Heimili og skóli - 01.10.1948, Blaðsíða 13

Heimili og skóli - 01.10.1948, Blaðsíða 13
HEIMILI OG SKÓLI 109 geti ekki verið glaðir í góðum hópi, nema liaía áfengi þar annars vegar. Friðrik er einlægur bindindismaður og ágætur liðsmaður í þeirri sveit, en þó unr leið einn mesti lirókur alls fagnaðar, hvar sem hann kemur, og miðlar öðrum óspart af hinni ósviknu gleði sinni og lífsfjöri, svo að öllunr líður vel í návist hans. En Friðrik er líka alvörumaður. þegar það á við, og enginn „aktaskrif- ari“ við störf sín, senr kennari og skóla- stjóri. Síðan ég kynntist honum fyrst, hefur hann verið síhugsandi um skóla sinn og nemendur og sílrlustandi eftir öllu því, er gæti orðið skóla- og upp- eldismálum vorum til góða. Hann er talinn prýðilegur kennari, og þó á hann þar sérstaklega eina kjörgrein nreðal nánrsgreinanna, og það er nróð- urmálskennslan, og mun Friðrik vera einn allra hezti og lærðasti móður- málskennari í stétt íslenzkra barna- kennara og hefur gefið út nokkrar á- gætar kennslubækur í þeirri grein. Friðrik Hjartar er kvæntur Þóru Jónsdóttur, ættaðri úr Súgandafirði. Frú Þóra er ein af þessum -ágætu ís- lenzku húsfreyjum, sem byggja upp góð og traust heimili, en hafa þó nokkurn tíma til að sinna ýmsum mannúðar og menningarmálum utan þess mikilvæga verkahrings. Þau hjón eiga 5 mannvænleg börn, senr öll eru uppkomin. Þótt Friðrik Hjartar sé nú orðinn sextugur og eigi vonandi eftir að bæta við sig mörgurn árum og áratugum, er mér ómögulegt að hugsa mér hann sem garnlan mann. Hann verður alltaf ungur, hversu gamall sem hann verður að árum. Þetta er guðagjö.f, sem fáum einum hlotnast. Þótt seint sé, vil ég árna þessum unga manni og ágæta dreng allra heilia við þennan þröskuld ævinnar, og vona, að hann eigi eftir að syngja gleði, heilbrigði og lífsþrótt inn í samtíð sína enn um langt skeið. Hannes J. Magnússon. Samkvæmt hagskýrslum frá Frakk- landi 1911 skiptust þeir menn, er dóu úr lungnabólgu þannig: io ^ Arið 1936 fór fram rannsókn á því í Svíþjóð, hvaða daga vikunnar voru framin ílest afbrot vegna drykkju- skapar. Meðfylgjandi hlutfallamynd sýnir, hvernig þetta var að meðaltali allt árið. Að me^diah <* dag

x

Heimili og skóli

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.