Heimili og skóli - 01.08.1965, Page 42

Heimili og skóli - 01.08.1965, Page 42
Vísindin hafa kveðið upp dauðadóm yfir sígarettunum. En vísindin geta ekki fram- kvæmt dauðadóminn. Það verðum við að gera sjálf. En tóbaksverksmiðjurnar vilja það ekki. Auglýsingafyrirtækin vilja það ekki. Kaup- maðurinn vill það ekki. Það lítur út fyrir að þeir vilji heldur kveða upp dauðadóm yfir reykjendunum, einnig börnunum. Þeir grœða peninga á þessurn viðskiptum. En mæðurnar, feðurnir og kennararnir -— ekki græða þau peninga á þessari tóbaks- verzlun. Það hefur sannast við rannsóknir að tvöfalt fleiri börn reykingaforeldra byrja sjálf að reykja en foreldra, sem ekki reykja. Ég hef ekki í höndum neinar skýrslur um hliðstæð áhrif þeirra kennara, sem reykja á börnin. En liggur það ekki í augum uppi, að þau muni vera svipuð. En nú er kannski leyfilegt að spyrja, hvort ábyrgð foreldra og kennara gagnvart börnunum sé ekki enn þá meiri en hinna aðilanna, sem hagnast af tóbaksframleiðslu ■og tóbakssölu. Hverju á t. d. kennari að svara, þegar einhver nemandi spyr hann eftir ýtarlega fræðslu um skaðsemi tóbaks: „Já, en pabbi minn reykir þó, og mamma.“ Og hverju eiga föreldrarn.ir að svara, eftir að hafa varað barnið við sígarettunum, ef barnið segir: „Já, en kennarinn reykir og kennslukonan líka. Ekki hafa þau dáið, þótt þau séu orðin svona gömul. Að minnsta kosti 25 ára.“ Nei, til allrar hamingju. I amerískum skólum er þetta vandamál tekið mjög al- varlega. Fyrir skömmu hefur kennarasam- handið og skólastjórasambandið ásamt tíu öðrum samtökum, sem hafa skólamál og heilsurækt á stefnuskrá sinni, kosið sér sérstakt ráð til að vinna á móti tóbakinu og áhrifum þess af öllum mætti um gjörvöll Bandaríkin. Og ef það kemur í Ijós við rannsókn, að reykingar barna í Noregi eru jafnvel ennþá meiri en í Bandaríkjunum, er þá ekki ástæða til að ráðast gegn þessum óvini af engu minna alefli en til dæmis gegn um- ferðaslysunum, hvort sem um er að ræða eina milljón einstaklinga, eða „aðeins“ fimmtíu, sem láta lífið vegna sígarettu- reykinga? P. R. P. „Heim og skole“. Þýtt. H. J. M. Blik — Arsrit Vestmannaeyja. Útgefandi Þorsteinn Víglundsson. — Þetta er 25. ár- gangur af þessu myndarlega riti, sem að vanda er mjög fjölbreytt. Ritið hefst á Hugleiðingu eftir séra Jóhann Hlíðar. Þá kemur löng grein um séra Jón Þorsteins- son, sem var prestur að Kirkjubæ í Vest- mannaeyjum, en var veginn af Tyrkjum fyrir 300 árum. Þorsteinn Víglundsson skrifar greinina. Þá er grein sem nefnist Uppdráttarveizlur. Næst er Leiklistarsaga Vestmannaeyja — 2. kafli eftir Arna Ama- son. Einar Sigurfinnssön ritar greinina Vérum árvökur, gætum okkar sjálfra og þjóðarinnar. Reynir Guðsteinsson skrifar grein um AðventistasöfnuSinn í Vest- manna 40 ára. Þá skrifar Þorsteinn Víg- lundsson minningargrein um Áma Árna- son, símritara. Sigfús M. Jónsson, fyrrver- andi bæjarfógeti, skrifar um Mormónana í Vestmannaeyjum. Þorsteinn Víglundsson ritar greinina För til Noregs fyrir 44 ár- um og Um Lýðháskólann í oVss. Þá er skýrsla gagnfræðaskólans og margar fleiri greinar. Ritið er prýtt fjölda mynda og prentað á ágætan pappír. Þarna geym- ast ómetanlegar heimildir um Vestmanna- eyjar fyrr og nú. H. J. M. 86 HEIMILI OG SKÓLI

x

Heimili og skóli

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.