Heimili og skóli - 01.04.1953, Side 25
HEIMILI OG SKÓLI
45
Kennaratal á íslandi
KENNARATALSNEFNDIN Á FUNDI.
Ingimar Jóhannesson, Olaiur Þ. Kristjánsson, Guðmundur I. Guðjónsson, Vilbergur Júlíuss.
Eins og frá hefur verið skýrt hér í
ritinu áður, er nú í undirbúningi bók
ein mikil, sem nefnist Kennaratal á
íslandi. Er þetta safn æviágripa allra
kennara á íslandi, við æðri og lægri
skóla. Gert er ráð fyrir, að æviágripin
verði samtals um 3000. Þar verða upp-
lýsingar um ætt kennaranna, menntun
þeirra og störf. Bókin mun flytja
myndir af starfsfólki hvers einasta
skóla á íslandi.
Kennaratal birtir myndir af öllum
kennurum landsins, sem myndir eru
til af, og má telja víst, að allt að 2500
myndir verði í bók þessari, þar á með-
al myndir af öllum merkustu skóla-
mönnum þjóðarinnar fyrr og síðar.
Þetta rit verður ómissandi handbók
fyrir alla þá, sem einhver skil vilja
kunna á skólasögu landsins og þeim
mönnum, sem þar hafa komið við
sögu meira eða minna. Það er mikið
starf að taka svona bók saman, en þó
auðveldar það mjög allan undirbún-