Hljóðabunga - 01.03.1975, Page 43
með penna jarðnesks manns. Sjálfur skrif-
aði hann marga tugi bóka, bækur sem
munu geyma orku hans og anda um ókom-
in ár.
Eins og rauður þráður gengur einingin
gegnum kenningar hans. Eining spámann-
anna, trúarinnar og mannkynsins. Hann
leggur áherslu á að aðeins er til einn Guð,
hverju nafni sem maðurinn kýs að nefna
hann. Kenningar Bahá’u’lláh ná til allra
þátta mannlífsins, jafnt efnahagsvanda-
mála sem kynferðislífs. Hann skýrir ýmsa
hluti í umhverfinu og sögunni, varpar ljósi
á eðli þeirra og tilgang.
Bahá’u’Iláh gerir miklar kröfur til ein-
staklingsins og sjálfstæðrar leitar hans,
hann höfðar til samvisku hans í kenningum
sínum. Hann hvetur hvern einasta mann
til að losa sig við fordóma sem hafa villt
manninum sýn og leitt hann á villugötur
öfga og blindni. Bahá’u’lláh hannar baktal
og telur það ægilegustu synd sem hægt er
að drýgja, J)að er hetra að stinga manninn
í bakið með hníf en að baktala hann.
Kenningar Bahá’u’lláh koma öllum við,
hann talar ekki til afmarkaðs hóps eða
heimshluta, heldur alheimsins. Hann hvct-
ur mannkynið til að opna augu sín og
leita sannleikans. Það er skylda hvers ein-
staklings að kynna sér hvað Bahá’u’lláh
er að segja, áður en hann dæmir J)að, sam-
Jjykkir eða mótmælir. Það hefur alltaf
valdið sviptingum í samtímanum Jægar nýr
spámaður hefur komið fram, og mikil
togstreita skapast. Það tekur tíma fyrir
mannkynið að átta sig á Jjessu, en nauð-
synlegt fyrir framþróunina.
Til að kynnast trúnni er best að hafa
beint samband við Bahá’ía og spyrja l)á,
einnig er hægt að fá bækur í bókasöfnum
eða koma á auglýstar kynningar. Ein leiðin
er einnig að skrifa Bahá’í samfélaginu og
hyðja um upplýsingar. Heimilisföngin eru:
Öðinsgata 20, Reykjavík, eða Silfurgata 8,
Isafirði.
4. Hvernig getur kristinn maður viður-
kennt Bahá’u’lláh? Afneitum við ekki Kristi
með ])ví að gerast Bahá’íar?
Enginn maður getur trúað á Bahá’u’lláh
án þess að viðurkenna Krist og alla J)á
spámenn sem á undan hafa komið. Kcnn-
ingar Bahá’u’lláh eru i beinu framhaldi af
kenningum Krists, J)ó ekki J)ær sömu. Hann
bætir við og útskýrir hluti sem verið hafa
fyrir ofan getu mannsins hingað til.
Á hinn bóginn gegnir öðru máli með
kirkjuna, hún hefur lokið sínu hlutverki.
Alltaf þegar njrr spámaður opinberar sig
verður trúarstofnun J)ess næsta á undan
óþörf og önnur tekur við. Það tekur við
n}rtt trúarsamfélag, innblásið af anda hins
nýja spámanns. I þetta skipti skipulagði
spámaðurinn sjálfur samfélagið í höfuð-
atriðum, og sameinar í eitt veraldlegt og
andlegt vald, þjóðfélagið og trúna.
Kæri lesandi, ])að er langt frá því að
kristinn maður sé að svíkja eða snúa haki
við Jesú með J)ví að gerast Bahá’íi, þvert á
móti er það sterkasta J)rá Krists að heims-
byggðin J)ekki eftirmann hans, Bahá’u’lláh.
HLJÓÐABUNGA
43