Heima er bezt - 02.11.1963, Qupperneq 36
908. SJALJAPIN
SEGIR FRA
eftir Fjodor Sjaljapin.
Fjodor Sjaljapin fædd-
ist í Rússlandi árið
1873 og dó í París
1938.
I bók þassari rifjar
hann upp minningar
um æskuheimili sitt,
uppvaxtarár og æskuástir. Hann lýsir harðstjórn föður
síns, drykkjuskap hans, örbirgð heimilisins og óbil-
andi elju móður sinnar.
A listrænan og skemmtilegan hátt bregður hann upp
myndum úr daglegu lífi fólksins, sem hann ólst upp
með, og lætur einkar vel að draga fram hið skoplega
og sérkennilega í fari samborgaranna. Við kynnumst
Sjaljapin sem skósmíðanema, skrifstofumanni, hafnar-
verkamanni og umferðaleikara. Lííið tekur hann jafn-
an ómjúkum tökum, en ekkert fær bugað hinn gáf-
aða og framgjarna æskumann, og í bókarlok er hann,
27 ára gamall, viðurkenndur listamaður, söngvari og
leikari í heimalandi sínu, og á næsta leiti bíður hans
heimsfrægð.
í lausas. kr. 150.00. Til áskrif. HEB aðeins kr. 105.00.
Barna- og unglingabækur Framhald af bls. 396.
191. IMBÚLIMBIMM
eftir Gest Hannson.
Hinn v i n s æ 1 i höfundur
„Stráka“-bókanna hefur nú
skrifað nýja og bráðskemmti-
lega sögu fyrir telpur um
litla stúlku sem kölluð var
Imbúlimbimm. — Þessi litla
stúlka og bróðir hennar eiga
heima uppi í sveit, og það er
alveg makalaust hvað þau
lenda í skemmtilegum og
spennandi ævintýrum saman.
Þetta verður áreiðanlega vin-
sæl bók hjá litlum stúlkum — og sjálfsagt drengjum líka.
Bróðir höf. liefur teiknað margar myndir sem prýða bókina.
í lausasölu kr. 115.00. Til áskrifenda HEB aðeins kr. 80.00.
195. PRINSINN OG RÓSIN eftir Órnar lierg.
Þetta er gullfalleg ævintýrabók í stóru broti með mörgum
óviðjafnanlegum vatnslitamyndum eftir listakonuna frú Bar-
böru Árnason. Þetta verður án efa ein fallegasta barnabókin
á markaðinum í ár, enda hefur frú Barbara fyrir löngu hlot-
ið viðurkenningu sem ein mesta listakona hérlendis.
í lausasölu kr. 95.00. Til áskrifenda HEB aðeins kr. 70.00.
422 a. Heima er bezt