Ársrit um starfsendurhæfingu - 2022, Page 95
ÚTGÁFA VIRK
VIRK gefur út margvíslegt kynningar- og fræðsluefni fyrir
starfsmenn, þjónustuþega VIRK, almenning og stjórnendur í
atvinnulífinu. Hægt er að nálgast efnið á vefsíðu VIRK (virk.is)
en einnig er hægt að hafa samband við skrifstofu VIRK og fá
senda bæklinga og fræðsluefni eftir þörfum.
Dagbók 2023
VIRK gefur út sérstaka dagbók fyrir einstaklinga sem eru í
starfsendurhæfingu á vegum VIRK. Henni er ætlað að
aðstoða einstaklinga við að efla starfsgetu sína og lífsgæði
með skipulegri markmiðssetningu og skráningu. Dagbókin er
með vikuyfirliti á hverri opnu ásamt fjölbreyttum möguleikum
til skráningar á markmiðum, líðan, virkni og árangri bæði fyrir
árið í heild sinni, hvern mánuð og hverja viku ársins.
Starfsendurhæfing samhliða vinnu
Gefinn var út bæklingur um starfsendurhæfingu samhliða
vinnu fyrir stjórnendur og starfsmenn. Rannsóknir sýna
að úrræði sem tengjast vinnustaðnum eru oft árangursrík
og að vinnan sjálf getur oft verið besta úrræðið í starfs-
endurhæfingunni. Í ljósi þessa hefur VIRK lagt aukna áherslu
á starfsendurhæfingu samhliða vinnu undanfarin misseri og
hafa margir þjónustuþegar nýtt sér þennan kost
Stjórnendahjólið
Forvarnasvið VIRK gaf út Stjórnendahjólið sem er hentugt
tæki fyrir stjórnendur á vinnustöðum. Stjórnendahjólið sýnir
sex grunnforsendur að heilbrigðum vinnustað samkvæmt Dr.
Christina Maslach og úrskýrir um hvað þær snúast.
Það má ekkert lengur
VIRK stóð fyrir vitundarvakningu um kynferðislega áreitni á
vinnustöðum á haustdögum 2022 í samstarfi við auglýsinga-
stofuna Hvíta húsið. Hryggjarstykki vitundarvakningarinnar
voru auglýsingar sem höfðu það að markmiði að beina sjónum
að þessu þjóðfélgsmeini, vekja upp umræðu og vísa fólki inn á
gagnlegt efni og upplýsingar á sérstakri undirsíðu á velvirk.is.
Vitundarvakningin hlaut tvo Lúðra í mars 2023. Lúðurinn eru
verðlaun sem ÍMARK, samtök markaðs- og auglýsingafólks, og
Samband íslenskra auglýsingastofa veita fyrir mest skapandi og
árangursríkustu auglýsingar og kynningarherferðir hvers árs.
Þátttaka í ýmsum
úrræðum í
starfsendurhæfingu
Beiðni frá lækni um
starfsendurhæfingu samhliða vinnu
Ferli lýkur hjá VIRK
Endurkoma til vinnu í fyrra
starfshlutfall
Upplýsingaöflun; einstaklingur svarar
spurningalista frá VIRK
Umfjöllun hjá
inntökuteymi VIRK
Ferli hjá
atvinnulífstengli
Samskipti við vinnustað
Stigvaxandi endurkoma í
fyrra starfshlutfall
Ferli hjá ráðgjafa
í starfsendurhæfingu
Máli vísað til
ráðgjafa
SAMSTARF VINNUSTAÐAR OG VIRK
Útgefandi: VIRK Starfsendurhæfingarsjóður
Útgáfuár: 2023
Viðtöl: Guðrún Guðlaugsdóttir
Ljósmyndir: Lárus Karl Ingason
Útlit og umbrot: ATARNA – Kristín María Ingimarsdóttir
Teikningar: Kristín María Ingimarsdóttir
Prentun: Litróf
ISSN 1670-8644
VELFERÐARRÁÐUNEYTIÐFJÁRMÁLARÁÐUNEYTIÐ
SAMBAND
ÍSLENSKRA SVEITARFÉLAGA
94 95virk.is virk.is