Ársrit um starfsendurhæfingu - 2022, Side 57

Ársrit um starfsendurhæfingu - 2022, Side 57
 VIÐTAL endilega af því þeir séu lesblindir, heldur hafa þeir „týnst“ í kerfinu – kannski verið fyrirferðalitlir. Eftir hrunið var tekin sú ákvörðun að minnka sérkennslu og fjölga í bekkjum. Þetta er á kostnað þeirrar kynslóðar sem er fædd í kringum aldamótin. Samhliða þessu hafa orðið miklar breytingar í tæknimálum, nefnum símana og tölvunotkunina. Margir líta þetta horn- auga en við ættum frekar að fagna þessari breytingu og nota hana á réttan hátt. Orðaforðinn ólíkur milli kynslóða en líklega hefur unga fólkið alltaf átt sitt tungumál á hverjum tíma. VIRK hefur gert starfsendurhæfingu markvissari Óneitanlega heldur það manni ungum að umgangast ungt fólk. Við vorum með árshátíð í sal um daginn. Þar mættu um sjötíu nemendur. Við vorum með plötusnúð og dönsuðum og skemmtum okkur saman. Hluti af endurhæfingunni er einmitt að læra að taka þátt í slíkum félagslegum aðstæðum. Ég gaf nemendum leyfi til þess að skreyta salinn og fékk þeim í hendur ákveðna fjárhæð til þess en skipti mér að öðru leyti ekki að. Ég kom svo að skoða salinn og leist mjög vel á. Starfskona í salnum sagði að það hefði komið kona vegna fermingarveislu. Hún hafi haft orð á því hvað salurinn væri ofboðslega flottur og vildi vita hvaða fyrirtæki hefði séð um skreytinguna. Þetta var hópnum kærkomin viðurkenning, innan hans komu í ljós hæfileikar. Slíkt þarf að örva og benda á. Maður þarf að leggja áherslu á að manneskjan er fyrst og svo koma alls konar greiningar. Ég hef starfað í fullorðinsfræðslu síðan 1999. Þá voru allir að gera þetta sitt í hvoru horninu en eftir að VIRK kom til sögunnar varð endurhæfing markvissari og fjölbreyttari, meira er nú vitað um þjónustuþega og sögu þeirra, það hjálpar við starfsendurhæfingu. VIRK er með sérfræðinga sem fylgjast vel með og gott að geta leitað til þeirra. Hringsjá er sem fyrr greindi liður í starfs- endurhæfingarferli hjá VIRK. Við gerum árangurskannanir reglulega, síðast 2020 og náði hún til áranna 2012 til 2019, þá voru áttatíu prósent af þeim sem höfðu útskrifast frá Hringsjá í námi eða starfi og tókum þó ekki með þá sem voru á skrá hjá Vinnumálastofnun.“ Hverjir leita til Hringsjár almennt? „Fólk sem hingað kemur er á öllum aldri og kynjum. Það útskrifast eftir þrjár annir í námi sem í grunninn samanstendur af íslensku, stærðfræði, tölvuleikni og ensku,“ segir Helga og minnir á hópmyndir af úrskrifuðum nemendum Hringsjár sem prýða veggi húsnæðisins. Meðalaldur nemenda Hringsjár nú tæp 29 ár Hver stofnaði Hringsjá? „Hringsjá hefur verið til frá 1987. Það er í eigu ÖBI. Fyrst var starfsemin á níundu hæð í Hátúni 10 en þetta hringlaga í samræmi við breytingar og nýgengi örorku. Nú er meira hér um fólk með fjöl- þættan vanda sem hefur dottið út af vinnumarkaði vegna slysa eða veikinda. Ýmsir sem koma hingað þurfa að finna sér nýjan starfsvettvang. Smám saman hefur starfsemin því þróast á þann veg sem hún er í dag. Þegar ég hóf störf hér árið 2006 var meðal- aldur þeirra sem sóttu endurhæfingu hingað 37,4 ár. Núna, sautján árum seinna, er meðalaldurinn tæp tuttugu og níu ár. Stærsti hópurinn sem er hér við nám í dag er á milli tuttugu og þrjátíu ára. Margir þeirra hafa dottið úr námi í framhaldsskóla og jafnvel grunnskóla. Ástæðurnar eru ýmsar, svo sem skólaforðun, einelti og neysla. Það liggja því margvíslega ástæður að baki. Þegar fólki er vísað hingað frá VIRK þá heldur það sambandi við ráðgjafa sinn þar, en við tökum yfir starfsendurhæfinguna, höldum utan um sjúkraþjál fun, sálfræðiviðtöl og fleira. Hringsjá er fyrst og fremst starfsendurhæfing og námið er hluti af henni. Kröfur vinnumarkaðarins eru ræddar. Stundum þarf fólk að læra að mæta á réttum tíma, láta vita ef það er veikt og fá leyfi ef það þarf að fara til læknis. Einnig er lögð áhersla á að fólki geti unnið í hóp sem ekki er sérvalið í, rétt eins og er almennt á vinnustöðum. Þótt grunnurinn sé námið – íslenska, stærðfræði, enska og tölvuvinna – þá erum við að vinna með marga aðra þætti meðfram. Þessi fjögur fög eru eigi að síður grunnur að margvíslegu námi, sem fólk getur svo seinna farið í. Varanlegasta endurhæfingin að mennta fólk til starfsréttinda Við gerum alltaf úttektir öðru hverju á því hvernig staðan er á fólki sem útskrifast hjá okkur. Áður fyrr var miklu algengara að fólk færi héðan beint út á vinnumarkaðinn. Nú er meira um að fólk fari í nám í fram- haldsskólum. Ég tengi þetta við það að við erum með yngri hóp núna og einnig þá samfélagslegu kröfu að fólk hafi einhverja menntun til þess að fá starf og halda starfi. Ég vil meina að varanlegasta endurhæfingin sé ef við náum að mennta fólk til einhverra starfsréttinda. Við erum í samstarfi við Fjölbrautarskólann í Breið- holti, Fjölbrautaskólann við Ármúla, Borgar- holtsskóla og Tækniskólann.“ Fólk sem hingað kemur er á öllum aldri og kynjum. Það útskrifast eftir þrjár annir í námi sem í grunninn samanstendur af íslensku, stærðfræði, tölvuleikni og ensku. húsnæði hér var byggt 1995. Vísir að þessari starfsemi byrjaði 1983 sem tölvu- nám fyrir fatlaða. Öryrkjabandalag Íslands og félagsmálaráðuneytið komu svo að starfseminni í Hátúni og hún breyttist í tölvu- og skrifstofuskóla. SEM-samtökin – „Samtök endurhæfðra mænuskaddaðra“ börðust hart fyrir því að þessi skóli yrði til. Á þeim tíma var aðgengi að skólabyggingum almennt ekki gott og því var áherslan mest á skrifstofutengu nám fyrir mænuskaddaða í Hringsjá. Í upphafi var námið tvær annir en varð fljótlega þrjár annir. Síðar komu lyftur og betra aðgengi í skóla og vinnustaði. Við það breyttist samsetning nemendahópsins rétt eins og samfélagið hefur líka gert. Segja má að nemendahópurinn hafi breyst Hvað er erfiðast að eiga við varðandi erfiðleika fólks sem kemur til ykkar? „Neyslan er erfiðust viðureignar. Allir sem koma inn í Hringsjá skrifa undir samstarfssamning. Hringsjá er vímuefna- laust hús og í samningum er kveðið á um leyfi til að athuga hvort fólk sé í neyslu. Við erum í samstarfi við Heilsugæsluna hvað það snertir. Viðkomandi fer þá einn í slíka prófun og það er skilyrði þess að hann geti haldið áfram að mæta hér. En yfirleitt þarf ekki að beita slíkum úrræðum því fólk er almennt hreinskilið og segir bara eins og er.“ Eruð þið í samstarfi við SÁÁ? „Ef á þarf að halda þá vísum við fólki þangað, að fara í viðtal í Von eða við gerum tilvísun til inntökuteymis fíknideildar Landspítalans. Neyslusjúkdómar eru erfiðir og það þarf að taka á þeim strax, síðan er fólk velkomið að meðferð lokinni. Fólk sem er í neyslu getur ekki verið í endurhæfingu, né heldur í vinnu eða skóla. Þeir sem líða af svokallaðri skólaforðun hafa oft upplifað erfiða hluti í skóla – beinlínis stirðna upp þegar þau sjá skólastofurnar. Í húsnæðinu sem við erum í hérna starfar skólinn en í hinni aðstöðunni er meira um námskeið og önnur úrræði. Þar er matsbrautin þar sem metið er hvar fólk er statt. Og þar eru líka námskeið fyrir fólk af erlendum uppruna sem kemur hingað á vegum VIRK. Ég legg mikla áherslu á að starfsmenn læri nöfn þeirra sem koma hingað í endur- hæfingu, að fólki sé heilsað með nafni og fái þar með þá tilfinningu að það tilheyri hóp. Það er svo mikilvægt. Stundum koma upp samskiptavandamál hér eins og annars staðar. Þá bendi ég viðkomandi aðilum á að gott sé að vandinn hafi komið upp hér í Hringsjá þar sem hægt er að vinna úr honum. Fyrir kemur að ég er hér með tvo til þrjá nemendur til að ræða slík mál. Samskiptavandinn sprettur gjarnan upp af því að hér mætist ólíkt fólk. Sumir sem hingað leita eru á einhverfurófinu, aðrir eru með ADHD, síðan er fólk sem kemur úr neyslusamfélaginu sem hefur harðan skráp og harðara orðfæri, sem hinir eru kannski viðkæmir fyrir. Oft þarf maður að benda fólki á að reyna að setja sig í spor hins aðilans, en það gengur auðvitað misjafnlega. Einmitt vegna þess að hingað sækir fólk með fjölþættan vanda þá höfum við fáa í hverjum hóp. Stundum kemur hingað fólk sem er greint til dæmis með vefjagigt, en þegar nánar er að gætt þá er það ekki frumorsökin heldur eitthvað annað sem veldur spennu og vanlíðan. Ungt fólk fær nú í auknum mæli einhverfugreiningu. Það getur haft áhrif á sjálfsmynd viðkomandi. Ég ólst upp í litlu sveitafélagi og þar var mannfólkið misjafnt einsog annars staðar. Reynt var að finna hverjum og einum hlutverk við hæfi. Ég hef á tilfinningunni að það hafi ríkt meira umburðalyndi í þessum efnum hér áður fyrr. Á sama tíma og allskonar greiningum fjölgar gerir vinnumarkaðurinn auknar kröfur um færni, einkum er auglýst eftir fólki sem er frábærlega gott í samskiptum. Þetta fælir þá frá sem eru til dæmis nýbúnir að fá einhverfugreiningu. Þeir sækja bara ekki um. Vissulega er ákjósanlegt að fólk hafi góða hæfni í mannlegum samskiptum en það eru ýmsir aðrir eiginleikar sem nýtast vel í starfi. Okkar hlutverk er ekki síst að finna hvar styrkleikar fólks liggja. Við reynum að fá fólk til að hætta að hugsa um hvað það getur ekki en hugsa þess í stað um hvað það getur. Það eru ekki allir á sama litrófinu í hinu mannlega samfélagi. Við reynum einnig að vekja athygli umhverfisins á því að fólk er ekki allt eins og hver og einn getur haft góða færni á sínu sviði.“ Gleðilegt að hitta nemendur Hringsjár á vinnumarkaði Hvernig tekur fólk þessum greiningum, almennt? „Stundum verða einstaklingar svo upp- teknir af greiningunni að við liggur við að þeir segi frá henni áður en þeir segja nafn sitt. Við leggjum höfuðáherslu á að við erum öll fyrst og fremst manneskjur og hver og ein er með sína sérvisku. Við erum ekki að gera lítið úr greiningunum og vinnum vissulega út frá þeim. En yfirleitt ræðum við greiningar ekki við kennarana nema það beinlínis tengist náminu, til dæmis ef fólk greinist með lesblindu, ADHD, og á því erfitt með að einbeita sér og þar fram eftir götunum. Sumt af því fólki sem kemur frá VIRK hefur nýlega fengið greiningu og sumum er það ákveðinn léttir að fá skýringu á því hvers vegna illa hefur gengið. Og það áttar sig á að það þarf að læra ákveðna tækni í námi og samskiptum. Ef fólk á erfitt með að vera lengi í nánd hefur það aðstöðu hér til að geta dregið sig í hlé og jafnað sig í einrúmi. En það er annað í sambandi við þessar greiningar sem við höfum orðið vör við. Foreldrarnir, eða aðrir aðstandendur, eru kannski algerlega á móti þeim. Þetta virðist vera þeim áfall og þeir sem fá greininguna þurfa stundum að glíma við afstöðu eins og „hvaða vitleysa er þetta“. Fátt gleður mig meira en hitta nemendur Hringsjár sem komir eru í vinnu og gengur vel. Ég veiktist fyrir nokkru og varð að liggja á spítala í sjö daga. Á deildinni minni voru þrír sjúkraliðar sem höfðu útskrifast frá Hringsjá og ég var satt að segja alveg „dekruð í drasl“ – eins og þar stendur. Það er svo gaman að sjá fólkið sitt blómstra á vinnumarkaðinum.“ Texti: Guðrún Guðlaugsdóttir Mynd: Lárus Karl Ingason Það er erfitt að koma í nýtt samfélag eftir að hafa unnið jafnvel sérhæfð störf á sínum heimaslóðum. Þá er fyrir hendi fræðilegur grunnur sem væri hægt að nýta, einkum ef viðkomandi nær tökum á íslensku. 56 57virk.is virk.is

x

Ársrit um starfsendurhæfingu

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ársrit um starfsendurhæfingu
https://timarit.is/publication/1412

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.