Heimili og skóli - 01.08.1965, Page 41

Heimili og skóli - 01.08.1965, Page 41
reykja, muni hækka verulega. Með öðrum orðum: Fleiri og fleiri unglingar byrja á þessu hægfara sjálfsmorði. Ef reiknað væri með sömu hlutföllum í Stafangri (greinin skr.ifuð þar) ætti að deyja um fimmtíu af börnunum, sem eru í skólanum okkar. Hverjir verða það? Verða það einhverjir úr þínum bekk, kennari góður? Kæru for- eldrar, verður það eitthvert af ykkar börn- um? Fær barnið kannski ekki nægilega fræðslu um þessi efni? Eða nægar aðvar- anir? „Já, — en,“ segir barnið, „þið seljið þó sígaretturnar hverjum, sem hafa V.ill. Það væri óhugsandi, að ykkur væri gefið með til útreiknings í 10 og 11 ára bekkjnm skólans. A s.l. vori fékk hver deild 7, 8 og 9 ára barna kennslu í umferðarreglum, — 4 stundir hver deild —. Karl Aspelund, íþróttakennari, hafði þá kennslu með hönd- um. Jón Oddgeir Jónsson, fulltrúi, heim- sótti skólann í febrúarlok s.l. og ræddi við kennarana um umferðarkennslu og leið- beindi þeim um hagkvæmustu tilhögun slíkrar kennslu innan skólanna. Kennar- arnir hafa síðan, af og til, farið yfir helztu atriði umferðarrreglnanna, hver í sínum bekk. Öll börnin, sem gengu undir barna- prófið, tóku próf í umferðarreglum. I skíðalandsgöngunni tóku þátt 229 nem. úr skólanum. Sýning á handavinnu og teikningum nemendanna var sunnud. 16. þ. m. og voru sýningargestir nær 1000, þar af margir úr nágrannaþorpunum. Nokkrir nemendur úr barnaskólanum eru í skólalúðrasveitinni, en hún er einnig skipuð nemendum úr gagnfræðaskólan- um. Þórir Þórisson, er stjórnandi skóla- lúðrasveitarinnar, eins og fyrr segir, en Tónlistarskólinn hefur með rekstur hennar að gera, en bæjarsjóður Isafjarðar veitir árlegt framlag til starfsemi hennar. Skólabörnunum er séð fyrir ókeypis leyfi til að selja þær, ef þær væru lífshættu- legar. Hinn góði og vinsæli Olsen kaup- maður hérna úti á hornin, myndi ekki selja mér þær, ef hann vissi að þær væru hættu- legar lífi mínu. Auk þess flytja dagblöðin stórar auglýs- ingar um sígarettur. Svo má benda á að í norskum lögum liggur fjögurra ára fangelsi við því að selja nautnavörur, sem eru hættulegar lífi og heilsu manna. Ekki hafa tóbaksverksmiðjurnar og auglýsingafyrir- tækin eða blöðin verið látin sæta neinni ábyrgð. I auglýsingum kvikmyndahúsanna lítur þetta svo vel út á tjaldinu. Hvers vegna skyldi ég þá ekki reyna þetta? tannlækningum, sem þó eru háðar árlegti framlagi bæjarsjóðs hverju sinni. Tann- læknir skólans er Alfreð Baarregaard. Daglegar lýsisgjafir eru í skólanum, og sér hjúkrunarkona skólans, Una Thorodd- sen um þær. Skólastjórinn gat þess, að heilsufar nemendanna hafi verið gott og ekki komið til neinna tafa á skólastarfi sökum farsótta. Auk skólastjórans kenndu 13 kennarar við skólann. Yfirkennari er Marinó Þ. Guðmundsson. Nemendur 16. deildar færðu skólanum að gjöf við skólauppsögnina fagra lit- prentun eftir málverki Kjarvals, „Það er gaman að lifa“, og þakkaði skólastjórinn gjöfina. I lok skólaslitaræðu sinnar hvatti skóla- stjórinn nemendurna til að einbeita kröft- unum að settu marki, og sýna ætíð sam- vizkusemi og ástundun varðandi sérhvert starf og viðfangsefni, sem þeir þyrftu við að glíma. Sérstaklega lagði hann þeim ríkt á hjarta að forðast áfengi og tóbak, og gerði böirunum grein fyrir, að þau nautna- lyf færðu engum sanna gleði eða ham- ingju. Að lokinni ræðu skólastjórans sungu börnin undir stjórn Ragnars H. Ragnar sálminn Faðir andanna. HEIMILI OG SKÓLI 85

x

Heimili og skóli

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.