Ársrit um starfsendurhæfingu - 2022, Síða 48
VIRK
sjálfsmats á heilsufari, úrræða á vinnustað
og sálrænnar seiglu. Samhliða var tekið
tillit til þekktra þátta sem hafa áhrif á að
einstaklingar velji að fara í hlutaveikindi
(s.s. aldur, menntun, kyn, vinnugeiri, sjúk-
dómsgreining og líkamleg vinna).
Samkvæmt rannsakendum þá eru gögn,
sem lýsa því hvernig ákveðnir þættir eins
og heilsa og vinnu- og persónutengdir
þættir hafa áhrif á val einstaklinga um
hlutaveikindi, bæði af skornum skammti og
ósamræmd. Nánari vitneskja um hvernig
þessir þættir spila inn í þá ákvörðun gætu
verið upplýsandi fyrir ýmsa hagsmunaaðila
eins og heimilislækna, vinnuveitendur,
samræmingaraðila fyrir endurkomu til
vinnu og almannatryggingakerfið og þannig
aðstoðað við að þróa lausnir til að auka
vinnuþátttöku.
Niðurstöður rannsóknarinnar sýndu að
þeir sem tóku hlutaveikindi voru frekar
konur, með meiri menntun, unnu við minna
líkamlega krefjandi störf og voru frekar
að starfa í opinbera geiranum. Einnig var
sjaldgæfara að þeir yngstu og þeir elstu
veldu að fara í hlutaveikindi. Niðurstöður
sýndu tengsl milli sjálfsmats á heilsufari og
líkunum á því að starfsmaður veldi að fara í
hlutaveikindi. Tengslin voru öfug U-laga lína
þar sem þeir sem voru við bestu og verstu
heilsuna voru ekki eins líklegir að hafa
valið að fara í hlutaveikindi. Sá kostnaður
sem leggst á vinnuveitandann við það að
auðvelda töku á hlutaveikindum gæti átt
þátt í þessum tengslum því einstaklingar
sem eru við bestu heilsuna eru nær því að
snúa aftur til vinnu og sleppa þá alveg að
taka hlutaveikindi, á meðan þeir sem eru
við verstu heilsuna eru yfirleitt of veikir til að
geta unnið.
Niðurstöður sýndu einnig að meira
svigrúm til aðlögunar á vinnustað og gott
sálfélagslegt vinnuumhverfi tengdist
aukinni töku á hlutaveikindum. Þeir sem
tóku hlutaveikindi töluðu einnig um að
vera með meira sjálfræði í vinnunni og
áttu erfiðara með að ráða við kröfur
starfsins. Í fyrri rannsóknum þá greindu
einstaklingar sem voru í hlutaveikindum
að samhliða styttingu á vinnutímanum
fylgdi ekki alltaf samsvarandi lækkun á
framleiðnivæntingum sem gæti stuðlað
að auknum vinnukröfum fyrir þá sem eru
í hlutaveikindum. Enginn munur var á
hópunum með tilliti til sálfræðilegrar seiglu
eða áður tekinna veikindaleyfa.
Niðurstöður benda til þess að meira ætti
að skoða sjálfsmat á heilsufari og eiginleika
vinnustaðarins þegar skoðuð eru áhrif
hlutaveikinda á endurkomu til vinnu.
Rannsókn frá Finnlandi
Hartikainen og félagar6 birtu grein í
Scandinavian Journal of Work Environment
& Health árið 2023 þar sem þeir fjalla um
væntingar um lengd á starfsævi og töpuð
starfsár meðal einstaklinga sem nýttu sér
hluta- og fullt veikindaleyfi í Finnlandi.
Í Finnlandi greiða vinnuveitendur fyrstu
10 dagana sem starfsmenn eru fjar-
verandi vegna veikinda en eftir það
tekur almannatryggingakerfið við
greiðslum. Starfsmenn sem eiga rétt á
fullri veikindafjarveru geta eftir þessa
10 daga valið að fara í hlutaveikindi ef
vinnuveitandinn getur skipulagt slíkt og ef
læknisfræðilegt mat telur starfsmenn geti
það án þess að þeir geti skaða heilsu sína. Í
Finnlandi hefur aðgengi að hlutaveikindum
verið þróað til að hjálpa einstaklingum með
skerta starfsgetu að vera áfram í vinnunni í
hlutastarfi og til að auðvelda endurkomu til
vinnu eftir veikindafjarveru.
Markmið þessarar rannsóknar var að
gera hálftilraun (e. quasi-experiment)
til að meta áhrif hlutaveikinda og fullrar
veikindafjarveru. Reiknuð voru bæði áhrif
á væntingar um lengd mögulegrar starfsævi
(e. working life expenctancy) og töpuð
starfsár (e. working years lost) hjá starfandi
finnskum einstaklingum. Niðurstöður
þessarar rannsóknar eiga aðeins við um
einstaklinga sem eru fjarverandi vegna
andlegra og stoðkerfisvandamála og geta
niðurstöður því verið öðruvísi fyrir aðra
sjúkdómahópa.
Niðurstöður þeirra voru í samræmi
við fyrri rannsóknir sem bentu til
þess að hlutaveikindi eða stigvaxandi
endurkoma til vinnu hefur jákvæð áhrif á
atvinnuþátttöku4,8,9. Það sem kom nýtt fram
í rannsókninni voru vísbendingar um að
það að fara í hlutaveikindi, í samanburði við
fulla veikindafjarveru, væri áhrifaríkari leið
til að lengja tímann sem einstaklingar vörðu
í vinnunni yfir eftirstandandi starfsferil
sinn meðal fólks með andlegan vanda eða
stoðkerfissjúkdóma.
Niðurstöður sýndu að ákvörðunin að
nýta hlutaveikindi frekar en að vera í
fullri veikindafjarveru leiddi til lengri
starfsævi vegna þess að minni tíma
var varið í atvinnuleysi og örorkulífeyri.
Sérstaklega átti þetta við um einstaklinga
með andlegan vanda og þá sem unnu
í einkageiranum. Það að nýta sér
hlutaveikindi virtust fjölga starfsárunum
með því að efla endurkomu til vinnu í
fullt starf aftur. Fyrir einstaklinga með
stoðkerfissjúkdóma voru einnig jákvæðu
áhrifin en ekki eins mikil, en sé litið til þess
að stoðkerfissjúkdómar eru ein helstu orsök
skertrar starfsgetu getur samfélagslegur
ábati verið töluverður þegar á heildina er
litið. Niðurstöður rannsakenda voru þær
að alltaf ætti að mæla með að starfsmenn
nýttu sér hlutaveikindi í stað fullrar
veikindafjarveru, þegar það er mögulegt,
fyrir einstaklinga með andlegan vanda eða
stoðkerfissjúkdóma.
Samvinna eykur þátttöku
Á Íslandi á launafólk rétt á launum frá
vinnuveitanda vegna veikinda og slysa
í tiltekinn tíma en fjöldi veikindadaga er
þó mismunandi eftir kjarasamningum
og því hvort starfsmaðurinn er opinber
starfsmaður eða vinnur á almennum
vinnumarkaði. Veikindaréttur á opinberum
markaði er mun betri en á almennum
markaði og er fjöldi veikindadaga t.d.
mun meiri hjá starfsmönnum opinberra
fyrirtækja eftir 1 ár í starfi (www.asi.is). Í
kjarasamningum hjá ríki og sveitarfélögum
er heimildarákvæði um hlutaveikindi og
Niðurstöður
rannsakenda voru
þær að alltaf ætti
að mæla með að
starfsmenn nýttu
sér hlutaveikindi í
stað fullrar veikinda-
fjarveru, þegar það
er mögulegt, fyrir
einstaklinga með
andlegan vanda eða
stoðkerfissjúkdóma.
má finna þetta ákvæði t.d. hjá mörgum
fyrirtækjum og sjálfseignarstofnunum sem
aðildarfélög BSRB semja við en almennt
er ekki slíkt ákvæði í kjarasamningum á
almenna vinnumarkaðnum (www.bsrb.is).
Samkvæmt þessu ákvæði þá eru veikindi
talin líkt og um tvo starfsmenn sé að ræða.
Laun eru greidd fyrir það hlutfall sem unnið
er, en veikindagreiðslur koma á móti fyrir
það hlutfall sem eftir er og dragast þeir frá
áunnum veikindarétti starfsmanns.
Það er alltaf undir vinnustaðnum komið
hvort starfsmaður geti fengið tækifæri
til að vinna í skertu starfhlutfalli og þiggja
hlutaveikindalaun á móti. Einnig má nýta
þetta ákvæði þegar starfsmaður er að snúa
aftur til vinnu eftir langtíma fjarveru vegna
veikinda. Þá fær starfsmaður tækifæri til að
koma til baka í vinnu á stigvaxandi máta en
eins og sjá má í textanum hér á undan þá
er slíkt fyrirkomulag að skila betri árangri í
mörgum tilfellum.
Það hefur alltaf staðið einstaklingum til
boða að koma í starfsendurhæfingu hjá
VIRK samhliða því að vera áfram í vinnunni.
Lögð er áhersla á að einstaklingar séu
ekki í meira en 60 – 70% starfshlutfalli
til þess að þeir hafi tíma og getu til
að taka þátt í viðeigandi úræðum í
starfsendurhæfingunni. Samstarf við
vinnustaðinn er mikilvægt þar sem oft þarf
að draga enn frekar úr starfshlutfalli í byrjun
og skipuleggja aðlögun á vinnustað (t.d. á
vinnutíma, verkefnum eða vinnuaðstöðu)
og svo þarf að skipuleggja stigvaxandi
endurkomu til vinnu til að einstaklingar
komist aftur í sitt fyrra starfshlutfall í
lok starfsendurhæfingar. Á síðasta ári
lagði VIRK áherslu á að kynna þennan
möguleika fyrir fyrirtækjum sem úrræði fyrir
starfsmenn þeirra sem eiga erfitt með að
skila vinnu sinni á fullnægjandi hátt vegna
heilsubrests af ýmsum toga. Farið var í
heimsóknir til fjölda fyrirtækja og stefnt er
að enn frekari kynningu á þessu úrræði -
starfsendurhæfingu samhliða vinnu - núna
á þessu ári.
Eins og kom fram hér að framan þá
mun Ísland einnig horfa upp á þessar
lýðfræðilegu breytingar á vinnuaflinu í
framtíðinni eins og í öðrum vestrænum
löndum og þurfum við því einnig að
leggja áherslu á að auka atvinnuþátttöku
sem flestra10. Því er mikilvægt að nýta
möguleikann með starfsendurhæfingu
samhliða vinnu þar sem starfsmaðurinn
fer aldrei alveg frá vinnustaðnum en
fær tækifæri til fara í hlutastarf og á móti
að taka hlutaveikindi. Þannig aukast
líkurnar á því að hann nái aftur sinni fyrri
starfsgetu sem dregur úr líkum á því að
hann fari alfarið af vinnumarkaðinum.
Lögð er áhersla á þetta í grein Pálsson og
félaga11 „Vinna og verkir“ hér aftar í ársriti
VIRK. Í greininni er talið að vinnustaðurinn
sé góður vettvangur fyrir endurhæfingu
fyrir einstaklinga með verki og getur verið
forsenda þess að verkirnir minnki eða
hverfi alveg ef einstaklingar fá tækifæri
til að snúa aftur til fyrri starfa. Í dag eru
einnig margir einstaklingar að reyna að
snúa til baka á vinnumarkaðinn eftir að
hafa fengið COVID en hafa ekki náð sér
að fullu12. Þessir einstaklingar myndu
geta nýtt sér þennan möguleika að vera í
hlutaveikindum samhliða hlutastarfi og að
sett sé upp virkniáætlun innan raunhæfs
tímaramma þar sem þeir fá tækifæri til
að koma á stigvaxandi máta inn í sitt fyrra
starfshlutfall.
Í grein Tompa13 „Ávinningur af þátttöku
allra á vinnumarkaði fangaður: Leiðin
fram á við fyrir einstaklinga með skerta
starfsgetu og vinnumarkaður 21.
aldarinnar“ hér framar í ársriti VIRK
kemur fram að útilokun hóps fólks
með skerta starfsgetu frá þátttöku á
vinnumarkaðinum er mjög kostnaðarsöm
fyrir bæði einstaklinginn og þjóðfélagið
í heild sinni. Samstarf milli vinnustaðar,
einstaklings og starfsendurhæfingar
eða heilbrigðiskerfisins, eftir atvikum, er
mikilvægt til að auðvelda og auka þátttöku
þessa hóps á vinnumarkaðinum þannig
að hún gangi upp á farsælan hátt fyrir alla
hagsmunaaðila.
Heimildir
1. Waddell G & Burton A. Is Work Good for
Your Health and Well-being? 2006, TSO
(The Stationery Office), London.
2. Hesselius P. Does sickness absence
increase the risk of unemployment? J. Socio
Econ. 2007;36(2): 288-310.
3. Rehwald K, Rosholm M, Rouland B. Labour
market effects of activating sick-listed
workers. Labour Econ. 2018; 53:15-32.
4. Markussen S, Mykletun A, Röed K. The
case for presenteeism – evidence from
Norway´s sickness insurance program. J
Public Econ. 2012;96(11-12):959-72.
5. Standal MI, Hjemdal O, Aasdahl L, Foldal
VS, et al. Workplace flexibility important
for part-time sick leave selection-an
exploratory cross-sectional study of long-
term sick listed in Norway. BMC Public
Health 2021;21(1):732. H.
6. Hartikainen E, Solovieva S, Viikari-Juntura
E, Leinonen T. Working life expectancy
and working years lost among users of
part- and full-time sickness absence in
Finland. Scand J Work Environ Health
2023;49(1):23-32.
7. Leoni T. Graded work, the activation of sick-
listed workers and employer participation
in continental Europe. Soc Policy & Soc
2020;21(3):385-404.
8. Kausto J, Viikari-Juntura E, Virta E, Gould
R, et al. Effectiveness of new legislation
on partial sickness benefit on work
participation: a quasi-experiment in
Finland. BMJ Open. 2014;4: e006685.
9. Maas ET, Koehoorn M, McLeod CB. Does
gradually returning to work improve time
to sustainable work after a work-acquired
musculoskeletal disorder in British
columbia, Cananda? A matched cohort
effectiveness study. Occup Environ Med
2021;78(10:715-23.
10. Hannes G. Sigurðsson. Ísland 2050:
Eldri þjóð – Ný viðfangsefni. Samtök
Atvinnulífsins: Apríl 2007.
11. Pálsson Th, Högh M, Christensen S. Vinna
og verkir. Ársrit VIRK, 2023: bls. 58-61.
12. Bratun U, Svajger A, Domajnko B et al.
Return to work among workers recovering
from severe COVID-19 in Slovenia: a
focus group study. Disability and Rehab.
2022:1–10.
13. Tompa E. Ávinningur af þátttöku allra á
vinnumarkaði þangað: Leiðin fram á við
fyrir einstaklinga með skerta starfsgetu og
vinnumarkaður 21. aldarinnar. Ársrit VIRK,
2023: bls. 33-37.
Niðurstöður
sýndu að ákvörðunin
að nýta hlutaveikindi
frekar en að vera í
fullri veikindafjarveru
leiddi til lengri
starfsævi vegna þess
að minni tíma var
varið í atvinnuleysi
og örorkulífeyri.
48 49virk.is virk.is