Heimili og skóli - 01.08.1965, Qupperneq 29

Heimili og skóli - 01.08.1965, Qupperneq 29
Nú sækir það dægrastyttingar sínar í teikni- myndabækur, útvarp og sjónvarp. Nú er ekki hægt að fara neinar rannsóknarferð- ir út um engi og skóg, að minnsta kosti ekki af þeim börnum, sem eitthvað eru komin á skólaaldurinn. Leiðin tii skólans er nú orðin svo löng og alltaf er verið að setja nýjar og nýjar hindran.ir, útiloka börn- in frá náttúrunni. Hin mikla umferð um göturnar er alltaf að þrýsta barninu inn á þrengri og þrengri svæði. Það setur svip sinn á útilíf þeirra. Börnin eru alltaf í lífshættu, ef þau hreyfa sig eitthvað og þetta setur svip sinn á líf þeirra og leiki, og tekur frá þeim allt öryggi og náttúru- fegurð. Þessi ytri skilyrði valda því að foreldrarnir verða stöðugt að þrengja að börnunum í leikjum. Tæknin hefur einnig sett sín takmörk innan veggja heimilisins. Þar verða foreldrarnir að láta dynja á börnum „aðvaran,ir.“ „Varaðu þig á þvottavélinni.“ „Nei, þú mátt ekki leika þér með ryksuguna.“ „Æ, hér er svo lítið pláss á eldhúsgólfinu, farðu heldur út,“ segir mamma. Og barnið fer út, það fer með þríhjólið sitt út á malbikið. Hversu stórt er athafna- og leiksvæði barnsins? I kjallara og stigagöngum má barnið ekki heldur leika sér. Hvaða möguleika hafa þau til leikja? Hvernig verkar það á þau. að verða stöðugt að hætta í miðjum leik, eða lenda stöðugt í árekstrum við full- orðna fólkið? Við vitum ekki neitt um það, hvaða áhrif þetta hefur á þroskaskil- yrði barnsins, en það er augljóst, að for- eldrar og annað fulltíða fólk verður að Barnið öðlast rcynslu af því aS handfjatla lcik- föngin. HEIMILI OG SKÓLI 73

x

Heimili og skóli

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.