Ársrit um starfsendurhæfingu - 2022, Síða 61

Ársrit um starfsendurhæfingu - 2022, Síða 61
AÐSEND GREIN fljótu bragði getur það hljómað eins og tvær hliðar á sama peningi, en getur hinsvegar haft þýðingu í sambandi við meðhöndlun. Í þessu tilviki geta heilbrigðisstarfsmenn gegnt lykilhlutverki í því að kortleggja hvernig einstaklingurinn hreyfir sig venjulega, með það fyrir augum að geta aðstoðað hann við að aðlaga sig að þeim athöfnum sem þarf að framkvæma, í stað þess að hætta þeim alfarið. Þetta getur t.d falist í að breyta setstöðu eða lyftitækni, án þess að það þurfi að þýða að það sé til einhver rétt og/eða röng leið til að beita sér við vinnuna. Lykilatriðið hér er því oft að sýna starfsmanninum (og í mörgum tilvikum vinnuveitandanum einnig) hvernig hægt sé að framkvæma athafnir daglegs lífs og vinnu á mismunandi hátt. Vinna og verkir – sjónarhorn starfsmannsins Það getur vissulega verið streituvaldandi að upplifa skerta starfsgetu og slíkt ástand hefur áhrif bæði heimafyrir og að sjálfsögðu á vinnustaðnum. Þetta getur þýtt að einstaklingurinn upplifi (líkamlega) minnkaða getu til að framkvæma þau verkefni sem vinnan krefst og einnig valdið áhyggjum varðandi framtíðina, atvinnu- öryggi, tekjumissi og þar fram eftir götunum. Í þeim tilvikum sem starfsmaður hefur síendurtekið verið í veikindaleyfi vegna verkja, getur það haft neikvæðar afleiðingar fyrir viðkomandi á vinnustaðnum, þar sem oft er litið niður á einstaklinga í slíkri stöðu15. Öfugt við það sem margir halda, þá getur það að halda áfram að vinna þrátt fyrir verki, verið mikilvægur þáttur í bataferlinu. Ef haft er í huga að verkir/verkur eru yfirleitt margþætt fyrirbrigði (tafla 1), gefur augaleið, að vinnustaðurinn getur oft verið góður vettvangur fyrir endurhæfinguna. Sem dæmi um þetta má nefna að margir upplifa sterk félagsleg tengsl á vinnustaðnum en þau geta rofnað við langvarandi veikindaleyfi. Að sama skapi hefur það sýnt sig að vinnustaðurinn getur haft jákvæð áhrif bæði á heilsu og lífsgæði16. Þegar haft er í huga að uppbyggileg félagsleg tengsl geta dregið úr streitu17 og verkjum18, styður það einnig við það að það geti haft sína kosti að sinna áfram starfi sínu, þrátt fyrir verki. Engu að síður er mikilvægt að hafa hugfast að það að mæta til vinnu þrátt fyrir verki og reyna að berjast í gegnum vinnudaginn, á ekki að vera á ábyrgð einstakra starfs- manna. Frekar á að líta á þetta sem hluta af endurhæfingunni, þar sem starfsmaður, vinnuveitandi og heilbrigðisstarfsmenn vinna saman að því að endurheimta starfs- getu. Vinnan eða starfið verður þannig vett- vangur endurhæfingarinnar. Virk nálgun við meðhöndlun verkja á vinnustað Af ofangreindu má sjá að verkir (vinnu- tengdir eða almennt) eru yfirleitt ekki fyrirbæri sem hægt er að fjarlægja á einfald- an hátt. Í áraraðir hafa rannsóknir að miklu leyti beinst að því að skoða hvort og hvernig hreyfing og líkamsþjálfun, innan og utan vinnustaðarins, geti haft jákvæð áhrif á verki og veikindaleyfi. Niðurstöður rannsókna virðast vera nokkuð einsleitar, þar sem kostir slíkrar nálgunar eru ótvíræðir19-21 og sýna, að markviss, létt líkamsþjálfun og það að auka hreyfingu utan vinnu, getur dregið umtalsvert úr starfstengdum verkjum, auk þess að fækka veikindadögum. Að sama skapi hefur verið sýnt fram á að skipulagðar, reglubundnar pásur/hlé innan vinnudags geti verið góður kostur fyrir þá starfsmenn sem vinna líkamlega krefjandi vinnu22. Það að temja sér reglubundna hreyfingu og almennt að tileinka sér heil- brigðan lífsstíl, er ein af bestu leiðunum til að fyrirbyggja stoðkerfisverki á vinnustað og utan hans23,24. Við erum ekki öll steypt í sama mót. Þetta gildir einnig um hreyfingu og þjálfun innan og utan vinnu. Þar af leiðandi er mikilvægt að slík nálgun taki mið af einstaklingsbundnum þörfum og áhuga. Að öðrum kosti er hætt við að verkefnið verði ekki langlíft, heldur einungis átak sem lýkur þegar áhuginn þverr. Þess vegna er mikilvægt, til þess að tryggja langlífi slíkrar nálgunar, að þjálfunin sé skemmtileg, fjölbreytt og viðeigandi miðað við þær athafnir sem vinnan krefst. Hvernig getur vinnan hjálpað við að ná bata? Vinnan/starfið sem endurhæfing, hefur það að markmiði að snúa aftur til vinnu, þar sem athyglinni er beint að vinnunni en ekki verkjunum. Fyrir stóran hluta fólks með viðvarandi/þráláta verki, getur virst óhugsandi að snúa aftur til vinnu fyrr en hægt er að ná einhverri stjórn á verkjun- um25. Lykilatriði í því að geta snúið til baka er, í þessu samhengi, samvinna milli samstarfsmanna/vinnufélaga, yfirmanna og starfsmannsins sjálfs, þar sem allir þessir aðilar taka virkan þátt í ferlinu15. Í þessu samhengi hefur það sýnt sig, að markviss samvinna skiptir miklu máli. Þar er verkefnum deilt niður í afmarkaða þætti, þar sem hægt væri að taka tillit til einstakra þarfa t.d. með sveigjanlegum vinnutíma, svigrúmi til að takast á við versnandi einkenni og stjórnun á vinnuálagi25. Vinna sem hluti af endurhæfingu hefur það að markmiði að vinna með verkja- vandamálið í því samhengi og umhverfi sem starfsmaðurinn er á leið tilbaka í, en þetta getur einmitt stutt við þau gildi og sjálfsmynd sem starfsmaðurinn hefur26. Slík nálgun á helst að fela í sér alla þá jákvæðu þætti sem það að vera í vinnu (í stað þess að vera í meðhöndlun á stofu eða endurhæfingarmiðstöð) felur í sér, t.d. samskipti við samstarfsfólk, upplifun af því að leggja eitthvað af mörkum og að sjá tilgang með þeim æfingum og verkefnum sem unnið er með. Með því að nýta vinnuna og vinnustaðinn sem mikilvægan hluta af meðferðarferlinu, styrkist sambandið milli vinnuveitanda/ vinnustaðar og starfsmannsins, enda ekki um eiginlegt veikindaleyfi og fjarveru að ræða, heldur tímabil þar sem verkefnin eru aðlöguð að endurhæfingarferlinu. Þessi nálgun getur verið heillavænlegri kostur en að vera í veikindaleyfi og vera fjarverandi frá vinnustað, en sýnt hefur verið fram á Sú nálgun sem lýst er hér felur hinsvegar í sér að heilbrigðisstarfsfólk ætti í miklu meiri mæli að vinna að því að endurhæfingin fari fram í þeim aðstæðum sem skjólstæðingar þess eru í. Í þessu tilviki á vinnustaðnum. að erfitt getur reynst að hefja störf að nýju eftir langvarandi fjarveru vegna veikinda. Þetta á bæði við um einstaka starfsmenn, sem geta átt erfitt með að komast í gang á ný,27 og vinnustaðinn sjálfan, þar sem erfitt getur verið að breyta eða aðlaga verkferla að einstaklingi sem hefur verið lengi frá vinnu vegna verkja eða annarra veikinda25. Ef vinnan verður/er hluti af endurhæfingarferlinu, geta starfsmaður og vinnustaður unnið saman að því að aðlaga verkefni að starfsgetu, gjarnan í samstarfi við heilbrigðisstarfsfólk. Nálgun eins og lýst er hér að ofan er ekki ný af nálinni. Það sem er hinsvegar nýtt í þessu samhengi er, hvernig litið er á verki og að hvaða marki þeir eigi að stjórna atvinnuþátttöku. Oft er því haldið fram að forsenda þess að snúa aftur til vinnu sé að verkirnir minnki eða hverfi alveg. Boðskapurinn hér er allt annar, þ.e.a.s. að forsenda þess að verkirnir hverfi sé að starfsmaður snúi aftur til fyrra starfs eða sé í vinnu allt endurhæfingarferlið ef mögulegt er. Þetta krefst þess þó, eins og lýst er að ofan, samvinnu milli vinnustaðarins og starfsmannsins, gjarnan með aðkomu heilbrigðisstarfsfólks. Hlutverk heilbrigðis- starfsfólks hefur í áraraðir verið talið að fjarlægja og lækna einkenni. Sú nálgun sem lýst er hér felur hinsvegar í sér að heilbrigðisstarfsfólk ætti í miklu meiri mæli að vinna að því að endurhæfingin fari fram í þeim aðstæðum sem skjólstæðingar þess eru í. Í þessu tilviki á vinnustaðnum. Höfundar Þorvaldur Skúli Pálsson, Head of Research (Mphty, PhD) Department of Physiotherapy and Occupational Therapy, Aalborg Uni- versity Hospital. Steffan Wittrup McPhee Christensen (Mpthy, PhD) Department of Health Science and Technology, Aalborg University. Department of Physiotherapy, University College of North- ern Denmark, Aalborg. Morten Høgh (MSc, PhD) Musculoskeletal Health and Implementation. Department of Health Science and Technology, The Fac- ulty of Medicine, Aalborg University. Heimildir 1. Chang YF, Yeh CM, Huang SL, et al. Work Ability and Quality of Life in Patients with Work-Related Musculoskeletal Disorders. Int J Environ Res Public Health. 2020;17(9). 2. Parent-Thirion A, Biletta I, Cabrita J, et al. Sixth European working conditions survey– overview report. 2016. 3. De Kok J, Vroonhof P, Snijders J, et al. Work-related musculoskeletal disorders: prevalence, costs and demographics in the EU. European agency for safety and health at work. 2019;1. 4. Isusi I. Work-related musculoskeletal disorders–facts and figures. Luxembourg: European agency for safety and health at work, 2020. In. 5. Rasmussen CDN, Oakman J, Karstad K, Rugulies R, Holtermann A, Stevens ML. Pain management in eldercare employees - the role of managers in addressing musculoskeletal pain and pain-related sickness absence. BMC Public Health. 2022;22(1):432. 6. Huang M, Hajizadeh K, Gibson I, Lee T. Analysis of compressive load on intervertebral joint in standing and sitting postures. Technol Health Care. 2016;24(2):215-223. 7. Falla D, Gizzi L, Tschapek M, Erlenwein J, Petzke F. Reduced task-induced variations in the distribution of activity across back muscle regions in individuals with low back pain. Pain. 2014;155(5):944-953. 8. Wong KC, Lee RY, Yeung SS. The association between back pain and trunk posture of workers in a special school for the severe handicaps. BMC Musculoskelet Disord. 2009;10:43. 9. Lima M, Ferreira AS, Reis FJJ, Paes V, Meziat-Filho N. Chronic low back pain and back muscle activity during functional tasks. Gait Posture. 2018;61:250-256. 10. Slater D, Korakakis V, O'Sullivan P, Nolan D, O'Sullivan K. "Sit Up Straight": Time to Re-evaluate. J Orthop Sports Phys Ther. 2019;49(8):562-564. 11. Korakakis V, O'Sullivan K, O'Sullivan PB, et al. Physiotherapist perceptions of optimal sitting and standing posture. Musculoskelet Sci Pract. 2019;39:24-31. 12. Nolan D, O'Sullivan K, Stephenson J, O'Sullivan P, Lucock M. What do physiotherapists and manual handling advisors consider the safest lifting posture, and do back beliefs influence their choice? Musculoskelet Sci Pract. 2018;33:35-40. 13. Korakakis V, O'Sullivan K, Whiteley R, et al. Notions of “optimal” posture are loaded with meaning. Perceptions of sitting posture among asymptomatic members of the community. Musculoskeletal Science & Practice. 2021;51. 14. Andersen LL, Vinstrup J, Sundstrup E, Skovlund SV, Villadsen E, Thorsen SV. Combined ergonomic exposures and development of musculoskeletal pain in the general working population: A prospective cohort study. Scand J Work Environ Health. 2021;47(4):287-295. 15. Bean DJ, Dryland A, Rashid U, Tuck NL. The Determinants and Effects of Chronic Pain Stigma: A Mixed Methods Study and the Development of a Model. J Pain. 2022;23(10):1749-1764. 16. Waddel G, Burton A. Is work good for your health and well-being? London: TSO; 2006. 17. Jay K, Andersen LL. Can high social capital at the workplace buffer against stress and musculoskeletal pain?: Cross- sectional study. Medicine (Baltimore). 2018;97(12):e0124. 18. Nicolardi V, Panasiti MS, D’Ippolito M, Pecimo GL, Aglioti SM. Pain perception during social interactions is modulated by self-related and moral contextual cues. Scientific Reports. 2020;10(1):41. 19. Tersa-Miralles C, Bravo C, Bellon F, Pastells-Peiró R, Rubinat Arnaldo E, Rubí- Carnacea F. Effectiveness of workplace exercise interventions in the treatment of musculoskeletal disorders in office workers: a systematic review. BMJ Open. 2022;12(1):e054288. 20. Kelly D, Shorthouse F, Roffi V, Tack C. Exercise therapy and work-related musculoskeletal disorders in sedentary workers. Occupational Medicine. 2018;68(4):262-272. 21. Eisele A, Schoser D, Klein M, et al. Interventions for preventing back pain among office workers – a systematic review and network meta-analysis. Scandinavian Journal of Work, Environment & Health. 2022;49. 22. Gupta N, Rasmussen CL, Hartvigsen J, et al. Physical Activity Advice for Prevention and Rehabilitation of Low Back Pain- Same or Different? A Study on Device-Measured Physical Activity and Register-Based Sickness Absence. J Occup Rehabil. 2022;32(2):284-294. 23. Palmlöf L, Holm LW, Alfredsson L, Magnusson C, Vingård E, Skillgate E. The impact of work related physical activity and leisure physical activity on the risk and prognosis of neck pain – a population based cohort study on workers. BMC Musculoskeletal Disorders. 2016;17(1):219. 24. Dzakpasu FQS, Carver A, Brakenridge CJ, et al. Musculoskeletal pain and sedentary behaviour in occupational and non- occupational settings: a systematic review with meta-analysis. Int J Behav Nutr Phys Act. 2021;18(1):159. 25. Grant M, Rees S, Underwood M, Froud R. Obstacles to returning to work with chronic pain: in-depth interviews with people who are off work due to chronic pain and employers. BMC Musculoskeletal Disorders. 2019;20(1):486. 26. Haugli L, Maeland S, Magnussen LH. What facilitates return to work? Patients' experiences 3 years after occupational rehabilitation. J Occup Rehabil. 2011;21(4):573-581. 27. Faour M, Anderson JT, Haas AR, et al. Prolonged Preoperative Opioid Therapy Associated With Poor Return to Work Rates After Single-Level Cervical Fusion for Radiculopathy for Patients Receiving Workers' Compensation Benefits. Spine (Phila Pa 1976). 2017;42(2):E104-e110. 60 61virk.is virk.is
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Ársrit um starfsendurhæfingu

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ársrit um starfsendurhæfingu
https://timarit.is/publication/1412

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.