Heima er bezt - 02.11.1963, Side 9
barátta við fleyga og fiðraða eggjaræningja, svartbakinn og
hann krumma gamla. Loks koma hættulegustu tvífættu ræn-
ingjarnir og laumast í land í Sandey, tveir skuggalegir ná-
ungar með veiðibyssur um öxl. ÓIi og Maggi eru ofurliði
bornir, en sökum ráðkænsku þeirra tekst þeim að sleppa, og
jafnframt að hindra för ræningjanna frá eynni. Neyðarbál
er kynt og hraðbátur lögreglunnar kemur og hirðir þá
kumpána á græna ræningjabátnum. Eftir frækilegan sigur
yfirgefur Óli Sandey til þess að taka að nýju við sendisveina-
starfi sínu í bókabúðinni hjá Jóa frænda.
Yngri kynslóðin bíður með óþreyju hverrar nýrrar bókar
Armanns. Foreldrar og aðrir geta óhikað valið bæku hans til
að gleðja hina yngstu lesendur. Þeir munu vissulega ekki
verða fyrir vonbrigðum.
í lausasölu kr. 120.00. Til áskrifenda HEB aðeins kr. 85.00:
193. BARDAGINN VIÐ
BREKKU-BLEIK
ejtir Hjört Gislason.
í liópi vinsælustu unglinga-
bóka síðustu ára voru bækur
Hjartar Gíslasonar um hrút-
inn Salómon svarta: „Saló-
mon svarti" og „Salómon
svarti og Bjartur".
En í fyrra hóf Hjörtur að
skrifa um sitt hjartans mál,
hestana, og þá kom út bókin
„Garðar og glóblcsi", er segir
frá því, hvernig Garðar eignast Glóblesa, og hver hjálpaði
honum til að heyja fyrir folaldinu og koma upp hesthúsi
yfir það, en það var hann Ásgrímur, gamli sjómaðurinn og
Heima er bezt a. 395