Ársrit um starfsendurhæfingu - 2022, Side 85
VIRK
ENDURKOMA TIL VINNU
AÐ AFLOKNU VEIKINDALEYFI
RANNSÓKN VIRK OG STÉTTARFÉLAGA
INGIBJÖRG LOFTSDÓTTIR sviðsstjóri hjá VIRK
SVANDÍS NÍNA JÓNSDÓTTIR verkefnastjóri hjá VIRK
Stéttarfélögin sem tóku þátt voru: Afl – starfsgreinafélag, BHM,
BSRB, Efling, Eining – Iðja, Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga,
Kennarasamband Íslands, Verkvest (Verkalýðsfélag Vestfirðinga),
Verkfræðingafélag Íslands og VR.
Markmið rannsóknarinnar var að kanna hvort einstaklingar í veikindum snúi
aftur til vinnu og hvaða þættir í umhverfi þeirra, á vinnustað eða í einkalífi
gætu mögulega haft áhrif þar á. Rannsóknin var á vegum Forvarnasviðs VIRK
en forvarnir VIRK snúast um að sporna gegn brotthvarfi af vinnumarkaði, þá
sér í lagi vegna álagstengdra einkenna. Rannsóknin (sem er oft kölluð for-
varnarannsóknin til einföldunar) á sér nokkurra ára sögu og má rekja til sam-
starfs VIRK við ýmsa aðila, m.a. VR stéttarfélag, Vinnueftirlitið o.fl.
Í þessari grein eru fyrstu niðurstöður birtar og í ljósi umfangs rannsóknarinar
er einungis stiklað á stóru í umfjölluninni. Á næstu vikum og mánuðum er
stefnt að því að birta fleiri niðurstöður, m.a. um álagsþætti í starfi og daglega
streitu, svo fátt eitt sé nefnt.
Í ÞESSARI GREIN ER FJALLAÐ
UM FYRSTU NIÐURSTÖÐUR
UMFANGSMIKILLAR RANN-
SÓKNAR Á VEGUM VIRK OG
SJÚKRASJÓÐA TÍU STÉTTAR-
FÉLAGA Á ATVINNUSTÖÐU
EINSTAKLINGA SEM
HÖFÐU FENGIÐ GREIDDA
SJÚKRADAGPENINGA VEGNA
VEIKINDA ÁRIN 2018 OG 2019.
Framkvæmd og heimtur
Til gagnaöflunar var ítarlegur spurningalisti
sendur til allra einstaklinga sem fengið
höfðu greiðslur úr sjúkrasjóðum við-
komandi stéttarfélaga og höfðu ekki sagt
sig frá könnun í upphafi. Spurningarnar
voru þess eðlis að þær spönnuðu allt
tímabilið frá því fyrir veikindaleyfi og til
þess tíma er könnunin var lögð fyrir (mars
til september 2022). M.a. var spurt um
starf, starfsvettvang, vinnufyrirkomulag,
fjárhagsstöðu, einelti og áreitni og afstöðu
til vinnustaðar fyrir veikindaleyfi sem og
ástæður veikindaleyfisins. Einnig var spurt
um atriði í veikindaleyfinu sjálfu, m.a. hvort
þátttakendur hefðu leitað til læknis eða í
líklegt er að í svarendahópnum sé öll
flóran til staðar, allt frá einstaklingum með
minni eða tímabundin veikindi til mjög
veikra einstaklinga sem áttu það á hættu
að detta varanlega út af vinnumarkaði. Í
þriðja lagi var yngra fólk langtum ólíklegra
til að taka þátt í rannsókninni en eldra
fólk og hið sama gilti um karla. Vegna
þessa voru gögnin vigtuð með tilliti til
kyns, aldurs og stéttarfélagsaðildar í
þýðinu, þ.e. í hópi þeirra sem fengu
sjúkradagpeninga á umræddu tímabili.
Með hliðsjón af hinu flókna sambandi sem
jafnan er á milli heilsufars fólks, viðhorfa og
vinnumarkaðsþátttöku er ráðlegt að stíga
varlega til jarðar við túlkun niðurstaðna og
varast ályktanir um orsakasamband.
ára og eldri (16%). Um 32% þátttakenda
höfðu lokið háskólaprófi, 37% eru með
framhaldsskólapróf eða starfsmenntun/
iðnskólapróf og um þriðjungur hefur ekki
lokið prófi umfram grunnskóla (31%).
Líkt og VIRK hefur fjallað um áður hafa
rannsóknir sýnt fram á tiltölulega sterk
tengsl á milli heilsufars og menntunar.
Alla jafna eru langveikir einstaklingar
líklegri en aðrir til að vera með minni
menntun og lægri tekjur2. Niðurstöður
Framkvæmdamáti Net-, síma- og póstkönnun
Tímabil gagnaöflunar Mars til september 2022
Fjöldi í þýði 5.857
Fjöldi svarenda 1.952
Svör nýtt við úrvinnslu könnunarinnar 1.840
Svarhlutfall (brúttó) 31%
Bakgrunnur svarenda og
starfsvettvangur fyrir veikindaleyfi
Heilt á litið er algengara að konur sæki
um sjúkradagpeninga hjá sjúkrasjóðum
stéttarfélaga1 en karlar. Niðurstöður
þessarar könnunar eru í samræmi við það,
en um 66% svarendahópsins eru konur
og 34% karlar. Hvað varðar skiptingu
eftir aldri (mynd 1) eru hlutfallslega flestir
á aldrinum 30-39 ára (25%) en fæstir í
aldurshópunum 50-59 ára (17%) og 60
Markmið
rannsóknarinnar
var að kanna hvort
einstaklingar í
veikindum snúi aftur
til vinnu og hvaða
þættir í umhverfi
þeirra, á vinnustað
eða í einkalífi gætu
mögulega haft áhrif
þar á.
0% 10% 20% 30% 40% 50% 60% 70%
Aldursdreifing
Menntunarstig
66%Konur
Karlar
60+
50-59 ára
40-49 ára
30-39 ára
20-29 ára
Háskólapróf
Framhaldssk. / starfsnám
Grunnskólapróf eða minna
34%
16%
17%
21%
25%
22%
32%
37%
31%
Hlutfallsleg skipting svarenda eftir
kyni, aldri og menntunarstigi
Mynd 1
önnur úrræði, farið í starfsendurhæfingu,
í líkamlega endurhæfingu, til sálfræðings
o.s.frv. Að síðustu var spurt út í aðstæður
eftir veikindaleyfið, m.a. stöðu á vinnu-
markaði, upplifaða streitu, heilsufar og
persónulegt viðhorf. Framkvæmd rann-
sóknarinnar var í höndum Félags-vísinda-
stofnunar Háskóla Íslands. Líkt og algengt
er í rannsóknum núorðið voru heimtur –
eða svarhlutfall - lágt en gild svör fengust
frá 1.840 einstaklingum sem svarar um
31% svarhlutfalli (brúttó).
Fyrirvarar
Þó lágt svarhlutfall sé nánast orðið reglan
í rannsóknum í dag er það óheppilegt
í þessu tilviki þar sem breytileiki í þýði
er umtalsverður. Störfin innan stéttar-
félaganna - sem þátttakendur í könnuninni
voru meðlimir í - eru afar ólík. Ekki einungis
eru þau ólík á milli félaga heldur einnig
innan þeirra. Það er t.a.m. nokkuð líklegt
að meðal félagsfólks í Félagi hjúkrunar-
fræðinga sé minni breytileiki en á meðal
félagsmanna Eflingar eða VR.
Annað sem veldur vandkvæðum í
úrvinnslunni er að lítið er vitað um eðli og
umfang veikindanna sem þátttakendur
í rannsókninni hökuðu við. Við vitum að
það voru vissulega veikindi til staðar.
Það sem við vitum ekki - hins vegar – er
hversu alvarleg veikindin voru. Nokkuð
84 85virk.is virk.is