Heimili og skóli - 01.08.1965, Side 24

Heimili og skóli - 01.08.1965, Side 24
deildanna, en í henni eru um það bil 60% allra nemenda, fara þá þrjá daga vikunnar út á vinnustaði og vinna þar undir hand- leiðslu vinnuveitenda og í samráði við kennara og starfsvalsleiðbeinendur. Kenn- ararnir fylgjast með störfum nemendanna, bæði með því að koma á vinnustaðina og horfa á þá vinna og eins með því að tala við vinnuveitendur. Mikið af starfi kenn- aranna í þessum bekkjum verður því það, að skipuleggja störf nemendanna, en ekki að kenna þeim beinlínis. I sambandi við val ævistarfs er hæfni- prófum mikið beitt, en það er aðeins á færi sérmenntaðra sálfræðinga að fara með þau, enda eru hin ýmsu hæfniprófunar- tæki svo dýr, að það yrði hverjum ein- stökum skóla ofviða að kaupa þau, þótt þeir hefðu mönnum á að skipa sem kynnu að fara með þau. Leiti unglingur aðstoðar vinnusálfræð- ings í sambandi við val ævistarfs, veitir sálfræðingurinn þá aðstoð meðal annars í samráði við kennara, eru kennararnir þá beðnir að svara nokkrum spurningum viðvíkjandi ungmenni því, sem leiðbeina skal og er alltaf tekið mikið tillit til álits þeirra í því sambandi. við athugun á hæfni unglinga. Þörfin fyrir starfsfræðslu og starfsvals- leiðbeiningar fer vaxandi með hverju ár.i, eftir því, sem þéttbýlið eykst og fleiri alast upp án þess að hafa neitt lífrænt samband við atvinnulífið. Það liggur í augum uppi, að afstaða borgarbarnsins, sem ekki sér mikið annað en íbúð.ina, sem það býr í, leikvöllinn, götuna og skólann, er önnur og mun lakari en sveitabarnsins, sem sér störf unnin frá því það hefur þroska til að veita þeim athygli. Einnig í okkar þjóð- félagi er þörfin á starfsfræðslu og starfs- valsleiðbeiningum mjög brýn og getur naumast liðið á löngu áður en íslending- ar fylgja dæmi annarra menningarþjóða og leysa þau mál þannig, að sem flestum megi að gagni verða. REIDSKÓLAR Við setjum upp stór augu, þegar við sjáum þessar og aðrar svipaðar fyrirsagnir í blöðunum. Við gerum okkur áreiðanlega ekki ljóst hve hratt við fjarlægjumst liðinn tíma. Einhvern tíma hefði ekki þótt þörf á slíkum skólum, til að kenna börnum að sitja á hestbaki, þegar heita mátti að ís- lenzk börn fæddust á baki þessa þarfa þjóns. Og eitt af því, sem við erum að tapa úr menningu okkar, eru einmitt hin nánu kynni, sem bömin höfðu af hest- unum, þótt við gamlir sveitamenn hrökkv- um við, þegar við heyrum talað um reið- skóla. En allt fyrir það, eiga þeir menn eða stofnanir skilið þakkir, sem vinna að því að þessi leyniþráður slitni ekki alveg, því að milli manns og hests og hunds hangir leyniþráður. Svipuðu máli gegnir með hundana, þessar bráðvitru og trygg- lyndu skepnur. En nú hefur þótt ástæða til að banna hundahald í kaupstöðum, og er það sjálfsagt gert í góðum tilgangi. En þegar hundurinn og hesturinn hverfa úr lífi barnanna, er mikið misst. Eg hef séð fjölda barna úthella kærleika sínum yfir þessi vitru dýr, og er það ekki dýrmætt, að þessi göfuga tilfinning, kærleikurinn, fái útrás? Hvar lendir hann annars. Verð- ur hann kannski alltaf innibyrgður? Ein- hverjar allra ljúfustu endurminningar mínar frá bemskuárunum eru í sambandi við hunda og hesta. Hvað eiga bömin að fá í staðinn? Það er ekkert til, sem getur komið í stað þessara vina. — Maður, hest- ur og hundur, þetta er sá þríhyrningur, sem við treystum mest á meðan lífið var ekki orðið vélgengt. H. J. M. 68 HEIMILI OG SKÓLI

x

Heimili og skóli

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.