Heimili og skóli - 01.08.1965, Page 38

Heimili og skóli - 01.08.1965, Page 38
ÁFALLIÐ. En allt í einu kom dag nokkurn bréf með finnsku frímerki. Það var frá Anneli, •og þar stóð í stuttu máli: „Mamma, ég er ekki lengur heima. Eg er í fangelsi. Þú skalt ekki skrifa mér, ef þú vilt það ekki sjálf, «n ef þú vilt það, þá er utanáskrift til mín ...“ og svo kom nafnið á fangelsinu. Anneli okkar í finnsku fangelsi! Við vorum sárhrygg og skildum það ekki. En við skildum að barnið var í neyð, og þegar hún sagði, að við skyldum ekki skrifa, ef við vildum það ekki sjálf, þá var það nið- urlægingin, sem stjórnaði pennanum. Hvernig gat ég annað en skrifað? Ég bað Anneli að segja mér, hvað hún hefði brotið af sér og hvað hefði gerzt síðan hún skrif- aði síðast. Og ég lauk bréfinu með því að segja: Það er aldrei of seint að byrja aftur, og þegar þú kemur aftur út, þaðan sem þú ert nú, erum við reiðubúin að hjálpa þér eftir mætti. Anneli skrifaði í næsta bréfi úr fang- ■elsinu, að hún hefði lent á villigötum strax árið eftir, að hún hætti í skólanum. Ástand- ið á heimilinu var orðið óviðunandi og faðir hennar sagði, að hún væri ekki of fín til að „skemmta“ sér með þeim hinum. Það voru ekki góðir félagar, sem hún kynntist á þessum kvöldum. Frá áfenginu lá leiðin til annarra eiturlyfja, því að ann- ars hefði hún ekki getað komizt í vinnuna daginn eftir. Anneli var eins og aðrir í þessum hópi og innan heimilisins orðin eiturlyfjaneytandi, og það leiddi til þjófn- aðar frá læknum og lyfjabúðum. Hún varð félagi í bófaflokki, sem stundaði eiturlyfja- þjófnaði, og þegar komst upp um hann, þá fékk hún þriggja ára fangelsisdóm. Ég skrifaði henni aftur, að ég væri mjög hrygg yf.ir þessu, en nú yrði hún að kapp- kosta að hegða sér svo vel, að hægt væri að fá refsinguna stytta. Og þann dag, sem hún kæmi út úr fangelsinu, myndum við reyna að fá hana til Danmerkur. Við hjónin skrifuðum ýmsum stofnun- um, og skýrðum frá hvað við álitum orsök þess, að Anneli framdi þetta verk: það áfall, sem hún hlaut í æsku við flutningana. Hefði hún fengið að vera kyrr hjá okkur í Danmörku, og feng.ið að læra einhverja iðn, sem hún hneigðist að, þá hefði þetta aldrei komið fyrir. Það vorum við örugg um. Árangur af þessu varð sá, að fangelsis- tími hennar var styttur um helming, með því skilyrði, að við tækjum ábyrgð á henni, og hún fengi leyfi til að fara til Danmerkur. Anneli kom aftur til Danmerkur. Hún var eins og svipur hjá sjón. Hún var grá og guggin, þögul og mögur, og bæði finnsku og dönsku yfirvöldin aðvöruðu okkur: Þið skuluð ekki vænta mikils af henni. Við ótt- umst, að þið ráðið ekki við þetta verkefni. Munið hverju hún hefur lent í o. s. frv. Sama sögðu ættingjar okkar. Hugsið um börnin ykkar. Ég skal játa, að fyrstu dagana vissi ég ekki, hvað ég átti að gera. Hún var ekki aðeins sljó, viðhorf hennar var einnig óvinsamlegt. Það var eins og samband okkar' hefði gersamlega slitnað. Fyrstu v.ikuna létum við hana alveg sjálfráða meðan hún var að komast yfir breytinguna. Smám saman, þegar hún varð þess vör, að við minntumst aldrei á dvölina í fangels- inu -— það mundi hún eflaust segja okkur síðar — þá jafnaði hún sig. Ef til vill fékk hún mestu hjálpina við það, að við fundum flækingskettling í garð.in- um og gáfum henni hann. Ég sagði við Anneli: Ef þú vilt annast hann, máttu eiga hann alveg ein. Að sjá þessa lífsreyndu stúlku næra hann með túttuflösku — því að hann kunni ekki 82 HEIMILI OG SKÓLI

x

Heimili og skóli

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.