Heimili og skóli - 01.08.1965, Page 18

Heimili og skóli - 01.08.1965, Page 18
guðs, einnig sorgir og sjúkdómar, og hann geri gott úr öllu og hafi með öllu einhvern ákveðinn tilgang. Árið 1958—1960 var Björgvin í orlofi og voru þau hjón þá bæði með fjölskyldu sína í Osló. Þar stunduðu þau bæði nám af kappi og kynntu sér margt. Höfðu þau þá bæði í huga skóla sinn, Barnaskóla Ak- ureyrar, og hið kristilega starf og drengja- og telpnahópana sína í K.F.U.M. og K.F.U.K., og lásu meðal annars biblíuleg fræði. Þau sóttu bæði tíma í uppeldis- og sálarfræði við Oslóarháskóla. Björgvin er ágætur kennari, áhugasam- ur og stjórnsamur. Honum mun þó þykja einna vænst um kristin fræði af öllum námsgreinum. Eg hef alltaf talið þeim hekk vel borgið, sem lent hefur hjá Björgvin, hvort sem það hafa verið duglegir bekkir eða seinfærir við nám. Ég þakka Björgvin persónulega fyrir langa og góða samvinnu, og árna honum og fjölskyldu hans allrar blessunar á þess- um tímamótum í ævi hans. H. J. M. — BÆKUR OG RIT — Norsk rit um uppeldismál. — Undan- farin ár hefur félagsmálaráðuneytið norska gefið út flokk smárita um uppeldismál. Hvert smárit, sem reyndar er um 50—100 blaðsíður, fjallar um eitthvert sérstakt efni á sviði uppeldismálanna. Þessi rit eru mjög alþýðleg og ættu því að koma að gagni fyrir foreldra almennt. Ritin eru þessi: 1. Hva kan vi vente af barn pá ulike alderstrin, eftir Ase Gruda Skard. Hér er það rakið til hvers við megum ætlast af börnum okkar á fyrstu árum ævinnar. 2. Hvem skal taga sig af barnet? Hér er vikið að þeim helztu stofnunum, sem fást við uppeldi barna á fyrstu árum ævinnar, og má þar til nefna barnagarða, dagheim- ili, leikskóla o. fl. Þetta rit er tekið sam- an af Eva Balke. 3. Disiplin i heimen efter Ase Gruda Skard. Þetta rit fjallar, eins og nafnið bendir til, um aga í heimilunum, og er þama leitast við að draga nokkrar línur fyrir markvisst uppeldi í heimilunum. 4. Det ang&r oss alle. Sálfræðileg skil- greining á ungum afbrotamönnum, eftir L. Bovet o. fl. 5. Barneheim — heim for barn, eftir Cecilie og John Murphy. Hér er fjallað um barnaheimili, þar sem börnin eru að staðaldri og þarfir þeirra í ljósi sálfræð- innar. 6. Barn með talevansker, eftir Sólveig Pahle. Hér er rætt um börn með mismun- andi málgalla, svo sem stam og aðra meiri eða minni málhelti og gefnar ýmsar bend- ingar um meðferð þeirra. 7. Adopsjon, eftir Cato Hambro. Þetta rit fjallar um ættleiðingar eins og nafnið bendir til og er girnileg til fróðleiks fyrir þá, sem ættleiða börn. 8. Skolen i sigte, eftir Oddvar Vorme- land og Lise Heber Ostlyng. Hér er fjall- að um undirbúning forskólabarnsins und- ir hin miklu tímamót í lífi þess, er það fer að ganga í skóla, og foreldrum gefnar ýmsar leiðbeiningar. 9. Tenáringer i dag, eftir Cato Hambro. Hér er fjallað um hið hættulega gelgju- skeið unglinganna og komið þar að mjög mörgu, sem er athyglisvert fyrir foreldra og aðra uppalendur. 10. Barn og leik, eftir Eva Balke og Ase Gruda Skard. Hér er fjallað um leiki barn- anna og leikþörf og uppeldisgildi leikja. Þá eru gefnar ýmsar leiðbeiningar um leikfangaval og margt fleira. Flest þessi smárit eru prýdd teikningum til skýringar. Hvert smárit kostar 5,70 norskar krónur og má panta þau öll eða eitt i bókaverzlun Johan Grundt Tanums, Karl Johans gate 41, Oslo. 62 HEIMILI OG SKÓLI

x

Heimili og skóli

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.