Ársrit um starfsendurhæfingu - 2022, Síða 43
VIÐTAL
Námskeið sem reyndust vel
Ráðgjafi VIRK benti mér á námskeið sem
heitir „Sigrum streituna“ hjá Primal Iceland
og ég fór á þeirra vegum þangað. Þetta var
snilldarnámskeið, eitt hið besta sem ég hef
sótt og hef ég þó farið á ýmis námskeið í
tengslum við störf mín.“
Hvað gerðuð þið hjá Primal sem var svona
frábært?
„Viðmótið var einstaklega gott og jafnframt
er farið með manni í gegnum allt sem snertir
grunnstoðir líkamans, bæði hvað varðar
hreyfingar og mataræði. Maður er látinn gera
krefjandi æfingar og teygjur. Ég hafði þjáðst
af verk eftir axlaraðgerð. Einar Carl Axelsson
í Primal sagði við mig: „Ertu eitthvað slæmur
í öxlinni?“ Hann lét mig leggjast á magann,
setti höfuð mitt við gólf og hendina upp við
vegg og teygði á líkamanum svo ég veinaði
af kvölum. Verkurinn hvarf og ég hef ekki
fundið hann síðan. Ég var mættur á þetta
námskeið tuttugu mínútum fyrir sjö, tvisvar
í viku. Á þessu námskeiði fékk ég bæði
líkamlegt og andlegt enduruppeldi í formi
æfinga og hugleiðslu.
sem svaraði sagði við mig: „Já, það er
verið að auglýsa eftir manni og þú ert rétti
maðurinn.“ Hann sagði mér að þetta væri
verslunarstjórastarf. Ég sagði að mér fynd-
ist það full mikil ábyrgð og myndi vilja
ábyrgðarminna starf.
Síðan fórum við konan mín í sumarfrí og ég
tók ákvörðun um að fara aftur að vinna hjá
Samskipum. Ég ákvað að hringja og láta
vita að ég ætlaði ekki að þiggja starfið. En
maðurinn bað mig að koma og hitta sig og
föður sinn sem á fyrirtækið. Ég fór og sagði
feðgunum sólarsöguna um það sem ég hafði
gengið í gegnum. Sá eldri horfði á mig og
sagði: „Þetta er merkilegt, vinur minn lenti í
svona líka.“ Ég fann að hann hafði skilning á
þessu. Það endaði því með því að ég sló til.
Þegar ég gekk út frá þeim feðgum hringdi
ég í yfirmann minn hjá Samskipum og
sagði honum að mér hefði boðist vinna sem
mig langaði til að taka en væri í vafa. Hans
viðbrögð voru að segja í gríni: „Ætlarðu að
yfirgefa mig?“ Svo bætti hann við: „Jæja, ég
styð þig í öllu sem þú vilt gera, en þú átt alltaf
afturkvæmt.“ Ég hafði svolitlar áhyggjur af
hvernig Samskipum myndi reiða af án mín
en tók starfinu í versluninn eigi að síður.
En það var gott að hafa baktryggingu hjá
Samskipum.
Þetta gerðist mánaðamótin september-
október 2020. Ég lauk þjónustunni hjá
VIRK í lok október það ár. Ég byrjaði í skertu
starfshlutfalli, umhverfið var ansi ólíkt.
Margvísleg verkefni biðu mín. Og fljótlega
var ég kominn í hundrað prósent vinnu. Það
var erfitt í fyrstu og ég var í dálitlu sjokki, en
smám saman komst ég inn í starfið og allt fór
að ganga vel. Nýir eigendur hafa nú tekið við
fyrirtækinu.“
Ráðgjafinn stýrði ferlinu vel
Hvernig er svo staðan hjá þér í dag
varðandi heilsuna?
„Heilsa mín er nokkuð góð eins og er.
Mér líkaði þjónustan hjá VIRK frábær-
lega. Ráðgjafinn stýrði þessu vel. Ég hefði
örugglega verið miklu lengur frá vinnu-
markaði ef ég hefði ekki notið þeirrar
þjónustu. Og námskeiðin sem ég sótti á
vegum VIRK hjálpuðu mér afskaplega mikið.
Ég er þó enn ákafur og hvatvís. Ég þarf því
stöðugt að hafa varan á og halda í horfinu.“
Texti: Guðrún Guðlaugsdóttir
Mynd: Lárus Karl Ingason
Í kjölfar þessa námskeiðs benti ráðgjafi
VIRK mér á námskeið sem heitir „Heillandi
hugur“. Allir sem voru í þeim hópi voru
þjónustuþegar VIRK. Ég hitti þarna fólk
sem var að glíma við það sama og ég og
við vorum látin vinna alls kyns verkefni
saman. Við þetta fékk ég einskonar
uppljómun. Við unnum líka verkefni heima
og héldum sambandi eftir að við hættum á
námskeiðinu.
Eftirfylgni og nýtt starf
Eftir að ég fór að vinna aftur fékk ég um tíma
eftirfylgni frá námskeiðshaldaranum. Einnig
fékk ég eftirfylgni frá VIRK í fyrstu. Þótt ég
sé útskrifaður úr þjónustu hjá VIRK þá veit
ég að ég get leitað þangað aftur ef brýna
nauðsyn ber til.“
Fórstu í sama starf og áður þegar þú hófst
vinnu á ný?
„Ég ætlaði ekki að skipta um vinnu en sá
auglýst eftir starfsmanni í reiðhjólaverslun.
Ég er mikill reiðhjólamaður og þekkti aðeins
til þessarar verslunar svo ég hringdi. Sá
RÁÐGJAFINN
HÉLT VEL UTAN UM MIG
ANNA HILDUR GUÐMUNDSDÓTTIR
„Orsök þess að ég hætti á mínum karllæga vinnustað va
vöntun á samskiptum. Ég bý á Akureyri og starfaði þar en svo vildi
þessi vinnustaður færa mig til í starfi og staðsetningu án samtals við
mig. Þetta kom sér mjög illa fyrir mig þar sem ég var þá með börn á
skólaaldri og aldraða og veika móður á heimilinu.
Ég neitaði að láta flytja mig til án samráðs og það leiddi til þess að
mér var sagt upp. Á karllæga vinnustaðnum var aftur á móti litið
svo á að ég hefði sagt upp. Sem sagt; það var ósamkomulag um
starfslok mín. Í framhaldi af því leitaði ég strax til stéttarfélags míns.
Það hóf málsókn og ég sótti rétt minn. Ég vann þetta mál en allt
þetta ferli leiddi hins vegar til þess að ég varð óvinnufær.“
Hvað gerðir þú þá?
„Ég leitaði til heimilislæknis og hann tók mér mjög vel. Hann skildi
ástand mitt og var sammála þeirri hugmynd að leita eftir þjónustu
hjá VIRK. Hann gaf mér raunar tvo möguleika, að leita til VIRK eða
sækja um að komast heilsustofnunina í Hveragerði. Ég samþykkti
hvoru tveggja en þegar kom að því að ég kæmist í Hveragerði var
ég komin inn hjá VIRK.“
ÉG VANN Á KARLLÆGUM VINNUSTAÐ
ÞAR SEM VORU STJÓRNARHÆTTIR
SEM LÉTU MÉR LÍÐA ILLA,“ SEGIR ANNA
HILDUR GUÐMUNDSDÓTTIR SEM
NÝTTI SÉR ÞJÓNUSTU HJÁ VIRK FYRIR
NOKKRUM ÁRUM OG VILL DEILA REYNSLU
SINNI AF ÞVÍ SEM GERÐIST EFTIR AÐ HÚN
MISSTI VINNUNA OG FYLLTIST MIKILLI
VANLÍÐAN – HVERNIG HENNI TÓKST AÐ
BÆTA SJÁLFSÍMYND SÍNA OG HEILSU OG
FINNA NÝTT STARF Í FYLLINGU TÍMANS.
42 43virk.is virk.is