Heimili og skóli - 01.10.1948, Side 3

Heimili og skóli - 01.10.1948, Side 3
_____________________________________________...__________ Barnablaðið ÆSKAN er elzta og útbr.eiddasta barnablað pessa lands. Upplag ÆSKUNNAR verður aukið á þessu ári upp í 9000. Blaðið kemur út 12 sinnum á ári (suma mánuði tvö- falt blað í einu). Auk þess fá allir skuldlausir kaupend- ur litprentað jólablað. Árgangurinn kostar 12 krónur. Nýir kaupendur eru áminntir um, að senda borgun með pöntun. Við viljum, að hinir ungu kaupendur temji sér skilríki; þess vegna er jólablaðið ekki sent nenia þeim, sem hafa greitt blaðið. Nýir útsölumenn óskast. — Há sölulaun. Utanáskrift til blaðsins er: ÆSKAN, Box 14, Reykjavík. Sjómannaútgáfan tilkynnir: Bókaútgáfa Pálma H. Jónssonar á Akureyri hefur keypt Sjómannaútgáfuna, sem legið hefur niðri nokkuð á annað ár, og ætlar að koma henni á öruggan rekspöl að nýju. Mun útgáfan um mánaðamótin senda frá sér þrjár ekta sjómannabækur. Þær eru þessar: MARGT SKEÐUR Á SÆ, eftir Klaes Krantz. Úrval sannra sjóferðasagna frá ýmsum tím- um og af flestum heimshöfum. í VESTURVEG, skáldsaga eftir C. S. Forester. Þetta er sagan um Hornblower, sjóliðs- foringja, einhverja frægustu sjóhetju Breta á Napóleonstímunum. Skáldsaga þessi, sem er afburða skemmtileg, liefur hvarvetna um heim notið fádæma vinsælda. SMARAGÐURINN, skáldsaga eftir Josef Kjellgren. Hér er um að ræða eitthvert ágæt- asta skáldrit um sjómannalíf, sem samið hefur verið á síðari tímum. Sagan gerist öll um borð í gömlu millilandaskipi og í hafnarborgum. Ógleymanleg bók. Þetta eru allt stórar og góðar bækur, samtals 60 arkir. Þeir, sem gerast vilja áskrifendur, geta fengið þær allar fyrir 75 kr. ób. og 105 kr. í vönduðu bandi. Bókhlöðuverð verður a. m. k. 20% hærra. Bækurnar eru sendar burðargjaldsfrítt hvert á land sem er. Eldri bækur Sjómannaútgáfunnar, 6 að tölu, samtals 90 arkir, fá áskrifendur fyrir 100 kr. iób. og 150 kr. í bandi. Gerist áskrifendur. Sjómannaútgáfan, Akureyri. ——-----------.—— --------------------------------------------------------■—+■

x

Heimili og skóli

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.