Heimili og skóli - 01.10.1948, Side 15

Heimili og skóli - 01.10.1948, Side 15
HEIMILI OG SKÓLI 111 Þennan morgun var ofsaveður. Vestanvindurinn, konungur vindanna í Danmörku, sveigði trén og reif sum upp með rótum. Símalínur og raf- magnsleiðslur slitnuðu, en reiður Æg- ir þeytti öldum sínum langt á land upp. Á leiðinni frá Ebeltoft til Alhage sá ég stórt tré, sem hafði beðið ósigur í baráttunni við vindinn og hafði rifið rafmagnsleiðslur með sér í fallinu. Til Afhagebúðarinnar kom ég laust fyrir hádegi og var tekið tveirn hönd- um af Bendix Hansen og húsfreyju hans- Alhagakofi. Klukkan 16 kom skátafylking fiá Ebeltoft. Skátarnir fóru fylktu liði með hljómsveit mikla og góða í farar- broddi. Erindi þeirra var að hvlla Bendix og liúsfreyju lians og þakka þeim tuttugu ára goða samvinnu. Meðan skátarnir léku hvcrt lagið á fætur öðru, stóðu drengir sumarbúð- arinnar í beinni fylkingu og hlýddu á, en danski fáninn blakti við hún, þrátt fyrir storminn, sem þá hafði þó helclur lægt. Til hliðar við drengjafylkinguna stóðu fjórir drengir, hver með sinn fána. Elzta fána búðarinnar, fánann, sem lengstum var notaður síðustu árin, nýjan Dannebrog,, sem gamlir Alhage- drengir höfðu farið með alla leið frá Kaupmannahöfn til Alhagc og gefið Bendix í tilefni clagsins, og loks var fjórði fáninn og sá, sem veldur því, að ég segi lesendum Heimilis og skóla frá Alhage — íslenzki fáninn. Benclix Hansen er einn af þeim fáu útlendingum, sem ég hefi komizt í kynni við, sem hefur lært íslenzka tungu kennslulaust. Árið 1944 var ég svo heppinn að fá leyfi til að stjórna Alhagebúðinni með Bendix, og þá heyrði hann í fyrsta skipti íslenzkt talmál. Bendix er nú rúmlega sextugur og fyrir löngu alþekktur meðal kennara- stéttarinnar og fjölda ungmenna, sem hafa tekið tröllatryggð við kvæðin hans og lögin, sem hann hefur flest samið sjálfur. Leikritin hans hafa far- ið sigurfarir, ekki aðeins í sumarbúð- unum, heldur einnig í Höfn, þar sem þau hafa verið leikin á sjálfu Ráðhús- torginu, Málverkin hans og vatnslita- myndirnar prýða, ekki aðeins heimili Bendix, heldur einnig fjölmargra vina hans og skólastofuna á Alhage. Bend- ix hefur aldrei gert tilraun til að selja hstaverk sín, hvorki tónsmíðar, mál- verk né kvæði. Skömmu áður en ég kom til Alhaoe o O hafði Bendix fengið bréf frá forstjóra kvöldskólanna í Kaupmannahöfn, þar sem hann var hvattur til að taka að sér íslenzkukennslu í kvöldskólum, en íslenzka verður nú í fyrsta skipti kennd í Höfn í öðrum skólum en há- skólanum. Þessi gamli íslenzkuvinur

x

Heimili og skóli

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.