Heimili og skóli - 01.10.1948, Síða 20

Heimili og skóli - 01.10.1948, Síða 20
116 HEIMILI OG SKÓLI U ng barnið (Þetta eru tveir stuttir kaflar úr langri ritgerð, sem birtist fyrir skömmu í Pædagogisk-Psyko- logisk Tidskrift og er eftir Dr. med. Sv. Heinild. Grein hans nefndist: Hinn eðlilegi þroski hvít- voðungsins. Ritstj.) Lysíarleysi. Það er víst ekki of mikið sagt, að flestar mæður, sem börn eiga á 1. og 2. ári, segi einhvern tíma á því tímabili með áhyggjusvip: „Ég get ekki fengið barnið mitt til að borða. Hvað á ég að gera?“ Heilbrigð börn eru gefin fyrir mat, og þau myndu vissulega borða mat sinn, eins og eðlilgt er, ef við blönduðum okkur ekki allt of mikið í það mál. Fyrsta glappaskotið, sem við gerum, er að þvinga börnin til að borða á móti vilja sínum. Þegar barnið í fyrsta sinn tæmir ekki diskinn sinn, eða mjólkurbollann, verður okkur þessi skyssa á. Við gleymum því sem sé alveg, að við sjálf erum ekki alltaf jafn matlystug og þurfum að borða meir í einn tíma en annan. Það, sem við þurftum að borða í gær, getur okkur fundizt of mikið í dag. Og við gleym- um því einnig, að það eru vissar teg- undir, sem okkur geðjast ekki að nú. Nákvæmlega hið sama á sér stað með börnin. Matarþörfin er ekki alltaf hin sama, og þeim geðjast ekki að sumum matartegundum. Þau hafa með öðrum orðum sitt einstaklingseðli með kost- um þess og göllum, og við verðum að taka tillit til þess að vissu takmarki. Ef barn vill ekki borða einhvern ákveðinn mat, t.d.kartöflujafning, gul- rætur, spínat, egg eða eitthvað annað, þá er rétt að taka frá því þennan mat, en reyna að bjóða því hann aftur eftir nokkra daga, og þá helzt minna magn en síðast. Mætti þá blanda einhverju öðru saman við og haga svo til að bjóða því matinn, þegar vissa er fyrir, að það sé svangt, en samt í góðu skapi. En fari nú svo, að það gefi það ákveðið í skyn, að það vilji ekki matinn, þá er bezt að bjóða hann ekki í nokkra mán- uði. Það er um svo margt annað að velja. Ilezta ráðið til að fá börn til að borða, hvað, sem fyrir kemur, er að gefa þeim hæfilegt frelsi til að velja, í stað þess að vera alltaf að halda að því mat, sem vitað er að það vill ekki. Fyrstu erfiðleikanna verður jafnan vart um það leyti, sem barnið verður 6 mánaða, eða þegar það er að byrja að neyta fastrar fæðu. Það er skemmtilegt að sjá, hvernig barnið grettir sig, hleypir í brýnnar og setur upp óá- nægjusvip, og svo kemur hinn indæli kartöflujafningur aftur út um munn- inn. En þegar þetta hefur endurtekizt nokkrum sinnum, verða margar mæð- ur óþolinmóðar og segja: „Hann vill þá ekki borða með skeið.“ Hér er vert að geta þess, að hjá sumum börnum eru tungu- og kjálkavöðvarnir vel þroskaðir um sex mánaða aldurinn, jafnvel þegar þau eru fjögra mánaða, en önnur börn hafa aftur ekki náð þeirn sama þroska, fyrr en 8 mánaða gömul. Það hafa sakpast mörg óþægindin af

x

Heimili og skóli

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.