Heimili og skóli - 01.08.1965, Side 15

Heimili og skóli - 01.08.1965, Side 15
Samvinna þessara tveggja stofnana eykur líkurnar fyrir því, að börnunum líði vel, njóti þeirra hæfileika, sem þau eru gædd, þó er það svo, að foreldrafundi sækja helzt þeir foreldrar, sem áhugasamastir eru um velferð barna sinna, þeir koma síður, sem þyrftu að hlusta á fræðandi erindi um uppeldis- og skólamál. Starf kennara, og þó einkum barnakennara, þarf að meta meir, því að þeir leggja grundvöllin und- ir nám barnsins. Starf barnakennaranna er hið mikilvægasta og þarf að launa eftir því, en krefjast aftur mikils af þeim. Barna- kennarinn þarf að geta sinnt starfi sínu af heilum hug og kjör hans þurfa að vera svo góð, að hann þurfi ekki að vinna aukalega að öðrum störfum. Þegar kjörin verða sambærileg við kjör annarra stétta og þegar þjóðin viðurkennir mikilvægi kennarastarfsins, þá fyrst er að vænta fleiri kennara fyrir sívaxandi nemendafjölda og fleiri skóla. Eitt af tímanna táknum er, hve mikið virðist liggja á að gera börnin fullorðin. En hér mun bezt að flýta sér hægt. Rétt er það, að líkamlegur þroski barna kemur fyrr en áður, en ekki helzt það í hendur, að andlegi þroskinn komi jafnsnemma. Hér á skólaskipunin nokkra sök, þ. e., að 12-13 ára börn flytjast úr barnaskóla í unglinga- eða gagnfræðaskóla. Þó ekki sé nema þetta — barnaskóli — gagnfræðaskóli, — hvílík- ur munur. — Orðin nærri því fullorðin, enda fara börnin þá að temja sér venjur fullorðna fólksins. Hér gætu heimilin stutt hvert annað. Mörg gera hvað þau geta til að halda í og draga úr, en mörg heimili stuðla aftur óbeint að því. Það er sjálf- sagt, að börnin fái t. d. að taka þátt í dansleikjum skólans, þegar þau eru kom- in í framhaldsskóla. Þetta veldur börnum líka miklum á- hyggjum og gengur það út yfir námið, en námið þyngist þá að mun. Margir for- eldrar yrðu þakklátir ef skólarnir sjálfir sæju að sér í þessu, settu eitthvert aldurs- takmark að skóla- og danssamkomum. Það þyrfti sannarlega að hefja áróður í þessu efni og fá foreldra og almenningsálitið með því, að ekkert liggi á að verða fullorðinn, að það sé bezt að njóta æskunnar sem lengst, áhyggjulausrar æsku, en eins og vitað er, virðist æskufólk þjakað áhyggj- um, líklega einmitt vegna þess, hve and- legi þroskinn stendur þeim líkamlega að baki. En tízkan og þeir, sem græða á henni, sjá hve auðveld bráð táningarnir eru, en nú er ekki í tízku að nefna þá ungl- inga, en tízkan segið: þið eruð orðin nógu gömul, njótið lífsins eins og fullorðna fólkið. — Hér að framan hefur eitt og annað verið dregið fram, sönn sögubrot úr dag- legu lífi, sem verða mættu til umhugs- unar. Ekki hefur verið farið nákvæmlega út í hin ýmsu atriði. Það á lesandinn sjálf- ur ag glíma við. Miklu hefur þó verið sleppt, svo sem of miklum kröfum for- eldra til námsgetu barna sinna. Ekkert rætt um óhóflegar bíóferðir, en þær ferð- ir eru sjaldan menntandi. Sumir foreldrar virðast einnig vilja vera lausir við börn sín á frí- og helgidögum. Ekkert hefur verið rætt um drykkjuskap foreldra, sem þó mun fara í vöxt og er geigvænlegur hjá sumum yngri foreldrum. Ekkert rætt um atvinnu foreldranna, sem bæði vinna ef til vill utan heimilisins. Faðirinn sér helzt aldrei börn sín, nema þau sofi, ekki sízt ef hann vinnur eftirvinnu eða aukavinnu, kynnist barninu því ekkert, þekkir það varla og gagnkvæmt, og barnið kynnist ekki föður sínum. Þá hefur ekkert verið rætt um stofn- HEIMILI OG SKÓLI 59

x

Heimili og skóli

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.