Heimili og skóli - 01.10.1948, Page 11

Heimili og skóli - 01.10.1948, Page 11
HEIMILI OG SKÓLI 107 Danskur drengur með steinasafnið sitt. það gera þau hinsvegar ekki, þegar um fávita er að iæða. Sálarfræðiskrifstofa skólaima leitar samvinnu við ýmsa aðila. Framar öllu öðru við heimili og skóla, en einnig við sjúkrahús, barnaheimili, frí- stundaheimili, fátækrafulltrúa, at- vinnuleysingjaskrifstofur, svo að nokkrar stofnanir séu nefndar. Starf sálfræðingsins er vandasamt, cnda mikils af honum krafist. Auð- vitað verður hann að vera vel að sér í sínu fagi, en ekkert háskólapróf, hversu hátt sem það er, er næg trygg- ing, að réttur maður sé á réttum stað. Sálfræðingurinn verður að vera fædd- ur mannþekkjari, hann verður að skilja hugsunarhátt þeirra, sem búa skmrítame<>in í lífinu og hafa samúð með þeim. Á óvísindalegan hátt mætti segja, að hann þurfi ekki aðeins að hugsa með heilanum heldur einnig hjartanu. Enginn, sem ekki hefur yndi af að hjálpa öðrum og á hægt með að vinna trúnað fólks, skyldi láta sig dreyma um að hefja starf á sálfræði- skrifstofu skóla. I Kaupmannahöfn eru nú 12 skóla- sálfræðingar, auk annars starfsfólks, sem vinnur á skrifstofunni. Á seinni árum hal'a fleiri og fleiri borgir víðs- vegar í Danmörku farið að dæmi Hafnar, og eftir því sem sálfræðing- unum fjölgar, fjölgar einnig skrifstof- unum. Samskonar fyrirkomulag eða mjög áþekkt, er nú á öllum Norðurlönd- um, nema íslandi. Vonandi líður þó ekki á löngu áður en íslendingar gera sér ljéist, að þeir verða að fara að dæmi nágrannanna á Norðurlöndum og annarra menningarþjóða. „Og lýsa þeim, er ljósið þrá en lifa í skugga“ á hagkvæmari og virkari hátt en nú er o o gert.

x

Heimili og skóli

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.