Blysið : skólablað Gagnfræðaskóla Austurbæjar - 01.12.1959, Side 20
- 20
HEIMUR,
SEM ENGINN ÞEKKIR
ÉG skyggndist inn í hinn undarlega
heim og leit í kringum mig. Ég sá ekki
neitt, sem boriS gat merki um fegurS
eða hlýleika, allt virtist vera svoundar-
lega vel falið. Loks fór ég a5 ganga
um og leita a5 einhverju.
Fyrst gekk ég inn í dimman skóg og
fann loks bjart og fagurt hús, skynsam-
lega byggt. HúsiS var allt hlýlegt og
vandaS, og eftir aS hafa skoðaS það vel,
leitaði ég betur.
Eftir langa göngu kom ég að háum
og orkumiklum fossi og fagurri á.
Fossinn hafði örugglega mikla orku aS
geyma, sem nýta mætti. Að síðustu
kom ég svo að tærri lind með fersku,
heilnæmu vatni.
Síðan hrökk ég uppúr þessum undar-
legu hugsunum mínum.
NÚ fer lesandinn að spyrja : Hvað á
þessi þvæla og vitleysa að þýða ?
og hér kemur skýringin.
I” okkar þjóðfélagi eru til menn, sem
eigi eru andlega heilir á sumum svið-
um, en eru gæddir góðum námsgáfum.
Þessir menn fá bókstaflega aldrei að
njóta sín. Þeir hafa ekki kjark í sér
til þess að koma fram. Þeim hefur
verið strítt í bernsku svo ákaft, að þeir
hafa orðið varir við, að þeir eru ekki
eins í framkomu og aðrir. Við það
bætist svo óskapleg feimni, er nálgast
taugaveiklun.
Ef einhver spyr nú svo barnalega :
"Hvers vegna var verið að stríða þess-
um eða hinum? ", er svona eru gerðir,
ætti hann að líta til bernskuáranna,
æskufélaga sinna og jafnvel í eigin
barm.
Ég hef þekkt mörg börn, sem svona
hafa verið úr garði gerð, og alltaf hef-
ur þeim verið strítt, þótt þeir, er það
gerðu, vissu fullkomlega, að þeir
máttu það ekki og að það var óþverra-
skapur. Börn og unglingar gera sér
þetta engu síður Ijóst en fullorðnir, en
þeim finnst bara gaman að stríða við-
komanda, finna eitthvað nógu áhrifamik-
ið til að strxða honum með, svo ósvífið,
að það særi hann nógu djúpt til þess að
hleypa honum upp, láta hann elta sig,
en hina hlæja að honum.
Þetta er víst hin "eðlilega" mannúð.
Ég þekki nokkra pilta hér í skólanum,
sem þessi tilhneiging er svo rík hjá,
að þeir geta alls ekki setið á henni,
þott þeir reyni með því að predika hið
gagnstæða um leið.
Ég vildi beina þeim tilmælum til
þessara manna, um að predika aðeins
aðra stefnuna í einu og hallast þá helzt
að mínu máli, til þess að þeir geti tal-
izt eðlilegir.
En hugur þeirra vangefnu er eins og
ég lýsti hér x upphafi : Falinn á bak
við feimni og hræðslu við aðra.
Að lokum skora ég á sem flesta að
taka þetta til athugunar.