Heimili og skóli - 01.08.1965, Blaðsíða 27

Heimili og skóli - 01.08.1965, Blaðsíða 27
Þetta er upphafið að ritlingi, sem nefnist Börn og leihir, eftir Eva Balke og Asa Gruda Skard, og er 10. smáritið um uppeldismál, sem norska félagsmálaráðuneytið gefur út. Þetta er 100 blaðsína bók með myndum. —- Ritstj. Börn o§r leikir Barn að leik er samfélag í þróun. Barn, sem elzt upp úti í sveit, getur all- an liðlangan daginn velt sér í grasinu á túninu, í skógarjaðrinum eða fengið sér skemmtigöngur niður að sjónum. Sveita- barn vantar aldrei verkefni við sitt hæfi. Þegar það er ekki að leik, getur það skemmt sér við að horfa á suðandi flug- urnar allt í kring. Spýtur úr eldiviðar- geymslunni geta verið barninu óþrjótandi byggingarefni. Efni í leiki sína getur barn- ið sótt í dagleg störf pabba og mömmu. Stundum, þegar pabbi má vera að því, neglir hann saman kubba, svo að úr verð- ur vörubíll. Kannski smíðar hann líka lít- inn bát. Mamma býr kannski til tusku- brúðu eða amman notar upprakið band í hár. Kannski barnið búi til smækkaða mynd af heimilinu og hafi þá villt jarðar- ber í miðdegismat. Stundum látast börnin vera kaupmenn, setja upp búð úr tómum sykurkassa, og þar verzla þau með alls konar vörur, eins og kaffi og sykur. Þá skipa ræktun jarðarinnar og dýrin þarna veglegan sess. Leikurinn hefur alltaf ein- hvern veruleika á bak við sig að meira eða minna leyti. Til allrar hamingju má enn finn börn, sem geta leikið sér þannig í náttúrulegu umhverfi. En stöðugt eykst þó fjöldi þeirra barna. sem verða að búa við allt önnur og lakari skilyrði. Alltaf flytjast fleiri og fleiri fjöl- skyldur til bæja og borga, og áður en þetta fólk veit af, er farið að byggja verk- smiðjur rétt við heimili þeirra. Þá eru lagð- ar þarna nýjar götur, komið fyrir nýjum bílastæðum og nýjar og nýjar verzlanir þjóta upp. Þar sem áður var graslendi, skógar- kjarr með litlum rennandi læk, þjóta nú upp húsasamstæður, og nýjar og nýjar fjölskyldur koma og setjast þarna að. Þess- ar fjölskyldur, sem búa í góðum íbúðum,. leitast nú við að afla sér þeirra lífsþæg- inda, sem samfélagið hefur upp á að bjóða. Síaukinn flutningur fólks utan úr sveit- unum veldur því, að barnið elzt nú upp með fleiri og fleiri félögum, jafnvel þótt systkinahópurinn sé ekki stór. Þessi börn hittast daglega, þegar þau koma út úr heim- ilum sínum, en hafa að jafnaði ekki mikið rými til leika. Nú hafa þau margfalt minni möguleika á að leika sér en áður. Frið- urinn umhverfis barnið er ekki lengur fyr- ir hendi, eins og þegar þau léku sér á túninu heima. Barnið, sem gengur út úr einhverri „blokkinni“ og út á götuna, er um leið komið inn í hringiðuna: Bílarn- HEIMILI OG SKÓLI 71

x

Heimili og skóli

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.