve margir komast
út á vinnumarkaðinn og þar fram eftir
götunum. Við gætum kannski mælt hverju
stytting vinnuvikunnar er að skila með
spurningalistum. Hvaða áhrif hefur þetta
á líðan fólks. Það er reyndar ákveðinn
samfélagslegur mælikvarði ef það fjölgar
sífellt í VIRK. Hvað er þá verið að gera rangt
í samfélaginu?“
Hafið þið einhvern tíman bent einhverjum
starfsmanni ykkar á þjónustu VIRK?
„Ekki ennþá, en við eigum það inni, vonandi.
Fólk á miðjum aldri er gjarnan með börn,
unglinga, heimili, aldraða foreldra og sinnir
atvinnu – og svo þarf það sjálft að lifa lífinu.
Allt er þetta dálítið vandasamt í æ flóknara
samfélagi. Til dæmis er vanmetið það álag
að hugsa um aldraða foreldra mitt á milli
stofnana í viðbót við allt hitt. En á hinn
bóginn er líka hollt og gott að sinna sér
nákomnu fólki.“
Texti: Guðrún Guðlaugsdóttir
Mynd: Lárus Karl Ingason
VIRK Starfsendurhæfingarsjóður fagnar 15 ára afmæli á árinu
og í tilefni af því mun VIRK m.a. standa fyrir ráðstefnu í Silfur-
bergi, Hörpu, þar sem fókusinn verður settur á endurkomu
einstaklinga inn á vinnumarkað eftir veikindi eða slys og hvað
fyrirtæki og stofnanir geti gert til þess að auðvelda það ferli.
Boðið verður upp á fjölbreyttan hóp íslenskra og erlendra fyrir-
lesara á ráðstefnunni, aðalfyrirlesarar verða hinn kanadíski
Dr. Emile Tompa og hin hollenska Dr. Sandra Brouwer.
Dr. Emile Tompa
Framkvæmdastjóri rannsóknarmiðstöðvar um stefnumótun í atvinnumálum
einstaklinga með skerta starfsgetu (Centre for Research on Work Disability
Policy (CRWDP)) sem er þverfaglegt framtak um framtíðarstefnumótun
í atvinnumálum í Kanada. Hann er einnig prófessor við hagfræðideild
McMaster háskólans í Kanada. Innlegg hans verður um þróun á
atvinnutækifærum fyrir einstaklinga með skerta starfsgetu með því að byggja
upp getu eftirspurnarhliðar / vinnuveitenda.
Dr. Sandra Brouwer
Prófessor í vinnulæknisfræði við heilbrigðisvísindadeild Groningen háskólans
í Hollandi. Innlegg hennar verður um hlutverk vinnuveitenda í Hollandi í
endurkomu til vinnu ferlinu hjá einstaklingum sem hafa verið fjarverandi
vegna veikinda.
Nánari upplýsingar á virk.is
Ráðstefna í Silfurbergi í Hörpu
miðvikudaginn 31. maí
kl. 9.00-15.00
AUÐVELDUM
ENDURKOMU
TIL VINNU
30 31virk.is virk.is