Ársrit um starfsendurhæfingu - 2022, Síða 64
VIÐTAL
Guðrúnar Rakelar Eiríksdóttur, klínískra
sálfræðinga og sérfræðinga í kulnun.
Markmið þekkingarsetursins er meðal
annars að sinna vísindalegum rannsóknum
á kulnun og kulnunareinkennum og miðlun
hagnýtrar þekkingar og bjargráða til
einstaklinga og vinnustaða.
Einnig hefur VIRK haldið úti svonefndri
eftirfylgdarkönnun um árabil á stöðu
útskrifaðra einstaklinga á vinnumarkaði.
Könnuninni má að einhverju leyti líkja við
ferilrannsóknir (e. cohort studies) þar sem
hópum einstaklinga er fylgt reglubundið
eftir. Hringt er í einstaklinga sem lokið hafa
þjónustu á u.þ.b. sex mánaða fresti í allt
að þrjú ár eftir að þjónustu lýkur. Á næstu
misserum er áætlað að nýta gögnin til að
meta breytingar á stöðu einstaklinga á
vinnumarkaði eftir bakgrunni.
Faraldsfræðilegar rannsóknir
meðal almennings
Í byrjun síðasta árs fékk VIRK Maskínu til að
framkvæma könnun á viðhorfi og þekkingu
almennings á VIRK. Þátttakendur voru
einnig spurðir um andlega og líkamlega
heilsu sína, fjárhagsstöðu og heilsutengd
lífsgæði (EQ5D). Þetta gafst svo vel að
VIRK ákvað í lok síðasta árs að leggja í tvær
rannsóknir af samskonar umfangi; aðra
til að greina afdrif og líðan einstaklinga
sem ljúka þjónustu hjá VIRK og hina til
að meta algengi kulnunareinkenna hjá
einstaklingum á íslenskum vinnumarkaði.
Rannsóknasamstarf við
þjónustuaðila 2022
Hér verður sagt frá þremur rannsóknaverk-
efnum á vegum þjónustuaðila sem VIRK
studdi síðastliðið ár (eitt þeirra er þó enn
yfirstandandi) og eru nokkuð lýsandi fyrir
áherslur VIRK þessi misserin. Hér að aftan
í ársritinu má finna stutt viðtöl við þessa
aðila þar sem m.a. var spurt um mikilvægi
rannsókna fyrir starfsendurhæfingu, megin
áskoranir í rannsóknunum og mikilvægi
samstarfs við VIRK.
Hafa ber í huga að rannsóknasamstarf
VIRK við þjónustuaðila er af ýmsum toga
og fer eftir aðstæðum og umfangi hverju
sinni. Í sumum tilvikum er samstarfið
fólgið í stuðningi sjóðsins við framkvæmd
árangursmælinga – og birtingu á
niðurstöðum þeirra – en í öðrum er
samstarfið umfangsmeira og krefst meiri
þátttöku af hálfu sérfræðinga VIRK.
Gott dæmi um hið síðarnefnda er aðkoma
sérfræðinga og ráðgjafa VIRK í að
skima fyrir heppilegum þátttakendum í
rannsóknum sem uppfylla ákveðin skilyrði.
VIRK stefnir að því að auka stuðning við
slíkar rannsóknir þó með þeim fyrirvara að
stuðningurinn krefjist ekki meiri mannafla
og/eða annarra bjarga en VIRK hefur yfir að
ráða á hverjum tíma fyrir sig.
Hugræn atferlismeðferð (HAM) við
áföllum
Í tilraunaskyni var sett á laggirnar hugræn
atferlismeðferð í formi hópmeðferðar fyrir
karlkyns þolendur áfalla eða erfiðrar lífs-
reynslu í æsku annars vegar og kvenkyns
þolendur hins vegar, undir stjórn Sjafnar
Evertsdóttur, sérfræðings í klínískri sálfræði
hjá Áfalla- og sálfræðimiðstöðinni.
Markmið meðferðarinnar er að draga
úr áhrifum erfiðrar æsku á daglegt líf
þátttakenda í dag og aðstoða þá við að
þróa uppbyggileg bjargráð. Úrræðið
hafði ekki verið í boði hjá VIRK og var því
ákveðið að meta hentugleika þess fyrir
starfsendurhæfingu áður en ákvörðun væri
tekin um að bjóða upp á það reglubundið.
Sótt var um leyfi fyrir rannsókninni hjá
Vísindasiðanefnd og lofa fyrstu niðurstöður
afar góðu. Í byrjun árs 2023 var því ákveðið
að endurtaka rannsóknina og er fyrirhugað
að birta niðurstöður í ritrýndu fagtímariti.
Sjá viðtal við Sjöfn Evertsdóttur hér á eftir.
Rannsókn á árangri ACT meðferðar
Skammstöfunin ACT stendur fyrir
Acceptance and Commitment Therapy
og byggir m.a. á hugmyndafræði HAM
(hugræn atferlismeðferð). Eins og HAM er
ACT gagnreynd sálfræðimeðferð þar sem
lögð er áhersla á að einstaklingur gangist
við stöðu sinni eins og hún er nú og átti
sig á því að erfiðleikar og áskoranir séu
órjúfanlegur þáttur lífsins.
Í rannsóknasamstarfinu við VIRK var
árangur tveggja úrræða metinn, þ.e. annars
vegar hópmeðferð við þrálátum verkjum
og hins vegar hópmeðferð við fjölþættum
geðvanda, að fengnu leyfi frá Vísinda-
siðanefnd. Notast var við einliðasnið
(e. single-subject design) til að meta
árangurinn en slíkar aðferðir eru vel til þess
fallnar að meta breytingar á líðan og atferli
einstaklinga meðan á meðferð stendur og í
einhvern tíma eftir að henni lýkur.
Sjá nánari upplýsingar hér á eftir í viðtali
við Dr. Rúnar Helga Andrason, sérfræðing
í klínískri sálfræði og ábyrgðarmann
rannsóknarinnar.
Rannsókn á áhrifum og árangri
námskeiðsins Sigrum streituna
Sigrum streituna hjá heilsuræktarstöðinni
Primal Iceland er vel nýtt námskeið hjá
VIRK. Fagleg ábyrgð á námskeiðinu er í
höndum Írisar Huldar Guðmundsdóttur,
íþróttafræðings og heilsumarkþjálfa, og er
fólgið í reglubundinni líkamsþjálfun, hreyf-
ingu og öndunaræfingum ásamt almennri
fræðslu um áhrif streitu á líkama og huga.
Öfugt við úrræðin tvö hér að ofan er Sigrum
streituna ekki gagnreynt meðferðar-
úrræði sem slíkt og því ber að lesa
rannsóknarniðurstöður um árangur þess
með það í huga. Á hinn bóginn virðist
námskeiðið gagnast þeim vel sem taka
þátt í því. Tveir háskólanemar á B.S. stigi
í sálfræði mátu árangur þess og birtu í
lokaritgerð sinni sl. vor undir handleiðslu
Dr. Tómasar Kristjánssonar, sálfræðings
hjá Kvíðameðferðarstöðinni og aðjúnkts í
sálfræði við HÍ. Sjá nánar í viðtali við Tómas
hér á eftir.
Öll rannsóknaverkefnin þrjú hafa gengið vel
og hafa skapað ný tækifæri í þróun úrræða
í starfsendurhæfingu og skerpt á mikilvægi
árangursmælinga á þeirri þjónustu
sem í boði er. Þekkingin sem verður til í
rannsóknasamstarfi er ómissandi fyrir
áframhaldandi þróun starfsendurhæfingar.
Til að geta mætt hinum síbreytilegu þörfum
vinnumarkaðar í nútíma samfélagi þarf
VIRK að eiga rödd á meðal þjónustuaðila
og vísindafólks um þau úrræði sem í boði
eru og eiga þannig kost á að finna bestu
lausnina hverju sinni.
En víkjum nú sögunni að hinum áhuga-
verðu rannsóknaverkefnum sem fjallað er
um í greininni og gefum rannsakendum
orðið.
Heimild
Jeehee Min o.fl. (2019). The Fourth
Industrial Revolution and Its Impact on
Occupational Health and Safety, Worker‘s
Compensation and Labor Conditions.
Safety and Health at Work, 10 (4).
LJÓSIÐ
Í MYRKRINU
SJÖFN EVERTSDÓTTIR sálfræðingur
ÁFALLA- OG SÁLFRÆÐIMIÐSTÖÐIN Í KÓPAVOGI HEFUR
VERIÐ MEÐ ÞJÓNUSTUÞEGA FRÁ VIRK Á NÁMSKEIÐI Í
HUGRÆNNI ATFERLISMEÐFERÐ. „ÞETTA ER JAFNFRAMT
ÁFALLAMIÐUÐ RANNSÓKN SEM VIÐ ERUM MEÐ Í
SAMVINNU VIÐ VIRK STARFSENDURHÆFINGARSJÓÐ,“
SEGIR SJÖFN EVERTSDÓTTIR, SÉRFRÆÐINGUR
Í KLÍNÍSKRI SÁLFRÆÐI SEM ER ÁBYRGÐARAÐILI
RANNSÓKNARINNAR.
Við hittum Sjöfn í húsnæði Áfalla- og
sálfræðimiðstöðvarinnar að Hamraborg 11.
„Tilgangur rannsóknarinnar er að kanna
nánar árangur hópmeðferðarúrræðisins
sem þróað var sérstaklega fyrir fólk með
sögu um áföll eða erfiða lífsreynslu í æsku,“
segir Sjöfn.
Hafa áföll í bernsku áhrif á starfsgetu
fólks?
„Já, þau geta haft það. Saga um áföll
í æsku á borð við ofbeldi, missi eða
vanrækslu getur haft hamlandi áhrif á
fólk á fullorðinsárum meðal annars á
vinnumarkaði. En það þarf þó ekki að vera
því áföll geta líka haft eflandi áhrif, gert fólk
64 65virk.is virk.is