Heimili og skóli - 01.04.1962, Blaðsíða 10

Heimili og skóli - 01.04.1962, Blaðsíða 10
38 HEIMILI OG SKÓLI sem nefnist ást, enda munu rætur hennar jafnan vera ómeðvitaðar. Vegir ástarinnar liggja langt aftan úr bernsku, og í ástinni gætir endur- hljóms frá horfinni Paradís. Ef reynt væri að greina að tegundir lijónabanda, myndi koma í ljós, að þær eru nokkuð margar. Við þekkjum t. d. hjónaband húsbóndavaldsins. Þar er eiginmaðurinn hinn einráði herra, forsjá og fyrirhyggja. Ábyrgðin á heim- ilinu hvílir á honum, fjölskyldan stendur í skjóli hans og verður að beygja sig undir föðurlegan aga. Aðra tegund mætti nefna hið móð- urlega hjónaband. Hlutverk konunnar verður þá að annast eiginmann og börn, sem væri hún móðir þeirra allra. í þeim hjónaböndum er konan oft nokkru eldri en maðurinn. Hann er eins konar „stór drengur“, misjafnlega hlýðinn og auðsveipur eins og gengur. í þriðja lagi má nefna hið erotiska hjónaband. Það getur verið með tvenn- um hætti a. m. k.: konan er hin aðdá- unarverðasta ástkona, sem maðurinn dáir og dekrar við. Hún nýtur þess að vera elskuð, hann nýtur þess að elska. í hinu tilfellinu snúast hlutföllin við. Þá er það eiginmaðurinn, sem ástar- innar nýtur, konan sem elskar. í fjórða lagi er það svo hið félagslega hjónaband, sem byggist á andlegum skyldleika, sameiginlegum áhugamál- um, jafnrétti og jafnræði tveggja full- þroska einstaklinga. Þó að þessi upptalning sé af handa- hófi gerð og ekki tæmandi, nægir hún til að sýna hversu hjónabönd geta ver- ið ólík. Sjaldan munu finnast hreinar týpur, flestar eru meira og minna blandaðar. Séu hjónin það lík, að kröfur og óskir falli vel saman, verður hjónabandið farsælt. En algengt er, að þau séu það ólík, að erfitt verði um samræmingu. Þá getur hæglega farið svo, að hjónabandið verði ein þrotlaus barátta um það, hvors þarfir og sjón- armið eigi að ráða, eða að annað hjón- anna gefist upp í baráttunni og „sætti sig“ á yfirborðinu við hlutskipti, sem illa hentar því. Með því móti fæst að vísu friður og samlyndi, að því er virðist, en yfir þeim hjónaböndum hvílir þó ávallt nokkur skuggi. Ætla mætti, að einfaldasta lausnin á þessum vanda væri að gefa hjónaefn- um kost á sálfræðilegum rannsóknum og leiðbeiningum, svo að hægt væri að koma í veg fyrir að hjónabönd, sem stefndu að óhamingju, yrðu til. Slík aðstoð gæti efalaust orðið mörgum að liði, en því fer þó fjarri að hún gæti nokkurn tíma orðið fullnægjandi. En höfuðástæðan til þess er sú, hversu sálarlíf mannsins er flókið og samsett. Óskir og þarfir einstaklings varðandi maka eru margar og margbotnar og stangast iðulega á innbyrðis, auk þess sem ýmsar þeirra brjóta í bága við það, sem viðkomandi sjálfur telur rétt eða framkvæmanlegt. Sem dæmi um þetta má nefna eiginkonuna, sem vill vera sjálfstæð og óháð og gerir kröfur til eiginmannsins um, að hann virði þessa sjálfstæðisþörf. Hins vegar býr einnig með henni þörf fyrir að standa í skjóli eiginmannsins, fá að vera lítil og ósjálf- stæð. Eða eiginmaðurinn, sem hvort tveggja í senn vill vera, höfuð fjöl- skyldunnar og fyrirhyggja, sá sem allir virða og hlýða. Samtímis því getur

x

Heimili og skóli

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.