Ársrit um starfsendurhæfingu - 2022, Blaðsíða 56
VIÐTAL
endilega af því þeir séu lesblindir, heldur
hafa þeir „týnst“ í kerfinu – kannski
verið fyrirferðalitlir. Eftir hrunið var tekin
sú ákvörðun að minnka sérkennslu
og fjölga í bekkjum. Þetta er á kostnað
þeirrar kynslóðar sem er fædd í kringum
aldamótin.
Samhliða þessu hafa orðið miklar
breytingar í tæknimálum, nefnum símana
og tölvunotkunina. Margir líta þetta horn-
auga en við ættum frekar að fagna þessari
breytingu og nota hana á réttan hátt.
Orðaforðinn ólíkur milli kynslóða en líklega
hefur unga fólkið alltaf átt sitt tungumál á
hverjum tíma.
VIRK hefur gert
starfsendurhæfingu markvissari
Óneitanlega heldur það manni ungum
að umgangast ungt fólk. Við vorum með
árshátíð í sal um daginn. Þar mættu um
sjötíu nemendur. Við vorum með plötusnúð
og dönsuðum og skemmtum okkur saman.
Hluti af endurhæfingunni er einmitt að
læra að taka þátt í slíkum félagslegum
aðstæðum. Ég gaf nemendum leyfi til þess
að skreyta salinn og fékk þeim í hendur
ákveðna fjárhæð til þess en skipti mér að
öðru leyti ekki að.
Ég kom svo að skoða salinn og leist mjög
vel á. Starfskona í salnum sagði að það
hefði komið kona vegna fermingarveislu.
Hún hafi haft orð á því hvað salurinn
væri ofboðslega flottur og vildi vita hvaða
fyrirtæki hefði séð um skreytinguna. Þetta
var hópnum kærkomin viðurkenning,
innan hans komu í ljós hæfileikar. Slíkt þarf
að örva og benda á. Maður þarf að leggja
áherslu á að manneskjan er fyrst og svo
koma alls konar greiningar.
Ég hef starfað í fullorðinsfræðslu síðan
1999. Þá voru allir að gera þetta sitt í
hvoru horninu en eftir að VIRK kom til
sögunnar varð endurhæfing markvissari
og fjölbreyttari, meira er nú vitað um
þjónustuþega og sögu þeirra, það hjálpar
við starfsendurhæfingu. VIRK er með
sérfræðinga sem fylgjast vel með og gott að
geta leitað til þeirra.
Hringsjá er sem fyrr greindi liður í starfs-
endurhæfingarferli hjá VIRK. Við gerum
árangurskannanir reglulega, síðast 2020
og náði hún til áranna 2012 til 2019, þá
voru áttatíu prósent af þeim sem höfðu
útskrifast frá Hringsjá í námi eða starfi og
tókum þó ekki með þá sem voru á skrá hjá
Vinnumálastofnun.“
Hverjir leita til Hringsjár almennt?
„Fólk sem hingað kemur er á öllum aldri
og kynjum. Það útskrifast eftir þrjár annir
í námi sem í grunninn samanstendur af
íslensku, stærðfræði, tölvuleikni og ensku,“
segir Helga og minnir á hópmyndir af
úrskrifuðum nemendum Hringsjár sem
prýða veggi húsnæðisins.
Meðalaldur nemenda Hringsjár
nú tæp 29 ár
Hver stofnaði Hringsjá?
„Hringsjá hefur verið til frá 1987. Það er í
eigu ÖBI. Fyrst var starfsemin á níundu
hæð í Hátúni 10 en þetta hringlaga
í samræmi við breytingar og nýgengi
örorku. Nú er meira hér um fólk með fjöl-
þættan vanda sem hefur dottið út af
vinnumarkaði vegna slysa eða veikinda.
Ýmsir sem koma hingað þurfa að finna sér
nýjan starfsvettvang. Smám saman hefur
starfsemin því þróast á þann veg sem hún
er í dag.
Þegar ég hóf störf hér árið 2006 var meðal-
aldur þeirra sem sóttu endurhæfingu
hingað 37,4 ár. Núna, sautján árum seinna,
er meðalaldurinn tæp tuttugu og níu ár.
Stærsti hópurinn sem er hér við nám í
dag er á milli tuttugu og þrjátíu ára. Margir
þeirra hafa dottið úr námi í framhaldsskóla
og jafnvel grunnskóla. Ástæðurnar eru
ýmsar, svo sem skólaforðun, einelti og
neysla. Það liggja því margvíslega ástæður
að baki.
Þegar fólki er vísað hingað frá VIRK þá
heldur það sambandi við ráðgjafa sinn þar,
en við tökum yfir starfsendurhæfinguna,
höldum utan um sjúkraþjál fun,
sálfræðiviðtöl og fleira. Hringsjá er fyrst
og fremst starfsendurhæfing og námið er
hluti af henni. Kröfur vinnumarkaðarins
eru ræddar. Stundum þarf fólk að læra að
mæta á réttum tíma, láta vita ef það er veikt
og fá leyfi ef það þarf að fara til læknis.
Einnig er lögð áhersla á að fólki geti unnið
í hóp sem ekki er sérvalið í, rétt eins og er
almennt á vinnustöðum. Þótt grunnurinn
sé námið – íslenska, stærðfræði, enska
og tölvuvinna – þá erum við að vinna með
marga aðra þætti meðfram. Þessi fjögur fög
eru eigi að síður grunnur að margvíslegu
námi, sem fólk getur svo seinna farið í.
Varanlegasta endurhæfingin að
mennta fólk til starfsréttinda
Við gerum alltaf úttektir öðru hverju á því
hvernig staðan er á fólki sem útskrifast hjá
okkur. Áður fyrr var miklu algengara að
fólk færi héðan beint út á vinnumarkaðinn.
Nú er meira um að fólk fari í nám í fram-
haldsskólum. Ég tengi þetta við það að
við erum með yngri hóp núna og einnig
þá samfélagslegu kröfu að fólk hafi
einhverja menntun til þess að fá starf og
halda starfi. Ég vil meina að varanlegasta
endurhæfingin sé ef við náum að mennta
fólk til einhverra starfsréttinda. Við erum
í samstarfi við Fjölbrautarskólann í Breið-
holti, Fjölbrautaskólann við Ármúla, Borgar-
holtsskóla og Tækniskólann.“
Fólk sem hingað
kemur er á öllum
aldri og kynjum.
Það útskrifast eftir
þrjár annir í námi
sem í grunninn
samanstendur af
íslensku, stærðfræði,
tölvuleikni og ensku.
húsnæði hér var byggt 1995. Vísir að
þessari starfsemi byrjaði 1983 sem tölvu-
nám fyrir fatlaða. Öryrkjabandalag Íslands
og félagsmálaráðuneytið komu svo að
starfseminni í Hátúni og hún breyttist í
tölvu- og skrifstofuskóla. SEM-samtökin –
„Samtök endurhæfðra mænuskaddaðra“
börðust hart fyrir því að þessi skóli yrði til. Á
þeim tíma var aðgengi að skólabyggingum
almennt ekki gott og því var áherslan mest
á skrifstofutengu nám fyrir mænuskaddaða
í Hringsjá.
Í upphafi var námið tvær annir en varð
fljótlega þrjár annir. Síðar komu lyftur og
betra aðgengi í skóla og vinnustaði. Við
það breyttist samsetning nemendahópsins
rétt eins og samfélagið hefur líka gert.
Segja má að nemendahópurinn hafi breyst
Hvað er erfiðast að eiga við varðandi
erfiðleika fólks sem kemur til ykkar?
„Neyslan er erfiðust viðureignar. Allir
sem koma inn í Hringsjá skrifa undir
samstarfssamning. Hringsjá er vímuefna-
laust hús og í samningum er kveðið á um
leyfi til að athuga hvort fólk sé í neyslu. Við
erum í samstarfi við Heilsugæsluna hvað
það snertir. Viðkomandi fer þá einn í slíka
prófun og það er skilyrði þess að hann geti
haldið áfram að mæta hér. En yfirleitt þarf
ekki að beita slíkum úrræðum því fólk er
almennt hreinskilið og segir bara eins og er.“
Eruð þið í samstarfi við SÁÁ?
„Ef á þarf að halda þá vísum við fólki
þangað, að fara í viðtal í Von eða við gerum
tilvísun til inntökuteymis fíknideildar
Landspítalans. Neyslusjúkdómar eru erfiðir
og það þarf að taka á þeim strax, síðan er
fólk velkomið að meðferð lokinni. Fólk sem
er í neyslu getur ekki verið í endurhæfingu,
né heldur í vinnu eða skóla.
Þeir sem líða af svokallaðri skólaforðun
hafa oft upplifað erfiða hluti í skóla
– beinlínis stirðna upp þegar þau sjá
skólastofurnar. Í húsnæðinu sem við erum
í hérna starfar skólinn en í hinni aðstöðunni
er meira um námskeið og önnur úrræði. Þar
er matsbrautin þar sem metið er hvar fólk
er statt. Og þar eru líka námskeið fyrir fólk
af erlendum uppruna sem kemur hingað á
vegum VIRK.
Ég legg mikla áherslu á að starfsmenn
læri nöfn þeirra sem koma hingað í endur-
hæfingu, að fólki sé heilsað með nafni og
fái þar með þá tilfinningu að það tilheyri
hóp. Það er svo mikilvægt. Stundum koma
upp samskiptavandamál hér eins og annars
staðar. Þá bendi ég viðkomandi aðilum á
að gott sé að vandinn hafi komið upp hér
í Hringsjá þar sem hægt er að vinna úr
honum. Fyrir kemur að ég er hér með tvo til
þrjá nemendur til að ræða slík mál.
Samskiptavandinn sprettur gjarnan upp
af því að hér mætist ólíkt fólk. Sumir sem
hingað leita eru á einhverfurófinu, aðrir
eru með ADHD, síðan er fólk sem kemur
úr neyslusamfélaginu sem hefur harðan
skráp og harðara orðfæri, sem hinir eru
kannski viðkæmir fyrir. Oft þarf maður að
benda fólki á að reyna að setja sig í spor
hins aðilans, en það gengur auðvitað
misjafnlega. Einmitt vegna þess að hingað
sækir fólk með fjölþættan vanda þá höfum
við fáa í hverjum hóp.
Stundum kemur hingað fólk sem er greint
til dæmis með vefjagigt, en þegar nánar er
að gætt þá er það ekki frumorsökin heldur
eitthvað annað sem veldur spennu og
vanlíðan. Ungt fólk fær nú í auknum mæli
einhverfugreiningu. Það getur haft áhrif á
sjálfsmynd viðkomandi. Ég ólst upp í litlu
sveitafélagi og þar var mannfólkið misjafnt
einsog annars staðar. Reynt var að finna
hverjum og einum hlutverk við hæfi. Ég
hef á tilfinningunni að það hafi ríkt meira
umburðalyndi í þessum efnum hér áður
fyrr. Á sama tíma og allskonar greiningum
fjölgar gerir vinnumarkaðurinn auknar kröfur
um færni, einkum er auglýst eftir fólki sem
er frábærlega gott í samskiptum. Þetta
fælir þá frá sem eru til dæmis nýbúnir að fá
einhverfugreiningu. Þeir sækja bara ekki um.
Vissulega er ákjósanlegt að fólk hafi góða
hæfni í mannlegum samskiptum en það
eru ýmsir aðrir eiginleikar sem nýtast vel í
starfi. Okkar hlutverk er ekki síst að finna
hvar styrkleikar fólks liggja. Við reynum að
fá fólk til að hætta að hugsa um hvað það
getur ekki en hugsa þess í stað um hvað
það getur. Það eru ekki allir á sama litrófinu
í hinu mannlega samfélagi. Við reynum
einnig að vekja athygli umhverfisins á því
að fólk er ekki allt eins og hver og einn getur
haft góða færni á sínu sviði.“
Gleðilegt að hitta nemendur
Hringsjár á vinnumarkaði
Hvernig tekur fólk þessum greiningum,
almennt?
„Stundum verða einstaklingar svo upp-
teknir af greiningunni að við liggur við að
þeir segi frá henni áður en þeir segja nafn
sitt. Við leggjum höfuðáherslu á að við erum
öll fyrst og fremst manneskjur og hver og
ein er með sína sérvisku. Við erum ekki
að gera lítið úr greiningunum og vinnum
vissulega út frá þeim. En yfirleitt ræðum
við greiningar ekki við kennarana nema
það beinlínis tengist náminu, til dæmis ef
fólk greinist með lesblindu, ADHD, og á því
erfitt með að einbeita sér og þar fram eftir
götunum.
Sumt af því fólki sem kemur frá VIRK hefur
nýlega fengið greiningu og sumum er það
ákveðinn léttir að fá skýringu á því hvers
vegna illa hefur gengið. Og það áttar sig á
að það þarf að læra ákveðna tækni í námi
og samskiptum. Ef fólk á erfitt með að vera
lengi í nánd hefur það aðstöðu hér til að
geta dregið sig í hlé og jafnað sig í einrúmi.
En það er annað í sambandi við þessar
greiningar sem við höfum orðið vör við.
Foreldrarnir, eða aðrir aðstandendur, eru
kannski algerlega á móti þeim. Þetta virðist
vera þeim áfall og þeir sem fá greininguna
þurfa stundum að glíma við afstöðu eins og
„hvaða vitleysa er þetta“.
Fátt gleður mig meira en hitta nemendur
Hringsjár sem komir eru í vinnu og gengur
vel. Ég veiktist fyrir nokkru og varð að
liggja á spítala í sjö daga. Á deildinni minni
voru þrír sjúkraliðar sem höfðu útskrifast
frá Hringsjá og ég var satt að segja alveg
„dekruð í drasl“ – eins og þar stendur. Það
er svo gaman að sjá fólkið sitt blómstra á
vinnumarkaðinum.“
Texti: Guðrún Guðlaugsdóttir
Mynd: Lárus Karl Ingason
Það er erfitt að koma í nýtt samfélag eftir
að hafa unnið jafnvel sérhæfð störf á sínum
heimaslóðum. Þá er fyrir hendi fræðilegur
grunnur sem væri hægt að nýta, einkum ef
viðkomandi nær tökum á íslensku.
56 57virk.is virk.is