Heimili og skóli - 01.10.1948, Blaðsíða 19

Heimili og skóli - 01.10.1948, Blaðsíða 19
HEIMILI OG SKÓLI 115 hann börnin fá gleraug til að koma í veg fyrir að þau yrðu nærsýn. Hann áætlar, að fyrstu þrjú skóla- árin séu börnin látin lesa 30 sinnum meira en tíðkaðist um aldamótin síð- ustu. Augasteinninn er ekki búinn að ná fullum þunga fyrr en á áttunda ári, og fullþroska er hann ekki fyrr en á sextánda ári. „Skólabörn hafa því mjög lítið vald yfir sjón sinni, og varasamt er að reyna of mikið á aug- un,“ segja Marian Breckenridge og E. Lee Vincent í bók sinni „Þroski barna“. Það ætti að vera almenn regla að láta börnin ekki lesa smærra letur en eftirfarandi: Til sjö ára alurs: Þessa leturstærð. Til átta ára aldurs: Þessa leturstærð. Til niu ára aldurs: Þessa leturstærð. Tiu til tólf ára: Þessa leturstærð. Þetta ættu útgefendur barnabóka að hafa í huga. En foreldrar og kenn- arar þurfa einnig að gæta annars. Nægileg birta verður að vera, þegar börnin eru að lesa, skrifa eða teikna, og banna skyldi börnum að lesa í rúm- inu, og umfram allt bækur með smáu letri. Lélegt viðurværi og vítamínskortur segir fljótt til sín með sviða eða óþæg- indum í augum. Þegar líkamlegri heilbrigði er ábótavant, bitnar það oft fyrst á augunum. Sjálfsagt er að láta rannsaka augu barnanna að minnsta kosti einu sinni á ári. Ef bera tekur á nærsýni, ætti að fyrirbyggja strax frekara tjón með gleraugum. í slíkum tilfellum er ekki nauðsyn- legt, að nota gleraugun nema við lest- ur og handavinnu. En ef ekkert er að gert, getur svo farið, að barnið verði dæmt til að vera með gleraugu alla æfi, og sjóninni haldi jafnt og þétt áfram að hraka. Starfið er bezti uppalandinn.

x

Heimili og skóli

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.