Heimili og skóli - 01.04.1962, Qupperneq 24

Heimili og skóli - 01.04.1962, Qupperneq 24
52 HEIMILI OG SKÓLI Fuglasöngur í kennslustofunni Á hverju vori koma farfuglarnir, og söngur þeirra fyllir loftið. Jafnvel í febrúar heyrast fyrstu vortónarnir, og þá kemur einhver óróleiki yfir kennara og nemendur inni í skólastof- unum, og óljós löngun grípur alla að ganga út og mæta vorinu. En jafnvel smáleiðangur út í nátt- úruna krefst undirbúnings, og þegar um slíkar ferðir er að ræða, sem hafa það að markmiði, að opna augu og eyru nemendanna fyrir fegurðinni í náttúrunni, sem felst í fuglasöng vors- ins, og jafnframt kenna þeim ofurlít- ið um það gildi, sem þessi söngur hef- ur fyrir böm mannanna og fuglanna, þá kemur þar margt til greina. hann af hendi með viðurkenndri sam- vizkusemi og myndarskap. Hann er mikill áhugamaður um skóla- og upp- eldismál og hlédrægur að veita trún- aðarstörfum móttöku, en hefur þó, vegna verðleika, ekki hjá þeim komizt. Guðmundur er giftur Pálínu Þor- steinsdóttur frá Stöð í Stöðvarfirði. Þau eiga fimm efnileg börn, sem notið hafa hins bezta uppeldis. Gestrisin eru þau hjón með ágætum og því gott að sækja þau heim. Vinir Guðmundar og vandamenn þakka honum góð kynni á þessum tímamótum í ævi hans og vænta þess, að hann mæðist ekki til muna á göng- unni næstu áratugi. Sk. Þ. Margir kennarar hafa á liðnum ár- um haft mikla ánægju af C. Weismans plötum, en þær munu nú þegar vera uppslitnar og mér er ekki kunnugt um, að þær hafi komið í nýrri útgáfu. Með bók dr. Bondesens: Fuglasöng- urinn — heimur af músík — er ein plata, sem er endurútgáfa af Weis- mansplötu, en þar hefur fuglasöngur- inn misst sinn ferska hljóm. Útvarpið í Svíþjóð hefur sent frá sér nokkrar plötur. Ég þekki þær ekki allar, en ég hef heyrt, að þær séu mjög misjafnar að gæðum. Þær beztu þeirra eru í eigu danska útvarpsins og dálít- ið notaðar. Sænska skólaútvarpið hefur nú haf- ið útsendingar á 10 E. P. plötum, og eru sex fuglaraddir á hverri þeirra. Þær eru nær eingöngu notaðar fyrir kennsluútvarp. Inn á plöturnar er tal- aður skýringartexti með hverri rödd, og það má ekki á milli sjá hvor gerir betur fuglinn eða maðurinn, sem tal- ar. Skólarnir geta svo pantað þessar plötur samkvæmt seðli, sem þeir fá í hendur. Þarna er um fjölda fuglaradda að ræða. Eins og vænta má, koma þarna fram raddir, sem ekki eru dansk- ar. En við getum þá sleppt þeim. í Svíþjóð er nú að koma út bók, sem heitir Fuglabókin syngjandi og er sögð mjög góð. í henni eru alls 9 plöt- ur og kostar hver kr. 15.40 (sænskar). Á þessum plötum eru samtals 62 fugla- ræddir, en að sjálfsögðu þekkjast þær ekki allar í Danmörk.

x

Heimili og skóli

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.