Ársrit um starfsendurhæfingu - 2022, Síða 44
VIÐTAL
Áfallið leiddi til vanvirkni
Hvernig kom þetta ástand við þínar
aðstæður?
„Þegar ég var eiginlega búin með sjúkra-
réttinn minn hjá stéttarfélaginu að mér
var bent á að ég skyldi leita til VIRK sem
ég gerði þegar ég fór til læknisins. Ég
hafði unnið að málefnum sem voru mér
hugsjón og það var því mikið áfall að lenda
í þessum samskiptaerfiðleikum á karllæga
vinnustaðnum. Ég varð í framhaldi af
þessum leiðindum beinlínis vanvirk.
Mér er minnisstætt þegar dóttir mín kom
heim og ég hafði varla farið á fætur í sex
vikur. Hún sagði: „Mamma við erum ekki
vanar að sjá þig svona.“ Þá varð mér ljóst að
ég þyrfti virkilega að leita mér aðstoðar. Ég
gerði það sem fyrr sagði og vil taka það fram
að mér fannst ekki erfitt að leita til VIRK,
síður en svo.“
Hvernig kom þessi vanvirkni fram?
„Vanvirkni mín leiddi til þess til þess að
ég dró mig í hlé og átti erfitt með að taka
ákvarðanir varðandi sjálfa mig, hvað ég
ætti að gera og hvernig ég ætti að fylla upp í
daginn, ef svo má að orði komast. En þegar
ég komst í þjónustu hjá VIRK fannst mér
ótrúlega gott að hitta ráðgjafann. Ég fann
í fyrsta viðtali að hann trúði á mig og að ég
Áfallið olli höfnunartilfinningu
Ráðgjafi VIRK mælti með að ég færi til
sálfræðings sem ég og gerði. Sálfræðingurinn
var á Akureyri og það var mjög gott að hitta
hann. Að fara til hans hjálpaði mér að vinna
úr áfallinu og höfnunartilfinningunni sem það
hafði valdið mér. Ég uppgötvaði hve starfið
mitt hafði verið tengt minni persónu og
sjálfsmynd. Þegar starf sem er manni svona
mikils virði er tekið frá manni þá fer maður að
efast um sjálfan sig. Það er erfitt. Mér fannst
ég ómöguleg úr því mér var sagt upp.“
Hvernig gekk með fjármálin?
„Í fyrsta lagi er ég vel gift kona. Í öðru lagi
fékk ég sjúkradagpeninga í þrjár mánuði hjá
stéttarfélaginu og síðan gerði VIRK endur-
hæfingaráætlun fyrir mig þannig að ég fékk
endurhæfingarlífeyri hjá Tryggingastofnun.“
Fórstu á einhver námskeið á vegum VIRK?
„Nei það varð ekki af því. Mér bauðst að
fara á jóganámskeið en það var ekki á
heppilegum tíma vegna aðstæðna heima
fyrir. Ráðgjafinn hélt vel utan um mig.
Hann hjálpaði mér að taka ákvörðun um að
sækja um hvíldarinnlögn fyrir móður mína
en veikindi hennar höfðu versnað á þessu
tímabili. Mitt nánasta fólk hafði ráðlagt mér
áður að sækja um fyrir mömmu en ég dró
það á langinn. En þegar ráðgjafinn sagði að
Vanvirkni mín
leiddi til þess til
þess að ég dró
mig í hlé og átti
erfitt með að
taka ákvarðanir
varðandi sjálfa mig,
hvað ég ætti að
gera og hvernig ég
ætti að fylla upp í
daginn, ef svo má
að orði komast.
VIRK hefur
þróast í takt við
samfélagið og
mætir þörfum
fólks sem lendir í
vanda og bendir á
allskonar leiðir sem
hægt er að nota
sem forvarnir.
treysti honum til að finna leið fyrir mig til að
vinna gegn þessum vanmætti mínum.
Við fundum út, ég og ráðgjafinn minn,
að heppilegt væri að ég kæmi reglulega í
viðtöl til hans. Ég hitti svo ráðgjafann hálfs-
mánaðarlega í um hálft ár. Það hentaði mér
best – reyndist leiðin fyrir mig.“
Hætti að neita góðum
uppástungum
Hvernig starfsendurhæfngaráætlun lögðu
þið upp með?
„Ráðgafinn benti mér á að sinna grunn-
þörfum mínum, hreyfa mig daglega úti við
því súrefnið gerir svo mikið fyrir heilann.
Einn góður göngutúr getur verið á við góðan
sálfræðitíma. Sérstaklega ef maður er til
dæmis með vinkonu sinni eins og ég var.
Ráðgjafinn sagði mér líka að gæta þess að
borða góðan mat reglulega og hitta fólk. Ég
er með gott net í kringum mig en var orðin
neikvæð gagnvart því að gera nokkurn hlut
sem stungið var upp á.
Eftir eitt samtalið við ráðgjafann áttaði ég
mig á að ég mætti ekki alltaf segja nei. Ég
ákvað í framhaldi af því að hætta að neita
góðum uppástungum, svo sem að fara á
kaffihús svo dæmi séu nefnd. Nánir vinir
skildu hvað klukkan sló og tóku að hringja í
mig og bjóða mér að fara hitt og þetta. Oft
nennti ég alls ekki að fara – en samkvæmt
ákvörðun minni mátti ég ekki neita. Þetta
leiddi til þess að að smátt og smátt fór mér
að líða betur.
Ráðgjafinn sagði svo við mig að ef ég gerði
það sem við höfðum komið okkur saman
um þá mætti ég vera löt með góðri samvisku
og gera ekki neitt nema kannski horfa á
sjónvarpið. Ég hef aldrei frá unglingsaldri
verið atvinnulaus svo ég fékk sektarkennd
ef ég var bara heima, fékk þá tilfinningu að
ég væri í rauninn bara ekki neitt.
Ég er göngumanneskja, hef verið með
hunda og þurft að fara út að ganga með þá
um árabil. Í framhaldi af ákvörðuninni um
að neita ekki þá tók ég að fara út að ganga í
félagsskap í stað þess að fara ein.
Í heilt ár eftir áfallið vegna ólögmætrar upp-
sagnar átti ég bágt með að sofa en mér
tókst með tímanum smám saman að koma
svefninum í lag. Ég tók ekki lyf, vildi það ekki
en fékk mér hins vegar óspart gott te og fór í
sund á kvöldin, það hjálpaði.“
ég ætti að gera það þá sótti ég hins vegar
umyrðalaust um. Það fannst manninum
mínum næsta einkennilegt. Móðir mín lést
fyrir fjórum árum.
Þegar maður lendir í svona áfalli sem brott-
rekstur úr starfi er þá er rosalega gott að
komast til ráðgjafa sem hefur trú á manni og
gefur manni þá vissu að staða manns muni
breytast til hins betra. Ráðgjafinn sagði við
mig: „Það er eðlilegt að gráta. Það er eðlilegt
að vera reiður. Og það er eðlilegt skammast
sín fyrir að vera ekki að vinna.“.
Mér fannst hræðilegt að vera komin í þá
stöðu að vera fjárhagslega háð manninum
mínum, það hafði ég aldrei verið fyrr – alltaf
unnið og haft tekjur. Tekjumissirinn hafði
slæm áhrif á sjálfsmyndina. Það var ótrúlega
erfitt að segja: „Ég á engan pening – getur
þú lagt inn á mig?“ Ég hef alltaf staðið mína
plikt en var allt í einu komin bara heim og
hafði engin verkefni önnur en heimilisstörf.“
Setti fram markmið sem stóðst
„Þegar maður lítur til baka þá gerðist margt
neikvætt á sama tíma, ég missti vinnuna,
ég varð vanvirk og mamma greindist með
heilabilun. En hins vegar var ýmislegt
jákvætt, svo sem að þar sem ég var ekki
að vinna þá gat ég sinnt mömmu betur og
ég tel líka að uppsögnin hafi á endanum
merki að það væri að komast í þrot. Þá
benti ég því gjarnan á VIRK og þjónustuna
þar og öll þau úrræði og faglega traust sem
þar er að finna.
VIRK hefur þróast í takt við samfélagið og
mætir þörfum fólks sem lendir í vanda og
bendir á allskonar leiðir sem hægt er að
nota sem forvarnir. Það er hægt að koma í
veg fyrir ótrúlega margt með því að nýta sér
þær leiðir sem VIRK miðlar.“
Texti: Guðrún Guðlaugsdóttir
Mynd: Lárus Karl Ingason
verið til góðs. Ég losnaði úr mjög karllægu
umhverfi og það var heppilegt fyrir mig. Ég
hafði áður unnið mikið og af hugsjón en
við þessa breytingu þá hætti ég að tengja
sjálfsmyndina við starf í sama mæli og ég
hafði áður gert.“
Hvernig gekk að samræma meðferðina hjá
ráðgjafanum og einkalífið?
„Það gekk mjög vel. Akureyri er lítill bær
og auðvelt að komast á milli. Ég var yfirleitt
seinni partinn í viðtölum. Ráðgjafinn setti
mér í hverjum tíma fyrir verkefni sem ég átti
að vera búin að leysa næst þegar ég kæmi.
Það gat verið að fara í sund eða á kaffihús
eða eitthvað annað sem fékk mig til að fara
út af heimilinu. Þetta tókst hjá henni. Í byrjun
settum við í sameiningu fram markmið með
góðum tímaramma og það markmið stóðst.“
Hver er staðan hjá þér núna?
„Ég komst fyrst í fulla vinnu hjá sveitar-
félaginu mínu og það starf hentaði mér vel.
Núna er ég hins vegar komin í nýtt starf sem
tengist starfsreynslu minni. Ég er rosalega
hrifin af VIRK og hef trú á þessu prógrammi,
hvernig hlutirnir eru gerðir þar. Ég er viss um
að ég væri ekki það sem ég er í dag ef ég
hefði ekki notið þjónustu VIRK.
Í starfinu sem ég sinnti hjá Akureyrarbæ
hitti ég stundum fólk sem virtist komið með
allt of mikið á sínar herðar og sýndi þess
Ráðgjafinn
setti mér í hverjum
tíma fyrir verkefni
sem ég átti að vera
búin að leysa næst
þegar ég kæmi. Það
gat verið að fara í
sund eða á kaffihús
eða eitthvað annað
sem fékk mig til að
fara út af heimilinu.
44 45virk.is virk.is