Heimili og skóli - 01.10.1948, Blaðsíða 18
114
HEIMILI OG SKÓLI
Eru námsbækurnar að eyði-
leggja augu barnanna?
Grein úr Úrvali
Börn nú á tímum eru kannske bet-
ur að sér en feður þeirra voru á þeirra
aldri, en augu þeirra hafa sennilega
orðið að gjalda þess. Hinn mikli bóka-
lestur, sem þeim er lagður á herðar,
jafnvel þegar á leikskólaaldri, hefur
valdið örtvaxandi nærsýni hjá börn-
um, sem seinna getur leitt til versn-
andi sjónar.
Á undanförnum 30 árum hefur nær-
sýni í börnum þrefaldast. Þetta er var-
lega áætlað. Rannsóknardeild Ameri-
can Optical Company skýrir frá því,
að sala á nærsýnisgleraugum hafi þre-
faldast síðan 1918. En dr. Theodore
Cohen, starfsmaður hjá heilbrigðis-
málastofnun ríkisins, tekur dýpra í ár-
inni. Hann segir, að nærsýnistilfelli
hjá 15000 skólabörnum í Washington
hafi fimmfaldast fimm fyrstu skólaár-
in — eða fjölgað um 100% á ári að
meðaltali.
Samkvæmt ummælum dr. Wiseberg
frá New York í ,,Year Book of Opto-
metry“ fyrir árið 1940 — og ástandið
hefur stöðugt farið versnandi síðan —
er nærsýni orðin hreinn faraldur:
„Á undanförnum 15 til 20 árum
hefur nærsýni aukizt meira en nokkru
sinn fyrr. . .. Fyrir 10 árum var eitt
barn af hverjum 20 nærsýnt. Nú má
finna greinileg merki um nærsýni hjá
8 af hverjum 10 börnum/
Hver er skýringin á þessu? Það er
staðreynd, að augu mannsins laga sig
eftir því, sem af þeim er krafizt, eins
og aðrir líkamshlutar. Ef þér væri á
unga aldri kennt að ganga lotinn,
mundir þú vafalaust eiga erfitt með
að læra aftur að ganga uppréttur. Aug-
unum er eðlilegt að vera fjarsýn. Þeg-
ar börn lesa, skrifa eða teikna, verður
augasteinninn kúptari til þess að
myndin verði skýr á nethimnunni. Ef
mikil brögð eru að því, að börn rýni
í smátt letur eða annað smágert, er
hætta á, að þau glati að einhverju
leyti hæfileikanum til að festa augun
á fjarlægari hluti fgera augasteininn
flatari).
Arthur B. Bissaillon augnlæknir í
borginn Pittsfield í Bandaríkjunum á
þrjú börn og hefur hann fylgzt ná-
kvæmlega með því, hvaða áhrif skóla-
veran hefur haft á sjón þeirra. Hann
skoðaði augun í þeim áðui en þau
fóru í fyrsta bekk, og voru þau öll fjar-
sýn. Mæld í stigum var fjarsýni þeirra
200.
Eftir sex mánaða skólaveru var hún
komin niður í 150. Ári seinna niður
í 75. Þrem mánuðum þar á eftir var
hún komin niður í núll, og þá lét