Heimili og skóli - 01.04.1953, Side 26

Heimili og skóli - 01.04.1953, Side 26
46 HEIMILI OG SKOLI Svefnþörf barna Það er nauðsynlegt, að börn fái nægan svefn. Barn, sem ekki sefur, eins og þörfin krefur, verður önugt í skapi. Það missir matarlyst og verð- ur veiklulegt í útliti. Mótstöðukraftur þess gegn sjúkdómum og kvillum minnkar. Þáð er æskilegt, að börn fari að sofa á ákveðnum tíma á kvöldin. Svefnþörf barna er þó misjöfn eftir aldri og einstaklingseðli. Sum börn eru kvöldsvæf, önnur eru morgunsvæf og er rétt að taka nokkurt tillit til þess, að minnsta kosti, þegar börnin þurfa ekki að fara snemma á morgn- ana í skóla. En umfram allt er það áríðandi, að börnin fái að sofa og hvílast, eins mikið og þeim er eðli- legt og líkaminn þarfnast. Hraust börn geta sofnað, þegar þörfin kallar. Það á ekki að venja heilbrigð börn á að sitja yfir þeim, áður en þau sofna. Það á heldur ekki að þurfa að ganga á tánum um húsið til þess að veita ing, ef kennarar senda greiðlega allar umbeðnar upplýsingar. Nokkuð mun enn skorta á, að allir hafi sent útfyllt eyðublöð, og vill Heimili ok skóli hvetja alla, sem þessar línur lesa og ekki hafa enn sent þau nefndinni, að gera það sem allra fyrst. Þá munu vera vel þegnar upplýsingar um látna kennara o. fl. íslenzkir kennarar eiga allir að hjálpa til að gera þessa bók að merku og myndarlegu heimildarriti um ís- lenzka kennara. börnum svefnró. Svefnþörfin er sterk undir venjulegum kringumstæðum, en oft vill það brenna við, að börn eru orðin of syfjuð og of þreytt, áður en þau hátta og leggjast til svefns. Þá geta þau átt bágt með að festa svefn- inn. Því ber að forðast að leyfa börn- um að ærslast eftir kvöldmat. Þess ber vel að gæta, að börnin hafi hreint og gott loft þar sem þau sofa. Þá verður svefninn heilnæmari og vær- ari. Enginn vafi er á því, að mörg börn og unglingar, sem nám stunda, njóta oft of lítils svefns og ná þess vegna ekki eins góðum árangri í náminu. Það er hægt að þekkja þau börn úr, sem koma syfjuð í skólann á morgn- ana. Þau eru þreytt og sljó. Útivist barnaxseint á kvöldin að vetrarlagi á ekki að eiga sér stað, nema kannske á hátíðum og tyllidögum t. d. þegar þau koma úr veizlum frá vin- um og vandamönnum. Sums staðar er opinbert eftirlit með útivist bama á kvöldin. Þar, sem það er ekki, þurfa foreldrar að fylgja föstum reglum um útivist barna sinna. Það er einnig mesti ósiður að leyfa börnum að sækja kvikmyndahús á kvöldin. Hins vegar er eðlilegt, að börn fái að yera úti lengur fram eftir á sumrin en í skammdeginu. Taflan, sem hér fer á eftir, er tekin upp úr Hagnýtri barnasálfræði eftir Charlotte Búhler:

x

Heimili og skóli

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.