Heimili og skóli - 01.04.1962, Page 27

Heimili og skóli - 01.04.1962, Page 27
HEIMILI OG SKÓLI 55 móðan mása. En við gátum hvorki heyrt né séð sovétprédikarann, sem annars var þarna tíður gestur. Vonsvikin snerum við okkur að dæmigerðum enskum „bobby“-leikara, sem strauk efrivararskegg sitt og sagði: „Vitið þið þá ekki, að kommúnistarnir loka á slag- inu fimm? Dagskipun frá stéttarfélaginu." Þegar ég var barn, hungraði mig eftir kær- leika. Mér hafði sem sé verið gert það ljóst, að aldrei myndi nokkur maður veita mér athygli eða dást að mér. Mér var sagt, að ég myndi aldrei öðlazt nokkra aðdáendur 1 líf- mu í líkingu við það, sem aðrir í fjölskyldu minni fengu að reyna. Ég var sem sé „ljóti andarunginn". Ég skammaðist mín af öllu hjarta fyrir klæðaburð minn. Ég klæddist oftst kjólum, sem gamla frænka mín hafði átt, höfðu sum- ir þó verið saumaðir upp. Ég skammaðist mín fyrir, að ég kunni ekki að dansa eða leika mér á skautum eins og aðrir unglingar. Ég skammaðist mín fyrir að sitja í sama sætinu á öllum samkomum, því að mér var aldrei boðið upp í dans. Ég gleymi því aldrei, hve þakklát ég var unga manninum, sem bauð mér upp í dans á einni jólasamkomu. Nafn hans var Franklin D. Roosevelt. Eleanor Roosevelt. Allt fram á þennan dag hafa margir banda- rískir eiginmenn talið konur sínar meðeig- endur í verzlunarfyrirtækjum sínum, til að nota sér til hins ýtrasta smugu, sem skatta- löggjöfin hafði gleymt að byrgja. En skatta- yfirvöldin fylgdust vel með því, hvort þetta er svo í raun og veru eða yfirvarp eitt. Við eitt slíkt tækifæri, þegar maður nokkur frá skattyfirvöldunum var önnum kafinn við að rannsaka verzlunarbækur hjá manni einum, sem átti stórt fyrirtæki ásamt konu sinni; var frúin þar mjög virk, svaraði í símann, tók á móti viðskiptavinum og reyndi að láta líta svo út sem hún væri þarna þaulkunnug og allt í öllu. En nú kom dálítið óhapp fyrir, sem varpaði skugga á alla þessa leiklist; I miðju kafi kom hún til manns síns, sem stóð hjá eftirlitsmanni skattayfirvaldanna önnum kafinn, og sagði: „Æ, heyrðu, elskan mín, geturðu ekki sagt mér hvar snyrtiherbergi kvenna er?“ Þegar mestu snjóarnir voru í vetur, ákvað sonur minn 13 ára gamall, að vinna sér inn vasapeninga með þrí að bjóðast til að moka snjó af tröppum og stéttum hjá fólki í ná- grenninu. En vegna þess að stórir skaflar lágu á okkar eigin stétt, stakk ég upp á því, að hann byrjaði á þeim, áður en hann færi að moka snjó fyrir ókunnugt fólk. „Hvaz fæ ég fyrir það?“ spurði hann. „Hvað er að heyra þetta?“ sagði ég. „Þetta er þitt heimili og ég býst við því, að þú spyrjir samvizku þína og sómatilfinningu að því, hvað þú tekur fyrir það, eða hvort þú tekur nokkuð fyrir það. Hlustaðu á samvizku þína.“ Tveimur tímum seinna kom hann inn aftur og sagði: „Jæja, pabbi. Nú er ég búinn að moka stéttina, og ég hef ákveðið að taka ekki einn eyri fyrir það.“ Nú getur þú hlustað á þina samvizku. Rússneskur flóttamaður hafði læðzt yfir landamærin in í Vestur-Berlín, en hljóp nú í fangið á lögreglunni. Á lögreglustöðinni var farangur hans rannsakaður. Þar fann lögregl- an flösku með einhverjum grunsamlegum pillum. „Þetta er við höfuðverk,“ sagði flóttamað- urinn. Skömmu síðar fundu þeir annað glas með pillum. „Þetta er meðal við astma," sagði sá rúss- neski. Loksins fann lögreglan leynihólf í ferða- tösku ihans, og þar fiskuðu þeir upp stóra mynd af Krutschef. „Jæja,“ sögðu lögregluþjónarnir. „Hvað er nú þetta?“ „Þetta megið þið ekki taka frá mér,“ sagði flóttamaðurinn í bænarróm. „Þetta er meðal mitt við heimþrá’' Mark Twain var eitt sinn spurður að því, hvernig hann héldi að fara myndi fyrir mönn- unum á jörðinni, ef engar konur væru þar. „Þeir myndu verða fáir, herra minn. Af- skaplega fáir.“

x

Heimili og skóli

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.