Heima er bezt - 02.11.1963, Qupperneq 10
nágranni Garðars. Og Ásgrímur keypti líka folald, sem hann
nefndi Hrímfaxa, til þess að Glóblesa leiddist ekki.
„Garðar og Glóblesi“ varð geysilega vinsæl bók, og nú
heldur Hjörtur áfram að skrifa um Glóblesa og Hrímfaxa,
sem nú eru orðnir ungir stóðhestar.-------
------í sumardýrð á öræfum leikur lífið við þá Glóblesa
og Hrímfaxa. Að vísu heyja þeir bardaga, vegna þess að báð-
ir vilja vera höfðingjar stóðhrossanna, og Hrímfaxi hverfur
á burt — yfirunninn. En þegar Glóblesi bíður lægra hlut í
bardaga við gamla stóðhestinn Brekku-Bleik, kemur Hrím-
faxi vini sínum til hjálpar. Sumarið líður og alvarlegir at-
burðir gerast.-------
I lausasölu kr. 120.00. Til áskrifenda HEB aðeins kr. 85.00.
192. ADDA LÆRIR AÐ SYNDA
eftir Jennu og Hreiðar Stefánsson.
Þetta er þriðja Oddubókin sem nú kemur út í annarri út-
gáfu. Áður eru komnar bækurnar „Adda“ og „Adda og litli
bróðir“, en allar þessar bækur hafa verið uppseldar árum
saman, þar til nú hefur verið prentuð önnur útgáfa þeirra.
Margir foreldrar munu minnast þess með ánægju þegar þeir
lásu Öddubækurnar í bernsku sinni, og munu þess vegna
hafa ennþá meira gaman af að gefa börnum sínum þessar
ágætu bækur.
Öddubækurnar eru tilvaldar handa börnum sem eru að
byrja að lesa. Þær eru skrifaðar á léttu máli sem börnin
skilja og prentaðar með mjög skýru letri.
í lausasölu kr. 95.00. Til áskrifenda HEB aðeins kr. 70.00.
194. ÍSAFOLD FER
I SÍLD
eftir Gísla ]. Ástþórsson.
„. .. . Ég vona að þið haf-
ið ekki heyrt þessa sögu áð-
ur um hana Isafold, sem bjó
uppi í sveit i litlu hvítu húsi
með litlu grænu þaki, og
uppi á þaki sat krummi og
krunkaði allan liðlangan
daginn, svo að maður hélt
hann væri orðinn galinn, en
hann var bara svona mikill
mathákur, greyið ....“
Svona byrjar sagan hans
Gísla J. Ástþórssonar um hana Isafold litlu og hann krumma
vin hennar og hann Ólaf kött, en þau lögðu öll land undir
fót og brugðu sér norður á Sigló í síld. Og þar hittu þau
hann Jósafat síldarkóng og lenda í ýmsum ævintýrum. Þessi
barnabók er skrifuð í léttum tón, eins og höfundi hennar er
lagið. Bókina prýða fjölmargar bráðsmellnar myndir eftir
höf. Þetta er bók sem kemur öllum í gott skap, jafnt ungum
sem gömlum.
í lausasölu kr. 95.00. Til áskrifenda HEB aðeins kr. 70.00.
Framhald á bls. 422.
396 a. Heima er bezt