Ársrit um starfsendurhæfingu - 2022, Blaðsíða 40
VIÐTAL
VIRK Á EKKI AÐ VERA
LEYNDARMÁL
JÓN ÞÓR JÓNSSON
Við Jón Þór setjum okkur inn í lítið tölvuherbergi til þess að
ræða reynslu hans af þjónustunni hjá VIRK og það sem
leiddi til þess að hennar varð þörf.
„Ég er lesblindur. Ég hef aldrei lesið bók, bara fyrirsagnir í blöðum.
Og búið til kannski allt aðra sögu en fyrirsögnin gefur til kynna. Ef ég
skrifa tölvupóst þá skrifa ég kannski sama orðið þrisvar og tek svo
ekki eftir því fyrr en ég fer að lesa yfir. Ég sé töluvert í myndum en
eftir að Storytel kom hef ég hlustað talsvert á hljóðbækur. Um þetta
vissi ég ekki fyrr en þjónustuaðili hjá VIRK kom mér í greiningu og ég
fékk lyf sem gera mér lífið léttara,“ segir Jón Þór.
NÆSTUM VORLEGT ER UM AÐ LITAST UM Í
VERSLUNINNI GÁP VIÐ FAXAFEN. REIÐHJÓL
AÐ STREYMA INN SEM GEFA FYRIRHEIT
UM BETRI TÍÐ MEÐ BLÓM Í HAGA EINS OG
ÞAR STENDUR. VIÐ ERUM KOMIN TIL AÐ
RÆÐA VIÐ JÓN ÞÓR JÓNSSON SEM LOKIÐ
HEFUR ÞJÓNUSTU HJÁ VIRK OG STENDUR
NÚ VAKTINA Í ÞESSARI VERSLUN HRESS OG
SPRÆKUR.
Tekist á við áfallasögu
Hvað varð til þess að þú leitaðir til VIRK?
„Um er að ræða áfallasögu sem hófst 2004.
Þá missti konan mín fót fyrir neðan hné
vegna sjaldgæfs sjúkdóms. En það fór eins
vel og mögulegt var. Ég var að vinna hjá
Samskipum á þessum tíma, hafði byrjað
þar árið 2000. Ég fékk góðan stuðning þar
í þessu veikindaferli konunnar minnar. Ekki
veitti af, samanlagt eigum við fjögur börn, ég
og konan mín.
Um þetta leyti keyrði ég flutningabíl en árið
2005 var mér boðin staða sem akstursstjóri
hjá Samskipum við að stýra akstri
flutningabíl á leiðarkerfi Samskipa. Þetta
er krefjandi starf og við sinntum því tvö. Ég
hafði mikið að gera, byrjaði sjö á morgnana
og var að langt fram á kvöld fyrsta árið. Allt
gekk ágætlega fram að hruni. Þá dró mjög
úr akstri úti um land líkt og allri annarri
starfsemi í samfélaginu. Það leiddi til þess að
sagt var upp fólki og verktökum. Sá sem var
með mér að stýra þessari deild fór í annað,
en ég var látinn halda áfram einn. Samhliða
því var mikið um að vera í einkalífinu.
Ég bjó við mikið stress. Síminn var að hringja
á nóttunni og þar fram eftir götunum, út af
bílum og það urðu slys og eitt og annað.
Og alltaf þurfti maður að standa sína plikt
morguninn eftir. Rekstrarstjórinn á deildinni
hætti og ég fékk verkefnin hans til mín.
Þetta gekk svona til ársins 2015, þá var
það að ég sat fyrir framan tölvuskjáinn í
vinnunni og eitthvað gerðist í höfðinu á
mér. Samstarfsfélagi minn sagði: „Ég hef
aldrei sé mann svona hvítan á ævinni.“ Það
láku tár niður kinnar mínar, ég klæddi mig í
jakkann og gekk út. Álagið var svo mikið að
ég réð ekki við þessar aðstæður lengur.
Ég talaði við starfsmannastjórann sem
sendi mig til trúnaðarlæknis fyrirtækisins.
Hann skoðaði mín mál og sagði svo: „Jón
minn, mér þykir leitt að segja það, en þú ert
eiginlega alveg útbrunninn og ég er ekki viss
um að þú eigir afturkvæmt í þetta starf.“.
Fann fyrir fordómum gagnvart
kulnun
Þegar ég lít aftur sé ég að ég hafði fordóma
– kulnun var ekki fyrir mig. Ég fór í frí en
hafði óstjórnlegt samviskubit yfir því að vera
heima. Eftir tvær vikur vildi ég fara að vinna
fimmtíu prósent starf. Trúnaðarlæknirinn
taldi mig fara of snemma af stað en mér
fannst ég allur að koma til. Það entist í
svona tvær vikur, þá var ég kominn í nánast
þrefalt það vinnuframlag. Ég hafði lag á að
gera mig dálítið ómissandi til vinnu og hafði
svo endalausar áhyggjur af því að eitthvað
klúðraðist.
Sölumannsstaða losnaði hjá fyrirtækinu. Ég
sótti um og fékk starfið. Á sama tíma kom
nýr yfirmaður á þessa deild og sá maður
hefur verið mér sem klettur í gegnum erfitt
ferli sem og konan mín.
síðar. Þá var kóvíd-faraldurinn skollinn á. Ég
fékk viðtal hjá ráðgjafa VR hjá VIRK sem tók
mér mjög vel.“
Hafðir þú einhverja hugmynd um hvaða
meðferð myndi henta þér?
„Ég var alveg lost og vissi ekki hvernig ég
ætti að tækla þetta. Ráðgjafinn var duglegur
að taka mig í viðtöl og benda mér á ýmis
úrræði. Í samstarfi við hann fékk ég að
velja. Samskip höfðu staðið við bakið á mér,
reynst mér mjög vel, borguðu fyrir mig sál-
fræðiþjónustu. VIRK leyfði mér að halda
áfram hjá sama sálfræðingi. Sá sálfræðingur
þekkti orðið öll mín mál. Við höfðum kafað
ofan í margt, sem var bæði léttir en líka mjög
erfitt.
Greining og lyf breyttu miklu
Sálfræðingurinn taldi hugsanlegt að ég væri
með athyglisbrest. Í framhaldi af því fór ég
í slíka greiningu og tikkaði í öll boxin. Ég
reyndist vera með ADHD samhliða ofvirkni
og hvatvísi. Ég átti erfitt með að einbeita mér
og þegar ástandið fór að versna tók ég að
gleyma ýmsu sem ég átti að gera.
Í kjölfar þessarar greiningar fór ég til geð-
læknis. Ég var að byrja hjá geðlækninum
þegar ég komst í þjónustu hjá VIRK. Geð-
læknirinn ávísaði mér lyfi sem virkaði
ágætlega fyrst en olli þreytu og syfju. Mér
fannst það skrýtið, því ég veit ekki betur en
það sé einhvers konar örvandi efni í þessum
lyfjum. Þá fékk ég annað og dýrara lyf, sem
reynist mun betur. Þetta breytti rosalega
miklu hjá mér. Ég fór að kannast við sjálfan
mig aftur – þann glaða mann sem ég hafði
löngum verið. Ég er enn í eftirliti hjá þessum
geðlækni með ákveðnu millibili. Þar á
ég athvarf, sem er gott, því það er ekkert
auðvelt að komast að hjá geðlækni.“
Áttirðu inni veikindarétt?
„Já, ég átti sex mánaða veikindarétt hjá
Samskipum og síðan tók við veikindaleyfi
hjá VR. Ég var frá vinnu frá því í byrjun
desember 2019 og fór aftur að vinna 1.
nóvember 2020. VIRK hjálpaði mér að
ganga í gegnum þetta allt saman. Á vegum
VIRK fór ég á námskeið sem heitir „Betri
svefn“. Það var reyndar fjarnámskeið vegna
kóvídsins. Ég fékk ekki svo mikið út úr því, en
lyfin sem ég fékk hjá geðlækninum hjálpuðu
mér þannig að ég fór að sofa betur. Ég hafði
átt mjög erfitt með að sofa, að mér sóttu alls
kyns hugsanir. Ég var í raun og veru alveg
kengstressaður.
Í desember
2019 þá gat ég ekki
meira. Ég vissi varla
í þennan heim né
annan.
Haustið 2019 fór ég að finna fyrir ein-
hverjum skringilegheitum aftur. Á þessum
árum sem liðin voru hafði ýmislegt sorglegt
gerst, dauðsföll og fleira. Ég tók finna fyrir
miklum verkkvíða, átti erfitt með að einbeita
mér og smám saman fór ég að verða
hræddur. Á sama tíma komu upp aðstæður
sem ollu því að við hjónin þurftum að hafa
meiri afskipti af tveimur barnabörnum en
áður og það breytti lífi okkar mikið.
Í desember 2019 þá gat ég ekki meira. Ég
vissi varla í þennan heim né annan. Ég fór
aftur til trúnaðarlæknisins sem minnti mig á
að ég hefði farið of snemma af stað. „Ástand
þitt er jafnvel orðið verra,“ sagði hann.
Kulnunin var þó ekki bara vegna vinnunnar,
þar komu inn margir þættir – lífið sjálft með
allt sitt.
Í þjónustu hjá VIRK
Í framhaldi af þessu stakk trúnaðarlæknirinn
hjá Samskipum upp á því að ég sækti um
þjónustu hjá VIRK. Þegar þarna var komið
sögu var ég svo illa haldinn að ég var tilbúinn
til að gera hvað sem var. Og hugarfar mitt
hvað snerti kulnun var orðið opnara vegna
umræðunnar á þessum tíma. Ég ákvað strax
að halda því ekki leyndu að ég leitaði til
VIRK. Ég tala um þetta feimnislaust. VIRK á
ekki að vera leyndamál.
Ég sótti um að fá þjónustu hjá VIRK í janúar
2020 og fékk þar inni um tveimur mánuðum
40 41virk.is virk.is