Heimili og skóli - 01.04.1962, Síða 9

Heimili og skóli - 01.04.1962, Síða 9
HEIMILI OG SKÓLI 37 SIGURJÓN BJÖRNSSON: Að vissu leyti er fjarstæða að tala um uppeldi sem sjálfstætt viðfangsefni. Uppeldi er afleiðing. Á líkan hátt og líkami barnsins er afleiðing getnaðar, eins er uppeldi þess afleiðing fjöl- skyldulífsins. Að sjálfsögðu má rekja orsakatemdsin miklu Ien«ra aftur o« o O o á miklu breiðari grundvelli, því að nrargt annað en fjölskyldulífið orkar á uppeldi barnsins. En við skulum láta það liggja í þagnargildi að sinni, en staldra við fjölskyldulífið. Það er mikill viðburður í lífi hvers einstaklings, þegar hann gengur í hjónaband og stofnar heimili. Hjóna- bandið er eins konar aðgöngumiði að vettvangi hins fullþroska manns. Eig- inmaðurinn fær skyndilega skyldur á herðar og ábyrgð, sem hann hefur ekki þekkt áður. Eiginkonan er ekki lengur áhyggjulaus blómarós, heldur á hún nú að fara að hugsa um heimili, eigin- mann og börn. Þessi atburður gerir miklar kröfur til hinna ungu hjóna og venjulega verða þau að tjalda til öllum þeim persónuþroska, sem þau eru gædd. Oftast fleytir ástin þeim yfir fyrsta áfangann, en einn góðan veður- dag vakna þau þó af rósabeði hennar til hins gráa hversdagsleika. Þau skynja sjálf sig sem tvo persónuleika, tvær skapgerðir, hvort með sínum kostum og göllum. Þau eru ekki lengur eitt, heldur tveir einstaklingar, sem lifa saman. Þau rekast þá gjarnan á eitt og annað í fari hins, sem þeim fellur mið- ur. Þá er hið eiginlega hjónaband liaf- SAMLÍF ið. Við tekur nú tímabil aðlögunar. Veltur á ýmsu hversu löng og ströng sú aðlögunarkreppa verður og hvem- ighenni lyktar. Stundum gefast hjónin upp í baráttunni, stundum verður misklíðin „kronisk“, ef svo má segja, en þegar bezt lætur finna báðir aðilar sér nýtt lífsform, sem gerir þeim fært að lifa saman án verulegra árekstra, stefna að sameiginlegum markmiðum og þroskast áfram, hvort eftir sínum eigin lögmálum. Á meðan þessi aðlögunartími stend- ur yfir, fæðast fyrstu börnin, stundum öll. Og hefur það sína þýðingu, því að mjög margt virðist benda til þess, að andleg líðan barnsins fari mikið eftir því, hvert andrúmsloft ríkir á heimil- inu, þ. e. eftir því hversu mikil aðlög- unarkreppa foreldranna er. Það virðist hafið yfir allan vafa, að geðræn spenna í sambúð foreldranna hafi smitandi áhrif á sálarlíf barnsins. Viðbragð smá- barnsins verður þá oft óværð, órói, svefntruflanir, viðkvæmni, lystarleysi og jafnvel meltingartruflanir. Með þetta í huga skulum við nú líta nánar á samlíf foreldranna, reyna að rekja það í sundur og grandskoða. Til samlífs karls og konu er stofnað af ýmsum ástæðum, en hin algengasta mun vera sú, að tveir aðilar dragast hvor að öðrum, vegna þess að viss ein- kenni líkamlegs eða andlegs eðlis full- nægja einhverri þörf hjá hinum. Sjaldnast munu hjónaefnin gera sér grein fyrir hvers eðlis sú tilfinning er,

x

Heimili og skóli

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.