Heimili og skóli - 01.04.1962, Qupperneq 7

Heimili og skóli - 01.04.1962, Qupperneq 7
HEIMILI OG SKÓLI 35 sá, að kunna að £ara með vilja barnsins á hinum ýmsu þroskastigum þess, að sveigja vilja þess til hlýðni við okkar vilja, sem vitum oftast betur. Glíman við vilja barnsins er kann- ski eitthvert erfiðasta viðfangsefnið í öllu uppeldinu, og jafnframt vanda- samasta. Þarna kemur að góðu haldi sú náðargáfa mæðranna að skilja börnin sín. Sú náðargáfa tekur öllu fram, en hún getur brugðizt og ekki sízt nú á dögum, þegar börnin njóta mæðranna ekki í jafn ríkum mæli og áður. Það er einfalt ráð en óheppilegt, að brjóta vilja barns til hlýðni, og það hefnir sín oft seinna. Vilji barnsins verður seinna sterkur og þá standa for- eldrarnir uppi vopnlausir. Það örfar lieldur ekki til hlýðni að skipa. Börn skilja tóninn í orðunum jafnvel áður en þau skilja orðin sjálf. Skipun er alltaf kuldaleg, og við get- um vel verið án hennar í uppeldinu. Það orð mætti strika burt úr orðabók uppeldisfræðinnar. Þar er það varla nothæft. Það gerir ráð fyrir meiri þroska en börn búa yfir. Auk þess er það kaldranalegt. Það má nota orðið í hernaði, en ekki í upp- eldi. En hverning er þá með öll bönnin? Eigum við þá að gefast upp á að banna börnum og aðhyllast algjört frelsi í uppeldinu? Nei, við höfum þegar hafnað því. En er liægt að komast hjá bönnum? Nei, það er ekki hægt, en þó má oft komast hjá þeim með því að fara aðra leið, sem er happasælli, en það er beiðni eða tilmæli. Hún nær oft sama tilgangi, ef vel er á haldið. Hún er mildari og vekur síður upp þrjózku, en það gera bönnin oft. Ég byrja ætíð á að biðja skólabörnin mín að gera ekki þetta eða hitt. Oft dugar það, en þá verður að grípa til banna. Bezt er samt að reyna að kom- ast sem mest hjá þeim, og aldrei banna það, sem vitað er, að ekki verður hlýtt. Ótímabær og sífelld bönn leiða til sí- felldra árekstra í uppeldinu, sem leitt getur til hernaðarástands. Beiðnin vekur mildari andsvör en bönn, hvort heldur er í skóla eða heimili. Við vitum þó, að bönn eru nauðsynleg og jafnvel óhjákvæmileg á öllum stig- um uppeldisins, og það er ekkert við þau að athuga, ef þau eru ekki notuð í tíma og ótíma, en það endar oft með því, að enginn tekur mark á þeim. Við þurfum að lrnitmiða hvenær við eigum að banna og ekki banna, og hvað við eigum að banna. Það er skaðlaust, jafnvel nauðsyn- legt, að börn kynnist bönnum, þegar beiðni og tilmæli duga t. d. ekki. Við lifum í þjóðfélagi, þar sem óteljandi bönn ríkja, og það er nauðsynlegt að börnin fái að kynnast þeim smátt og smátt og læri að hlýða þeim stig af stigi. Þá kemur þetta allt af sjálfu sér. En hinum verður það oft erfitt, sem alizt hafa upp í takmarkalitlu frelsi og ekki hafa lært að hlýða. Úr þessum börnum verða oft árekstramenn þjóð- félagsins. Það er stig í þroskaferli barn- anna að læra að hlýða, að kunna af fús- um vilja að beygja sig undir bönn, þó að hinu sé ekki að neita, að þau eru mjög varasöm í óhófi, bæði í heimili og skóla, og í þjóðfélaginu sjálfu. Frelsið var gert að umtalsefni hér að

x

Heimili og skóli

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.