Heimili og skóli - 01.04.1953, Qupperneq 8

Heimili og skóli - 01.04.1953, Qupperneq 8
28 HEIMILI OG SKÓLI SKULI ÞORSTEINSSON: Mesta vandamálið Uppeldið ræður miklu um gæfu einstaklingsins og frelsi þjóðarinnar. Enginn, sem lætur sér annt um velferð barna sinna, getur því komizt hjá þeim vanda að íhuga uppeldismálin og notfæra sér þá þekkingu og reynslu, sem fengin er. Allar leiðbeiningar í þeim efnum eiga að vera kærkomnar kennurum og foreldrum og raunar öllum. Hver fullþroska maður er upp- alandi í vissum skilningi. Dagleg um- gengni og framkoma fjöldans á ríkan þátt í því að skapa heilbrigð lífsvið- horf og venjur. Uppeldisvísindum hefur fleygt fram á síðustu tímum. Nú er margt ljóst, sem áður var móðu hulið. Skólarnir eiga ekki að vera eingöngu fræðslu- stofnanir, heldur og engu síður upp- eldisstofnanir. Þeir eiga að vera áhrifa- inikill aðili í siðferðisuppeldi þjóð- arinnar. Skólarnir verða að þjóna nýj- um kröfum og breyttum þjóðháttum. Þeir verða að leggja meiri áherzlu á félagslegt uppeldi. En viðleitni skól- anna til mannbætandi áhrifa nær ekki æskilegum árangri án samstilltra krafta og vilja foreldra og heimila. miðlungsbörn? Mér fannst óréttlætið enn meira, af því að ég vissi, að mörg börnin með lágu einkunnirnar stund- uðu nám sitt af alveg eins mikilli alúð og jafnvel meiri en mörg þeirra, sem hæstar einkunnir höfðu. Já, þetta var stundum dálítið óþægi- leg kveðjustund. Hún átti þó að vera stund sigurgleði og tilhlökkunar, en varð dagur vonbrigða og stundum niðurlægingar. Sú hætta vofir alltaf yfir öllum próf- skólum, að kennslan yfir veturinn sé fyrst og fremst miðuð við kröfur próf- anna, og er það í raun og veru eðli- legt, eins og í pottinn er búið. Þetta er alvörumál. Kennarinn er bundinn meira og minna af þessum þrönga ramma allan veturinn, og því meir, sem nær dregur prófi. Próf er oft ómissandi aðferð til að sannreyna þekkingu nemenda, En ég sé ekki, að barnaskólarnir myndu tapa neinu við það, þótt öll árspróf væru þurrkuð út. Við getum öll komizt af án þeirra. Mér ofbýður þessi andlausi þrældómur, sem alltaf er í kringum prófin, þessar hárnákvæmu og bros- legu mælingar á gáfum og þekkingu barnanna okkar. Þetta er allt eitthvað svo yfirborðskennt. Við getum ekki mæk það, sem við helzt vildum mæla — hamingjunni sé lof. Og ég finn síð- ast, en ekki sízt, til samúðar með þeim mörgu börnum, sem alltaf eru að bíða ósigur á öllum prófurn, ár eftir ár. Þeirra vegna er ég fyrst og fremst á móti prófunum. Mér væri þökk á, ef foreldrar og kennarar vildu segja álit sitt á þessu máli. Það kemur okkur öllum við. H. J. M. /

x

Heimili og skóli

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.